Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1993, Qupperneq 16

Æskan - 01.01.1993, Qupperneq 16
maður. Það er í raun Steinari J. Lúðvíkssyni aðalritstjóra Fróða að þakka að ég gerðist blaðamaður og fór að skrifa baskur." - Hvers konar viðtöl finnst þér skemmtilegast að taka? „Mér þykir í rauninni flest mjög skemmtilegt við blaðamennskuna, hvort sem maður er að tala við börn, unglinga, fullorðið fólk eða gamalmenni. Hvert viðtal hefur sína töfra og það sem er gaman við þetta er að maður er að læra eitthvað nýtt á hverjum degi, hvern sem maður talar við. Blaða- mennskan gerir það að'verkum að maður kynnist mjög mörgum og öðlast víðtæka reynslu sem kemur að notum seinna meir.“ PIKKAÐI í BAKIÐ Á RUUD GULLIT... - Hvað finnst þár skemmtileg- ast við blaðamennskuna? „Fjölbreytnin. Eina vikuna er maður staddur í Chicago að skrifa um borgina og fara á körfubolta- leik. í næstu viku skreppur maður til Grindavíkur og fer á sjó og talar við sjómenn. Nokkrum dögum síð- ar er maður að tala við íþrótta- mann o.s.frv. Þetta er það sem blaðamennskan býður upp á og hún gefur innsýn í flesta þætti mannlífsins." - Hvert er eftirlætisviðtalið þitt? „Mér þótti mjög gaman að fara til Ítalíu að tala við Ruud Gullit. Það var bæði erfitt og eftirminni- legt vegna þess að það var ekki búið að láta hann vita að ég væri á leiðinni frá íslandi til að taka viðtal við hann. Ég var búinn að fá vilyrði fyrir viðtali en þegar ég kom til Ítalíu og pikkaði í bakið á honum þá hafði hann ekki hugmynd um hvaðan ég kæmi eða að ég ætti að fá viðtal. Hann tók mér samt vel. Maður hefur tekið mörg eftir- minnileg viðtöl og ég vil ekki gera upp á milli þeirra. En þetta var skemmtilegt samtal." - Skrifaðirðu í skólabiöð þeg- ar þú varst ungur? —„Nei, ég var gjörsamlega sneyddur öllu því sem kallast skriftir, hugmyndaflug og því að skapa eitthvað. Það hefði aldrei hvarflað að mér að ég ætti eftir að gerast blaðamaður eða skrifa bæk- ur.“ - Hvað myndirðu helst ráð- leggja krökkum sem vilja ger- ast íþróttamenn eða blaða- menn? „Ég ráðlegg krökkum að kynn- ast ýmsum íþróttagreinum á með- an þeir geta vegna þess að fjöl- breytnin skilar sér alltaf seinna meir. Það er ágætt að vera í nokkrum greinum fram til 17-18 ára aldurs og þá einbeita sér að einni grein. Blaðamennskan er mismunandi eftir því hvort unnið er á dagblaði eða við tímarit. Það sem mér finnst skipta mestu máli er að vera vandvirkur, undirbúa sig vel og kynna sér það sem maður skrifar um og þann sem á að tala við, ekki bara mæta og forvitnast á staðn- um. Svo er líka ágætt að lesa það sem aðrir hafa gert og læra af því vegna þess að það er hægt að taka viðtöl á svo marga vegu og setja þau upp á margvíslegan hátt. í báðum þessum greinum er öll reynsla af hinu góða.“ KRAKKARÁ GÖTUNNI GEFA MÉR HUGMYNDIR - Leiddi blaðamennskan út í bókaskriftir? „Að vissu leyti held ég að hún hafi gert það því að ég fann smám saman þegar ég var að taka viðtöl og skrifa greinar að ég hafði gam- an að því að segja ýmislegt frá eig- in brjósti t.d. í inngangi að viðtöl- um. Þá kviknaði sú hugmynd hjá mér að ég gæti ef til vill skrifað bækur eins og aðrir. Mér fannst vanta fyrir unglinga bækur sem fjölluðu um íþróttir og heilbrigði og fleira í þeim dúr. Þess vegna langaði mig til að prófa að skrifa bók. í rauninni má segja að blaða- mennskan hafi leitt til þess að ég fór að skrifa bækur. Það er heldur ekkert leyndarmál að ég hef áhuga á andlegum mál- um og þegar maður fer að hugsa um tilganginn með lífinu og til hvers við erum á þessari jörð þá opnast ákveðin skilningarvit og um leið fer maður að kafa ofan í sjálf- an sig og spyrja hver maður sé og til hvers lífið sé. Hugmyndir kvikna." - Hvaðan færðu hugmyndir í bækurnar? „Ég fæ hugmyndir alls staðar og hvergi. Ég fer í bíó. Ég tala við þig. Ég fer út að labba. Ég les blöðin. Ég horfi á sjónvarp ... Hug- myndirnar koma hvenær sem er. Þess vegna er ég alltaf með litla bók á mér og skrifa allar hug- myndir strax hjá mér því að annars myndi ég gleyma þeim. Ég dagset ailar hugmyndir og skrifa í hvaða bók þær eiga að fara. Ég er yfirleitt að safna efni í nokkrar bækur í einu. Ómeðvitað er ég alltaf að leita að hugmyndum, hvort sem ég er að vinna eða horfa á sjónvarp- ið.“ - Hvað með persónurnar í bókunum. Eru þær til í raun og veru? „Nei, þær eru allar búnar til. Þetta eru ekki vinir mínir eða aðrir sem ég þekki. Samt er eitt og eitt atvik eða ein setning úr veruleikan- um og ég spinn í kringum það.“ - Hvaðan færðu hugmyndir um krakkana? „Ég sé krakka úti á götu og þeir gefa mér kannski hugmyndir um útlit en til að móta persónu legg ég höfuðið í bleyti og reyni að hafa hana eftirtektarverða og eftirminni- lega.“ FORRÉTTINDI AÐ GETA SKRIFAÐ BÆKUR - Ætlarðu að semja framhald af Bak við bláu augun? „Ég geri ekki ráð fyrir því. Sum- um finnst vanta síðasta kaflann í bókina en ég vil hafa bækur þannig að lesandinn geti nokkurn veginn ráðið endinum sjálfur." - Hvað finnst þér um viðtök- urnar? „Viðtökurnar hafa verið frábær- ar og ég er mjög þakklátur þeim sem lesa bækurnar. Ég hef alltaf sagt að góð bók sé besta auglýs- ingin fyrir næstu bók. Ég geri mér grein fyrir því að ég get aldrei skrifað bækur sem öllum líka. Sú bók, sem allir hafa gaman af, er

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.