Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1993, Síða 56

Æskan - 01.01.1993, Síða 56
Jordan notaði sama skólabíl og Donnie en hann var samt meira með Mark, yngri bróður hans (Marky Mark). Þeir voru og eru góðir vinir og mikið saman. Donni skipti sér ekki mikið af Jordan. En hann var vanur að ganga beint að honum í skólabílnum, klípa í kinn- arnar á honum og segja: „Ó, Jordan, þú ert svo sætur!“ Jordan byrjaði sex ára að syngja með kirkjukórnum. Hann þurfti ekki að taka inntökupróf af því að kórstjórinn, Herb Petersen, var góður vinur Knight-fjölskyld- unnar og hann vissi að strákur gat sungið. Dag einn þegar Jordan var úti á götu með nokkrum vinum sínum kallaði Donni í hann. Þeir höfðu ekki talað saman frá því í grunn- skóla. Donni spurði hvort hann hefði áhuga á að fara í söngpróf hjá manni sem héti Maurice Starr (en hann var þekktur í Boston). Hann væri að leita að ungum og efnilegum strákum í hljómsveit. Jordan var fyrst í vafa en tók þó boðinu. Maurice lét hann syngja lagið „Be My Girl,“ (Verfu stúlkan mín). Og viti menn: Hann komst að! Salóme Sigurðardóttir, Bolungarvík: GAMALT OG NÝTT JORDAN KNIGHT fæddist 17. maí 1970 í sjúkra- húsinu í Worchester í Massachu- settsríki. Hann átti fyrst heima hjá fjölskyldu sinni í Westwood, hverfi í Boston. Móður hans, Marlene, langaði til að eitt barna hennar bæri nafn sem sameinaði hin tvö opinberu tungumál Kanada (þaðan sem hún er ættuð), ensku og frönsku. Hann var sjötta barnið í fjölskyldunni. Hin báru öll ensk nöfn. Hann var því skírður Jordan Nathaniel Marcel Knight. Jordan var mjög tengdur systk- inum sínum, leitaði t.d. alltaf til Jónatans ef hann fann til einmana- leika. Þegar hann var mjög ungur var hann mikið með Davíð - og einnig um tíu ára aldur. Þeir léku knattspyrnu saman og hlustuðu á sömu tónlist. Þegar hann varð tólf ára fór hann að vera meira með Kristófer. Þeir áttu sömu vini og mörg sameiginleg áhugamál. Jordan er að eðlisfari líkur Alli- son systur sinni. Þau eru bæði dá- lítið feimin. En þegar hann stígur á svið fyrir framan 15.000 manns framkvæmir hann allt sem honum dettur í hug - án þess að hugsa fyrst. Hann var tiltölulega lágvaxinn á yngri árum. Margir segja að hann hafi litið út eins og stelpa; með sítt, hrokkið hár og bollukinnar. Þegar hann kom í verslanir vissi fólk stundum ekki hvort það átti að kalla hann strák eða stelpu! Öll Knight-fjölskyldan hefurver- ið í W.M. Trotter grunnskólanum í Roxbury. í honum er nemendur af öllum kynþáttum - eins og mörg- um skólum í Boston. Jordan segir að það skipti hann ekki neinu máli af hvaða kynþætti þeir eru sem hann umgengst. Kristófer uppeld- isbróðir hans er blökkumaður. 6 0 Æ S K A N

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.