Æskan - 01.01.1993, Síða 3
Kæri lesandi!
Nú hefur þú í höndum 1. tölublað Æsk-
unnar 1993. Það ber vitni um að hún er sí-
ung og fersk - þó að komin sé á 96. árið!
í blaðinu eru verðlaunasagan og -Ijóðið
úr samkeppninni í haust - eftir snjalla
krakka, Helgu Sigríði og Árna Brynjar, 11 og
13 ára. Hér er einnig bráðskemmtileg saga
með teikningum eftir Bjarna Þór 5 ára, hug-
myndaríkan dreng!
Viðtöl eru við vinsæla og ágæta lista-
menn, Stefán Hilmarsson söngvara og Þor-
grím Þráinsson rithöfund, og sagt er frá
einum dáðasta íþróttamanni heims, Michael
Jordan. Veggmyndir eru af þeim Stefáni.
Efnt er til teiknisamkeppni í tengslum við
frásögn af Mikjáli.
Lýst er úrslitum í smásagna- og Ijóða-
keppninni og áskrifendagetraun Æskunnar
kynnt (- aðalverðlaun eru fjölskylduferð til
Amsterdami). Niðurstöður í vinsældakönn-
un Æskunnar 1992 er að finna í blaðinu:
Að sjálfsögðu eru að venju þrjár teikni-
myndasögur, þrautir, skrýtlur, pennavina-
og safnaradálkar og margir fastir þættir;
einnig einn nýr, um tölvuleiki og leikjatölvur.
Af þessu sérðu að í Æskunni er sem
jafnan fyrr ótalmargt sem vekur áhuga og
veitir ánægju. Ýmislegt umhugsunarvert
fylgir að sjálfsögðu. Ég vil gjarna taka undir
orðsendingu Stefáns Hilmarssonar til les-
enda:
Vidtal við Þorgrím Þráinsson rithöfund -
bls. 14.
- „Berið ávallt virðingu fyrir gamla fólk-
inu því að það ber ómælda virðingu fyrir
ykkur." -
og heilræði Þorgríms Þráinssonar í lok
viðtalsins við hann:
„Ég bið börn og unglinga að hafa í huga
að hver er sinnar gæfu smiður.
.. Þeir sem vilja lifa hamingjusömu lífi
eiga að reyna að vera heilbrigðir, heiðarlegir
og réttsýnir - og láta áfengi, fíkniefni og sí-
garettur lönd og leið vegna þess að það er
ekkert annað en blekking að leita á náðir
slíks.“
Með hlýrri kveðju,
Karl Helgason.
VIÐTÖL OG GREINAR
8 Margttil lista lagt
- rætt við Helgu Sigríði,
sigurvegara í smásagnakeppninni
11 Samdi þá bara Ijóð ...
- rabbað við Árna Brynjar,
höfund verðlaunaljóðsins
14 „Hver er sinnar gæfu smiður"
- viðtal við Þorgrím Þráinsson
rithöfund
26 Nashyrningur í Kópavogi!
- um sýninguna Ottó nashyrning
27 Meistarinn - Michael Jordan
53 í barnastúkum er fjör á ferðum!
56 Börn í Japan-2. hluti
SÖGUR OG LJÓÐ
9 Aðalbjörg og svalan góða
11 Hausttónleikar- Ijóð
18 Glámur auli
22 Skóladagur
TEIKNIMYNDASÖGUR
30 Eva og Adam
35 Ósýnilegi þjófurinn
50 Björn Sveinn og Refsteinn
ÞÆTTIR
20,49 Æskupósturinn
24 Tölvuþáttur
37 Úr ríki náttúrunnar
42 Poppþátturinn
- niðurstaða í vinsældavali 1992
46 Aðdáendum svarað:
- Sáiin hans Jóns míns
54 Skátaþáttur
55 Frímerkjaþáttur
58 Æskuvandi
60 Tónlistarþáttur
- Gamalt og nýtt um NKOTB
ÝMISLEGT
4 Áskrifendagetraun Æskunnar 1993
6,1,38,39 Þrautir
10 Urslit verðlaunasamkeppninnar 1992
12 Litasamkeppnin Prinsessan
og Durtarnir
13 Reynir ráðagóði
23 Kátur og Kútur
25 Lestu Æskuna?
28 Pennavinir
40 Skrýtlur
41 Spaugsömu dýrin
45 Uppfinningakeppnin 1993
52 Við safnarar
62 Verðlaunahafar og lausnir
á þrautum í 9. tbl. 1992
Veggmyndir
Stefán Hilmarsson
Michael Jordan
Skrifstofa er að Eiríksgötu 5, 3. hæð • Sími ritstjóra er 10248; á afgreiðslu blaðsins 17336; á skrifstofu
17594 • Áskriftargjald fyrir 1.-5. tölublað 1993:1985 kr. • Gjalddagi er 1. mars • Áskriftartímabil miðast
við hálft ár • Lausasala: 450 kr. • Póstáritun: Æskan, pósthólf 523,121 Reykjavík • 2. tbl. 1993 kemur út
5. mars • Ritstjóri og ábyrgðarmaður: karl Helgason, hs. 76717 • Framkvæmdastjóri Guðlaugur Fr. Sig-
mundsson • Teikningar: Guðni Björnsson • Útlit, umbrot, litgreiningar og filmuvinna: Offsetþjónustan hf.
• Prentun og bókband: Prentsmiðjan Oddi hf. • Útgefandi er Stórstúka íslands I.O.G.T. • Æskan kom fyrst
út 5. október 1897.
Á forsídu er teikning eftir Jens Kr. Guðmundsson - af Sigríði Beinteinsdóttur, Stefáni Hilm-
arssyni, Þorgrími Þráinssyni, Michael Jordan og Whitney Houston.
Æ S K A N 3