Æskan - 01.01.1993, Blaðsíða 20
SKIPTINEMAR
Kæra Æska!
Mig sárvantar upplýsingar. Ég
hef verið að velta svo mörgu fyrir
mér að undanförnu að höfuðið á
mér er að springa.
Hvað kostar að gerast
skiptinemi i Englandi eða Ví-
etnam? Hve gamall þarf maður
að vera til að geta farið utan sem
skiptinemi?
Hvað gerir maður annað sem
skiptinemi en að gæta barna?
Kærar þakkir fyrir fróð-
leiksmolana og veggmyndina
með Queen.
Queen-aðdáandi.
Svar:
Skiptinemasamtökin AFS (=
Alþjóðleg fræðsla og sam-
skipti; s. 25450) starfa á ís-
landi - og í 54 öðrum löndum.
Á vegum samtakanna fara 123
íslensk ungmenni til útlanda á
þessu ári - líklega til 25
landa. 30 fara í janúar til landa
á suðurhveli en 93 í ágúst víða
um norðurhvel. Dvalist er eitt
ár erlendis.
Þátttökugjald er 5100
Bandaríkjadalir (dollarar). Það
samsvarar (í janúar 1993) um
330.000 íslenskum krónum.
Samtökin annast greiðslu alls
kostnaðar - fargjalda, dvalar-
kostnaðar, skólagjalda - en
skiptinemar hafa með sér
vasapeninga.
Á hverju ári sækja fleiri um
að fara sem skiptinemar en
unnt er að senda. Þeir sem á-
huga hafa sækja gjarna um
þegar þeir eru fimmtán ára og
fara sextán ára - því að þeir
þurfa að undirbúa sig á marg-
an hátt. Sumir fara þó sautján
eða átján ára - og hafa þá sótt
um ári yngri en það.
Ekki er unnt að senda
skiptinema til Víetnams - hins
vegar til Malasíu, Indónesíu og
Japans - og væntanlega til
Suður-Kóreu á næstunni.
Skiptinemasamtökin ASSE-
ísland (s. 24617) eru deild í al-
þjóðlegu samstarfi. Á vegum
þeirra fara árlega 120-150 ung-
lingar til dvalar erlendis. Þeir
sem áhuga hafa sækja um
þegar þeir eru í 10. bekk
grunnskóla, 1. eða 2. bekk í
framhaldsskóla. Leggja þarf
fram umsókn (- ritgerð um-
sækjanda um sjálfan sig, um-
sögn kennara, einkunnir,
myndir) og fara í viðtal á skrif-
stofu samtakanna. Haldin eru
tvö námskeið fyrir ferðalang-
ana og er annað um helgi en
hitt einn dag.
Unnt er að fara til fjórtán
landa og ráða skiptinemarnir
hvert þeir halda. (Löndin eru:
Bandaríkin, Kanada, Ástralía,
Nýja-Sjáland og Japan; Norð-
urlönd - og nokkur önnur lönd
í Vestur-Evrópu) Fjölskyldur,
sem þeir dveljast hjá, velja þá
eftir upplýsingum sem gefnar
eru.
Fyrir dvöl í Bandaríkjunum
og Vestur-Evrópu eru greiddar
290-300 þúsund krónur - en i
Japan 407 þúsund.
Skiptinemar starfa ekki við
að gæta barna. Þeir stunda
nám í gistilandinu.
Samtökin Alþjóðleg ung-
mennaskipti (AUS - s. 24617)
starfa í 26 löndum. Á hverju ári
fara 17 íslendingar á aldrinum
18-27 ára, flestir um tvítugt, til
útlanda á vegum þeirra - og
koma 17 erlend ungmenni
hingað. Kostnaður er um
300.000 kr.
Dvölin hefst með tungu-
málanámskeiði í 2-4 vikur en
síðan stunda ungmennin
vinnu í tíu mánuði - flest við
félagsleg störf.
(Spurningar sem tengjast
hljómsveitinni Queen voru af-
hentar umsjónarmanni Popp-
þáttarins)
SJÓNVARPSÞÁTTUR
KRAKKA FYRIR
KRAKKA
Hæ, Æskupóstur
og lesendur!
Við erum tvær vinkonur úr
Reykjavík sem fengum þá hug-
dettu að gera sjónvarps- eða út-
varpsþátt fyrir krakka á öllum
aldri en einkum krakka sem
finnst þeir ekki nógu sjálfstæðir.
Við viljum hjálpa þeim sem lagðir
eru í einelti, er strítt eða þeir
skildir útundan vegna klæða-
burðar, stærðar, þroska og af
ýmsum öðrum ástæðum.
Okkur vantar tvo eða þrjá
krakka (stelpur og stráka) til að
láta þetta verða að veruleika. Við
viljum gjarna fá til liðs við okkur
þá sem hafa einhverja reynslu af
að koma fram. Við biðjum ykkur
um að lýsa ykkur sjálfum og við-
horfum til lífsins og æskuáranna.
Mynd má gjarna fylgja - og við
þurfum upplýsingar um aldur.
Við erum báðar fæddar 1981.
Hringið til okkar eða skrifið.
Fífa Sigfúsdóttir, s. 12564,
Njarðargötu 25,
101 Reykjavík.
Myrra Leifsdóttir, s. 622252,
Hverfisgötu 52,
101 Reykjavík.
LEIKLIST - ERLENDIR
PENNAVINIR
Kæra Æska!
Mig langar til að spyrja þig
nokkurra spurninga.
1. Ég er fimmtán ára og hef
mikinn áhuga á leiklist en veit
ekki hvar ég get lært að leika. Ég
hef hringt viða en ekki frétt af
neinum námskeiðum. Veist þú
um námskeið?
2. Viltu kynna leikarann Ric-
hard Grieco - og birta heimilis-
fang aðdáendaklúbbs hans?
3. Getur þú birt póstfang hjá
ítölsku tímariti sem birtir beiðni
um pennavini?
Að lokum þakka ég gott og
skemmtilegt blað.
Leikarinn.
Svör:
1. Kramhúsið, Skólavörðu-
stíg 12 í Reykjavík, s. 15103,
efnir til leiklistarnámskeiða
fyrir börn og unglinga (7-9, 10-
12 og 13-15 ára). Námskeiðin
eru í þrjá mánuði, einu sinni í
viku (- fyrir 13-15 ára kl. 18-
19.30 á mánudögum). Kennar-
ar eru Harpa Arnardóttir og
Þórey Sigþórsdóttir leikkonur.
Þær hafa kennt hjá Kramhús-
inu í nokkur ár.
Leiðbeint er í framsögn og
meðferð texta - og gjarna unn-
ið í „spuna “ með ýmiss konar
hugmyndir. Farið er á æfingar
2 0 Æ S K A N