Æskan - 01.01.1993, Page 36
.. • V • , \ * r
. : í' ; > v'
* \ * *
• /U. • * * t y •
'' ■;\ /\\ ; .-.-V../ \
:: \ ' • ! -: \
— ■'< . 1____\« «• ' i *\ »
■ —---—Li— 1 \ ■
Þú mátt gjarna gleyma því aö eitt sinn varstu froskur!
- Halló! Er þetta í síma
22222?
- Já.
- Getur þú sent hingað ein-
hvern sem getur losað fingur-
inn úrskífunni?
Pétur: Hjálpaðu mér með
dæmið, pabbi!
Pabbinn: Nei, ég er að lesa
blaðið.
Mamman: Hjálpaðu drengn-
um meðan þú getur, maður!
Næsta haust fer hann í annan
bekk!
- Eg þekki mann sem hefur
ekki keypt dagblað Í15ár.
- Það hlýtur að vera sá sem
situr alltaf við hliðina á mér í
strætisvagninum!
- Anna! Sendu drenginn
út að leika sér áður en ég
verð snarruglaður!
- Eg man vel eftir 90 ára af-
mælisdeginum mínum. Við sát-
um í garðinum og drukkum
kaffi. Það var sólskin og hlýtt.
- Afi! Þú átt afmæli í des-
ember!
- Þá hefur þetta verið þegar
ég varð 80 ára!
Starfsmaður í fornminja-
safni bendir á beinagrind og
segir:
- Þessi beinagrind er 5008
ára!
- Hvernig er hægt að vita
þetta svo nákvæmlega? spurði
einn gesturinn.
- Það skal ég segja þér.
Þegar ég byrjaði að vinna
hérna voru beinin 5000 ára -
og það varfyrirátta árum.
Konan: Þegar ég segi þér
eitthvað fer það inn um annað
eyrað og út um hitt!
Maðurinn: Já, en verri ert
þú. Þegar ég trúi þér fyrir ein-
hverju fer það inn um eyrað og
út um munninn!
Rúða hafði verið brotin í
skólanum og kennarinn reyndi
að komast að því hver hefði
verið að verki.
- Ási, veist þú hver braut
rúðuna?
- Já, en ég hef lofað að
segja það engum.
- Það er alveg rétt, Ási
minn. Menn eiga að standa við
loforð sín. En hverjum gafst þú
þetta loforð?
- Halla!
- Þjónn! Það er tanngarður í
súpunni minni!
- Þúþund þakkiþ! Enn finnaþt
þó heiþarlegaþ manneþkjuþ!
- Ég er fimm ára. Hve gam-
all ert þú?
- Veit það ekki!
- Ertu farinn að hugsa um
stelpur?
- Nei!
- Þá ertu bara fjögurra ára!
- Þú hefur staðið hér í fjórar
klukkustundir og starað á mig
veiða! Af hverju færðu þér ekki
stöng og kastar sjálfur fyrir
fisk?
- Ég er ekki nógu þolinmóð-
urtil þess!
- Er ekki vont að vera sköll-
óttur?
- Nei, nei! Ég finn ekkert
fyrir því nema flugur, sem setj-
ast á mig, séu fótkaldar!
Jens sá páfugl í fyrsta sinn.
- Mamma, mamma! hróp-
aði hann. Þarna er hæna sem
blómstrar!
- Eitt súkkulaðistykki, tvær
gosflöskur, tveir kexpakkar og
tíu kókosbollur fyrir hundrað
kall! Það þykir mér ódýrt!
- Hvar getur þú keypt það?
- Hef ekki hugmynd! Ég
sagði bara að það væri ódýrt!
- Féllstu í rauninni niður úr
þessum háa stiga án þess að
meiða þig?
- Já, en ég stóð í neðstu
riminni...
- Halló! Er þetta hjá bilana-
þjónustunni? Af hverju komuð
þið ekki til að gera við símann
minn í gær?
- Við hringdum til að segja
að við ætluðum að koma en
það svaraði enginn. Þá héldum
við að enginn væri heima ...
Maður nokkur hljóp sem
óður væri til að ná ferj-
unni. Hann stökk af
bryggjunni - og komst
naumlega inn fyrir borð-
stokkinn.
- Það er naumast þér
liggur á! sagði háseti. Þú
hefðir nú getað beðið þar
til við legðum að bryggj-
unni!
4 0 Æ S K A N