Æskan

Årgang

Æskan - 01.01.1993, Side 8

Æskan - 01.01.1993, Side 8
MARGT TIL LISTA LAGT I Höfundur verðlaunasögunnar í samkeppni Æskunnar, Flug- leiða og Barnaritstjórnar Rík- isútvarpsins er Helga Sigríður Þórhallsdóttir 11 ára. Hún á heima í Hólmgarði 50 í Reykjavík og er í Hvassaleitisskóla. Helga Sigríður fæst við margt. Að því komst ég þegar ég hringdi til hennar snemma í janúar og spurði hvað hún gerði helst annað en að sinna skólanum og semja góðarsögur... „Ég hef lært á fiðlu í fimm ár og píanó í tvö ár í Tónskóla Sigur- sveins. Ég er með annað stig í fið[unáminu.“ - Áttu fleiri áhugamál? „Eg hef verið í Dansskóla Heið- ars Ástvaldssonar í fimm eða sex ár og lært samkvæmisdansa, - og sungið í Barnakór Grensáskirkju frá því að hann var stofnaður fyrir þremur árurn." - Hafið þið farið í söngferða- lag? „Ekki enn þá en það verður far- ið til Ítalíu í sumar eða á næsta ári.“ - Hvers konar tónlist þykir þár skemmtilegust? „Gömul lög, sígild verk - ekkert eitt sérstakt.“ - Þú kemst tæpast yfir fleira en að sinna þessu ...? „Jú, jú, til dæmis að safna frí- merkjum. Maður, sem við þekkj- um og á heima í Þýskalandi, gaf mér frímerkjasafn. Eg fæ frímerki af bréfum frá skyldfólki mínu sem er búsett erlendis." - Hefur þú samið margar sög- ur? „Nei, ekki mjög. Ég samdi sög- una um Aðalbjörgu og svöluna sem verkefni í skólanum. Þegar ég las um keppnina í Æskunni datt mér í hug að senda hana.“ - Hefur þú lesið mörg ævin- týri? „Ég les alls konar sögubækur og líka þjóðsögur og ævintýri úr safni Jóns Árnasonar." - Áttu systkini? „Ég á sjö ára bróður, Jósep Birki, og sex mánaða systur, Mar- gréti Þórhildi." - Þú verður líklega að gæta þess að vekja ekki litlu systur þegar þúæfir þig... „Já, ég spila helst bara þegar hún er vakandi!" Æskan óskar Helgu Sigríði til hamingju með söguna og verðlaunin - Lúxemborgarferð í vor. Einu sinni var stúlka sem hét Aðalbjörg. Hún útti heima hjú öldruðum hjónum, því að bæði mamma hennar og pabbi voru dúin. Kerlingin stjómaði henni meb harðræði og lét hana vinna öll verkin, bæði utan húss og innan. Aðalbjörgu þótti alltaf best að dveljast í garðinum bak við húsib. í einu homi garðs- ins stóð stórt tré og við hlið þess var steinn þar sem Aðal- björg sat oftast í tómstundum sínum. í einni af efstu grein- um trésins útti svala sér hreið- ur. Aðalbjörg talaði oft við hana og sagbi henni frú sorg- um sínum. Svalan og Aðal- björg urbu með tímanum mestu mútar. Eitt sinn vildi svo til að það kviknaði í hjú núgrönnum hjónanna og var Abalbjörg sökuð um að hafa kveikt í. Þegar hún var dregin fyrir dóm og neitaöi var hún dæmd til að sitja í gapastokki bæjarins í tvo sólarhringa. Þaö var ekki gaman að þurfa að sitja þarna og lúta fólk hæðast að sér og hlæja. Loks þegar henni var sleppt og hún ætlaði að fara heim til hjónanna og leggjast í bælið sitt sú hún að þar lú einhver. Þegar hún gúði betur að só hún að það var litli drengur- inn núgrannanna sem lú þar. Hjónin höfðu þú tekið að sér að hýsa fólkið ú meðan verið var að endurbyggja hús þess. Hún fór fram í borðstofu og lagðist þar með teppi á gólfið og sofnaði. Hana dreymdi undarlegan draum. Hana dreymdi að hún væri að draga mann upp úr vatni. Hann þakkaði henni margsinnis fyrir og bauö 8 Æ S K A N

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.