Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1990, Síða 23

Æskan - 01.10.1990, Síða 23
auðvitað talar maður við þá sem eru kurt- eisir. Sumir krakkar eru dónalegir, hringja og skella á. Eruð þið orðin leió á aó vera mikið í við- tölum eins og til dæmis eftir Evrósjón keppn- ina? Einar Bragi: Það hefur bitnað mest á Siggu og Grétari. Sigga: Það var mest um þau eftir keppnina. Þá fannst okkur við vera að segja sama hlutinn aftur og aftur. „New Kids on the Block hörmuleg hljómsveit!" - Hverjar eru eftirlætis hljómsveitir ykkar og söngvarar? Einar Bragi: Ég hef ekki dálæti á neinni sérstakri hljómsveit. Ég held upp á Tínu Turner og djasstónlist. Eiður: Prefab Sprout og Thomas Dolby. Það eru tíu ár síðan ég átti eftirlætis hljóm- sveit. En Queen er mjög heit. Þorsteinn: Já, það hvín í Queen! Jón: Flest okkar eiga allar plöturnar með Queen. Eiður: Og flest okkar hafa gaman af Peter Gabríel og Sting. Þorsteinn: Við Jónsi njótum rokks, Aer- osmiths og Whitesnakes. Jón: Eftirlætissöngvarinn minn er David Lee Roth. Sigga: Þegar ég var yngri hélt ég upp á ákveðnar hljómsveitir. En þegar maður eld- ist þá kann maður betur að meta alls konar tónlist. Þorsteinn: Það er eiginlega öll tónlist skemmtileg nema Rick Astley, hip-hop-lög og kántrítónlist. Og þú mátt hafa það eftir mér að New Kids on the Block er hörmu- legasta hljómsveit í heimi. Ef Rick Astley og New Kids on the Block stofnuðu sam- eiginlega hljómsveit þá yrði hún jafnban- Wen og kjarnorkusprengja! Sigga: Ég hef ekki hlustað á New Kids on the Block að neinu ráði. Gæludýr Stjórnarinnar - Eigið þið gæludýr? Sigga: Já ég á lítinn hvolp sem heitir Tína. Hún er núna að reyna að drekka málningu heima hjá mér! Þorsteinn: Ég á þrettán ára gamlan kött sern heitir Leó. Jón: Hann heitir eftir súkkulaðinu Leó. Þorsteinn: Nei, nei. Súkkulaðið heitir 1* *1 „Við hljótum að fá platplatínuplötu!“ eftir honum eftir að hann - kötturinn - tók við fyrirtækinu! Hann er mjög stór og þar sem Leó þýðir Ijón fannst mér við hæfi að skíra hann því nafni. Leó lítur ekki út eins og köttur heldur eins og hestur. Þetta er eini kötturinn sem ég veit um að þyki gam- an að fara í sturtu! Eiður: Ég á kött sem heitir Mjása og er rúmlega eins árs. Einar Bragi: Ég á tvo ketti. Annar er þrettán ára og er hjá foreldrum mínum. Hinn er angóruköttur sem heitir Sparta. Sigga: Ég vil líka geta þess að hvolpur- inn minn er vitlaus í pitsur! Þorsteinn: Með pepperóni og hvít- lauksolíu?! - Kötturinn minn, Leó, neitar að borða nokkuð annað en ýsu. Honum finnst kattamatur jafnömurlegur og mér finnst New Kids on the Block. Eiður: Já það er ein hljómsveit í viðbót sem við hötum. Milli Vanilli. „Þeir eru hörmulegir!" heyrist í hinum. Þorsteinn: Það jafnast á við verstu pyntingar að hlusta á Milli Vanilli. Einar Bragi: Mér finnst Guns n' Roses vonlausir. Þorsteinn: Það er bara af því þú ert svo hræddur við þá! Þú þorir ekki að hlusta á þá! - Gætuð þið hugsað ykkur að hætta í hljómsveit og fara aó gera eitthvað annaó? Jón: Já mig langar til að styðja við reku hjá Reykjavíkurborg eða Akureyrarbæ. Það er mjög gaman að leggja skólpræsi, held ég. Þorsteinn: í alvöru þá gæti ég alveg hugsað mér að hætta að starfa sem tónlist- armaður og hafa tónlistina bara sem á- hugamál. Þegar maður vinnur lengi við eitthvað, alveg sama hvað það er skemmti- legt, þá getur það orðið þreytandi. Eiður: Ég held að við eigum það öll sameiginlegt að vilja helst hætta að spila svona mikið á dansleikjum og spila meira á tónleikum. Gera eitthvað alvarlegt. Jón: Frekar myndi ég gera ekki neitt en hætta í tónlist. Ég ætla aldrei að hætta að spila. - Fyrir hvaða aldurshóp er Stjórnin? Sigga: Alla aldurshópa, þetta eru lög fyrir flesta. Þorsteinn: Amma er hrifin af Stjórninni. Líka litlu frænkur mínar en ekki Leó. Finnst ykkur þreytandi aó spila um hverja helgi? Sigga: Við vorum orðin nokkuð lúin í haust þegar hringferðin var búin. Eióur: Það er miklu erfiðara að leika úti á landi heldur en í Reykjavík. Því fylgja svo mikil ferðalög. Spilamennskan er minnst þreytandi. Rútuferðirnar eru þreyt- andi. í sumar bilaði rútan til dæmis alltaf nema tvisvar! - Viljið þió segja eitthvað að lokum? Sigga: Mjólk er góð. Einar Bragi: Einhver verður nú hávað- inn. ÆSKAN 23

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.