Æskan - 01.10.1990, Qupperneq 42
Randver Þorláksson
leikari svarar aðdáendum
„Páfagaukurirm
Pási er
eftirlætisleikarinn minn!"
Hvar og hvenær ertu fæddur?
Ég er fæddur í Reykjavík, nánar til-
tekið í Vesturbænum, 7. október 1949.
Hvar ólstu upp?
Ég ólst upp í Vesturbænum og síðar
var ég svo lánssamur að flytjast inn í
Bústaðahverfi - hverfi Víkings sem er
mitt íþróttafélag ...
Lékstu oft í skólaleikritum?
Já, ég gerði það.
Eru einhverjir ættingjar þínir leikarar
L eða leikhúsfólk? I
Faðir minn hefur unnið f Þjóðleik-
húsinu næstum frá opnun þess. I
Hvert var fyrsta hlutverk þitt? 1
Æ, það er orðið svo langt síðan,
líklega í Jeppa á Fjalli sem leikið var
fyrir langa löngu í Þjóðleikhúsinu.
Hvar lærðir þú leiklist?
í leiklistarskóla sem tengdur var
Þjóðleikhúsinu en er ekki starfræktur k
lengur. í staðinn er kominn Leiklistar-
„Mig langar til að hitta eiginmann Margrétar Thatcher. Ég held að honum leiðist svo mikið ..."
skóli íslands sem ríkið rekur.
Fannst þér það erfitt nám?
Þegar ég var í skólanum var hann
reyndar bara kvöldskóli, milli 5 og 7
að mig minnir, en þó fannst mér það
erfitt.
Er erfitt að komast í leiklistarskóla?
Já. Mér skilst að inntökupróf standi
yfir í nokkrar vikur, síðan er valinn 16
manna hópur og síðar er „grisjað" enn
meir þar til fimm eða sjö eru eftir.
Þeirra bíður fjögurra ára nám.
Er erfitt að fá vinnu sem leikari?
Já, leikurum hefur fjölgað mikið.
Margir hafa lokið námi hér á landi að
undanförnu og einnig erlendis. I raun-
inni þolir markaðurinn ekki þessa
fjölgun og margir Iifa engan veginn á
tekjum af leiklistinni eingöngu, þvf
miður.
Hvar hefur þú starfað sem leikari?
Á þeim stöðum þar sem leiklist er
mest stunduð ... í Þjóðleikhúsinu,
Sjónvarpinu, Útvarpinu, Iðnó ... og
Ifka hjá frjálsum leikhópum, t.a.m-
Crfniðjunni og Alþýðuleikhúsinu.
Hver eru helstu áhugamál þín önnur
en leiklist?
Æ, þau eru allt of mörg ... Fiski-
veiðar, tónlist og - eins og fegurðar-
drottningarnar segja - ferðalög og úti-
líf.
46 ÆSKAN
mm