Æskan - 01.01.1993, Qupperneq 50
„Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðarbraut,
enminning þess víst skal þóvaka.“
V.B.
r
Eg vil byrja nýtt ár á því að
óska ykkur öllum gæfuríks
komandi árs. Nú er enn eitt
árið liðið og allt það sem við höfð-
umst að í fyrra er einungis til í
myndabók fortíðarinnar.
Upphafsorðin eru úr þekktum
sálmi eftir Valdimar Briem. Hann
er sunginn í upphafi hvers árs í
sjónvarpi, útvarpi og kirkjum
landsins. Já, árið er liðið og það
kemur aldrei til baka en allt það
sem við gerðum stendur skráð í
lífsins bók.
Lífinu hefur verið líkt við lestur
góðrar bókar. Heimskur maður les
hana hratt og ilia en hygginn mað-
ur les hana vel og gaumgæfilega
því að hann veit að hann fær ein-
ungis eitt tækifæri til að lesa hana.
Besti dagurinn í lífi þínu er ef til vill
dagurinn í dag. Notaður hann því
vel.
[ þessu blaði fáum við að kynn-
ast Kim sem var mjög glöggur og
eftirtektarsaamur og það reyndist
honum oft vel.
ÆVINTÝRI KIMS ■■■■■
Saga Rudyards Kiplings um
Kim er ágætt dæmi um hvað skáti
getur afrekað. Kim eða Kimball
O’Hara, eins og hann hét fullu
nafni, var sonur liðþjáifa við írska
herdeild í Indlandi. Hann missti
foreldra sína barn að aldri en var
falinn umsjá móðursystur sinnar.
Leiksystkini hans voru börn
þarlendra manna og því lærði
hann að tala mál þeirra og kynnt-
ist venjum þeirra. Kim tók ást-
fóstri við farandprest einn og ferð-
aðist með honum um allt norðan-
vert Indland.
Dag nokkurn bar svo við að
hann rakst af tilviljun á herdeild þá
er faðir hans hafði starfað við.
Deildin var á hergöngu en þegar
Kim fór til að heilsa upp á her-
mennina í búðunum var hann
handtekinn, grunaður um þjófnað.
Skírnarvottorð hans og önnur skjöl
fundust á honum og þegar kom úr
kafinu að hann var einn úr þeirra
hópi tóku þeir hann að sér og
komu honum til mennta. En í hvert
skipti sem Kim fékk frí klæddi
hann sig að hætti Indverja og um-
gekkst þá eins og hann væri einn
úr þeirra hópi.
Áður en langt um leið komst
Kim í kynni við mann einn er Lurg-
an hét og verslaði hann með
gamla skartgripi og aðra sjaldséða
muni. Lurgan þessi, sem var þaul-
kunnugur þarlendum mönnum,
var líka í njósnadeild stjórnarinnar.
Þegar hann komst að raun um
að Kim var gagnkunnugur venjum
og háttum Indverja sá hann að
hann gat orðið leyniþjónustunni til
mikils gagns. Þess vegna fór hann
að þjálfa athyglis- og minnisgáfur
piltsins en slíkt er mjög mikils-
verður liður í þjálfun njósnara
(herskáta).
ÞJÁLFUN KIMS -—i
Lurgan byrjaði á því að sýna
Kim fullt trog af dýrmætum stein-
um ýmissa tegunda. Hann lofaði
honum að horfa á þá í eina mín-
útu, breiddi svo dúk yfir trogið og
sagði honum að geta sér til um
hve steinarnir væru margir og
hverrar tegundar. í fyrstu gat Kim
aðeins munað fáar tegundir og
ekki lýst þeim ýkja nákvæmlega en
að fenginni dálítilli reynslu mundi
hann allt með ágætum. Og sama
var að segja um ýmislegt annað
sem honum var sýnt í þessu skyni.
Eftir mikla, alhliða þjálfun kom
að því að Kim var skipaður í leyni-
þjónustuna og fékk leynimerki -
nefnilega spjald eða nisti sem bera
átti um hálsinn og kenniorð sem
sannaði að hann væri í leynilög-
reglunni ef sagt var á vissan hátt.
(Úr bókinni Skátahreyfingunni
eftir Bade Powell)
KIMSLEIKIR —■
Til eru ýmiss konar athyglisleik-
ir sem skátar kalla einu nafni
Kimsleiki. Hér eru tveir þeirra:
HVAÐA HLUTIR? —
Nokkrir ólíkir hlutir eru settir á
borð og dúkur breiddur yfir. Þátt-
takendur fá síðan að skoða hlutina
í 30 sekúndur. Síðan er breitt yfir
hlutina á ný. Þátttakendur fá nú 3-
5 mínútur til að skrifa hjá sér
hvaða hluti þeir sáu. Þennan leik
er hægt að nota hvort sem er sem
keppni milli einstaklinga eða
flokka.
HVAÐ HEFUR BREYST?"
Fjórir skátar / fundarmenn eru
látnir fara fram (út af fundinum)
og breyta sér, til dæmis skipta á
fötum, breyta um hárgreiðslu
o.s.frv. Síðan koma þeir inn aftur
og hinir skátarnir/fundarmennirnir
segja hvað hefur breyst.
S 4 Æ S K A N