Æskan - 01.10.1990, Side 27
- Ekki ég heldur. Það er þess
vegna sem ég er svo hrædd, segir
stelpan.
- Eg er samt viss um að það er
eðlileg skýring á því. Ted og Hera eru
svo góð. Þau eru bara að reyna að
hjálpa þér. Á einn eða annan hátt. Við
skulum fara saman og tala um þetta
við þau á morgun, segir Lóa.
- Má ég vera hjá ykkur í nótt? spyr
stelpan og lítur votum augum á Lóu.
- Mín vegna. En þú hefur engan
poka til að sofa í.
- Það gerir ekkert til bara ef ég má
vera hér, segir stelpan.
- Lóa þreifar á henni.
- Þú ert svo blaut. Þú verður að
fara í þurr föt. Svo getum við rennt
pokanum mínum í sundur og notað
hann fyrir sæng, segir hún og tínir föt
upp úr poka.
- Þakka þér fyrir. Stelpan lítur á
hana og brosir í fyrsta sinn. Hún er
mjög sæt. Það sér Lóa núna.
Stelpan er holdvot og Lóa hvetur
hana til að fara í allt þurrt. Hún fylgist
vel með og eftir litla stund hefur hún
komist að því að stelpan er að segja
satt.
Hún getur alls ekki heitið Pétur.
Upp á líf og dauða
- Lóa mín, er allt í lagi með þig?
Búi stingur hausnum inn í tjaldið.
- Auðvitað er allt í lagi með mig.
En hvað gerðist hjá ykkur? Af hverju
voruð þið svona lengi? Hvað funduð
þið? Hver var að keyra burtu?
Lóa spyr og spyr. Hún spyr svo
hratt að Búi og Hrói ná ekki að svara.
- Lóa mín, þegiðu og þá skaltu fá
að vita þetta, segir Hrói.
- Hvað vildi hann þér? spyr Búi og
horfir hissa á Pétur sem er nú kominn
í peysu af Lóu.
- Það færðu að vita á eftir. En
hvað funduð þið? spyr Lóa áköf.
- Víðbláin, svarar Hrói.
- Og útvarpið mitt, segir Búi og
dregur tækið fram.
- Vá, funduð þið Víðbláin. Hvar er
hann? spyr Lóa.
- Ted og Hera fóru með hann nið-
ur á Furuvík. Þau koma aftur á morg-
un með menn til að taka Skeggja og
Snúð fasta, segir Hrói.
- Og sækja okkur, segir Búi.
- Eru Ted og Hera farin? spyr
stelpan hissa.
- Já, en þú skalt vera alveg róleg-
ur, Pétur ntinn. Þau koma á morgun
og sækja þig, segir Búi.
Nú er röðin komin að Lóu að segja
fréttir.
- Þetta er ekki Pétur, segir hún.
- Hva ... hvað áttu við? spyr Búi.
- Þetta er stelpa.
- Nehei, þú ert að plata, segir
Hrói.
- Alveg hreina satt.
- Af hverju ertu þá eins og strákur,
ég meina hárið og allt? spyr Hrói.
Stelpan lítur niður fyrir sig og svar-
ar ekki.
- Hún veit það ekki. Hún veit ekki
neitt. Hún er búin að missa minnið,
svarar Lóa.
- Þetta er bara della. Eins og Ted
og Hera hefðu ekki vitað ef hún væri
stelpa, segir Hrói.
- Nei, þau vissu það ekki, segir
Lóa.
- Það er skrýtið, segir Búi.
- Ertu viss um að þetta sé rétt?
spyr Hrói.
- Hún er stelpa, segir Lóa stutt í
spuna.
Búi og Hrói horfa hvor á annan.
Svo yppa þeir öxlum.
- Við skulum reyna að sofna. Á
morgun þurfum við að vera við öllu
búin, segir Búi.
Þau kúra sig niður. Lóa og stelpan
eru vel klæddar þvi að þær geta ekki
verið í pokanum. Búi sefur líka í
peysu og stakk því að það er hrollur í
honum. Hrói er aftur á móti lítið
klæddur enda hlífa holdin honum við
kulda.'
En þau geta ekki sofnað strax. Það
er svo margt búið að gerast. Þau
ræða málin frá öllum hliðum aftur og
aftur. Það hlýnar smám saman í tjald-
inu og regnið, sem bylur á því, er svo
róandi að það kyrrir æsta hugi þeirra.
Þau sofna eitt af öðru. Búi er lengst
að sofna. Honum finnst hann finna á
sér að eitthvað sé ekki með felldu.
Það er eitthvað sem gengur ekki upp.
En hann getur ekki áttað sig á hvað
það er.
Regnið eykst og storminn herðir
og um síðir nær Búi líka að sofna.
- Hvað er um að vera? Hvaða há-
vaði er þetta?
Stelpan er risin upp og rífur í Lóu.
Lóa hendist líka upp. Ærandi hávaði
berst utan frá. Þungir dynkir, högg og
surg. Og það færist nær og nær. Lóa
argar á Búa og Hróa og hristir þá til.
- Skriða, það er að falla skriða,
æpir hún.
Þeir þjóta á fætur. Hávaðinn er óg-
urlegur. í blindni fálmar Hrói eftir op-
inu, sviptir tjaldinu upp og þau hend-
ast út. Þau vaða í leir og leðju um leið
og þau koma út úr tjaldinu. Skriðan er
alveg komin að lautinni. Stórir steinar
ryðjast niður í hana á mikilli ferð.
Þau æða beint af augum upp úr
lautinni. Stelpan er öftust, rétt á eftir
Lóu. Þær eru að verða komnar upp á
brún þegar Lóa heyrir óp í henni. Hún
lítur við og sér stelpuna liggja á grúfu.
Framhald
ÆSKAN 27