Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1993, Blaðsíða 20

Æskan - 01.04.1993, Blaðsíða 20
ÆSKU PÓSTUR Pósthólf 523 - 121 Reykjavík Af> SVARA BRÉFUM Kæri Æskupóstur! Fyrst vil ég þakka fyrir gott blað. Mig langar til að biðja þig að birta þetta: Mér finnst að krakkarnir, sem senda bréf í pennavinadálkinn, eigi að svara manni þegar maður skrif- ar þeim. Ég hélt að þeir væru að leita að pennavinum. Ég hef skrif- að mörgum en enginn hefur sent bréf til baka. Ég vil líka biðja um veggmynd af Whitney Houston og fróðleiksmola um hana. Ein sem kvartar. Svar: Við tökum undir áskorun þína um að bréfum sé svarað. Það er almenn kurteisi sem við vonum að allir sýni. Það gildir lika þó að sá sem óskaði eftir penna- vinum hafi þegar eignast svo marga sem hann vill skrifast á við. Þá segir hann einungis frá því - og þakkar fyrir bréfið! Fimm ár eru siðan veggmynd af Whitney fylgdi Æskunni. Að undanförnu hafa borist mjög margar beiðnir um slika mynd. Við ákváðum að verða við þeim. Hér er líka heimilisfang eins af aðdáendaklúbbum hennar: Whitney Houston - c/o Ariola, Steinhauser Str. 3 - 8000 Miinchen 80, Þýskalandi. Af> NOTA ALLTAF HJÁLM Kæra Æska! Mig langar til að segja þér dálít- ið og vona að allir læri af því. Það var sunnudagur. Klukkan var hálfsjö að kvöldi. Ég var að koma úr ferðalagi. Ég leit út um gluggann og sá að vinkonur mín- ar voru að hjóla niður nýja veginn. Þær höfðu skipt um hjól. Þær voru níu og tíu ára. Stuttu seinna hringdi síminn. Mér var sagt að önnur þeirra hefði dottið af hjólinu, fótbrotnað og meiðst á höfði. Næsta dag var sagt frá því í skólanum að hún væri illa slösuð. Að kvöldi þriðja dagsins var hringt heim og sagt að hún væri dáin. Ég sakna hennar afar sárt. Ég skora á alla sem eru á reið- hjólum að nota olnbogahlífar, fóta- hlífar og ekki má gleyma hjálmin- um sem er alltaf nauðsynlegur. Drön. EKKI ALLTAF SÖNGVARA Kæra Æska! Verða þættirnir, Leiðin til Avon- lea, sýndir aftur í sjónvarpinu? Viltu birta veggmynd af Söru Polley leikkonu? Ég er mikill að- dáandi hennar. Viltu hafa veggmyndir þannig að ekki séu alltaf söngvarar á þeim? Adam og Eva er skemmtileg teiknimyndasaga. Þökk fyrir gott blað. Andrésína. Svar: Ný þáttaröð hefur göngu sína í sjónvarpinu 4. júli nk. Þá verða sýndir 12 þættir. Fjórði hlutinn verður væntanlega á dagskrá síðar - en ekki hefur verið ákveðið hvenær. Verið er að kvikmynda hann. Við getum ekki lofað að birta veggmynd af Söru - en geym- um bréfið. Á veggmyndunum eru ekki alltaf söngvarar - en oft eru á þeim hljómlistarmenn því að mest er beðið um myndir af þeim. PENNAVINIR A CRÆNLANDI Kæri Æskupóstur! Er Æskan hætt að hafa leikara- kynningu? Vonandi ekki! Ég vil spyrja lesendur Æskunn- ar hvort þeir þekki ekki einhverja grænlenska krakka sem vildu skrif- ast á við mig. Ef svo er, skrifið mér þá! Lilja Arnlaugsdóttir, Háengi 5, 800 Selfossi. Svar: Þú hefur eflaust þegar lesið þáttinn Leikarakynningu í 3. tbl. 1993 - og kannski í þessu blaði lika. Hér er einnig sagt frá leik- urum - eins og oftast er iÆsku- pósti... EKKI ÞESSI STÍCVÉL Halló, kæra Æska! Getur þú ekki birt fleiri vegg- myndir af Queen og Bítlunum en fylgt hafa blaðinu? Ég sendi þér líka skrýtlu: Óli litli kom grátandi til kennar- ans að lokinni kennslustund og sagði að einhver hefði tekið stíg- vélin sín. Kennarinn fór fram og leitaði en fann einungis ein stígvél. „Ertu alveg viss um að þú eigir ekki þessi stígvél, Óli minn?“ spurði hann. „Já, mín stígvél voru snjóug þegar ég kom,“ sagði Óli. Hermundur. Svar: Við látum þær veggmyndir nægja að sinni. - Þökk fyrir skrýtluna. % $ m- 65 EYÞOR OC KNATTSPYRNU- FÉLÖC Kæra Æska! Þökk fyrir skemmtilegt blað. Væri hægt að fá veggmynd af Ey- þóri Arnalds eða viðtal við hann? Getur þú sagt mér hver eru heimilisföng aödáendaklúbba knattsþyrnufélaganna Inter Milan á Ítalíu og Monaco í Frakklandi? Þorsteinn. Elsku besti Æskupóstur! Getur þú sagt mér hvort til er aðdáendaklúbbur Marco van Bastens, hollenska landsliðsins í knattspyrnu og ítalska liðsins AC Milan? Einlœgur aðdáandi van Bastens. Svör: Eyþór var ásamt félögum sín- um i Todmoþile á veggmynd sem fylgdi 1. tbl. 1992. Beiðni um viðtal verður höfð i huga. Við höfum fengið skrá yfir heimilisföng fyrstu deildar knatt- spyrnufélaga í Evrópu 1992- 1993. Vonandi svarar starfsfólk þeirra spurningum um aðdá- endaklúbba. Internazionale Milano F.C., Piazza Duse 1, 1-20122 Milano,ítalíu. A.S. Monaco - Stade Louis II, 7, av. des Castellans, MC- 98000 Mónakó. A.C. Milan, - Via Turati 3, 1-20121, Milano, Ítalíu. Hér fylgja póstföng nokkurra annarra vinsælla liða... R.S.C. Anderlecht, Monsieur Roger Vanden Stock, Av. Théo Verbeeck 2, B-1070 Bruxelles, Belgíu. Manchester United - Old Trafford, GB-Manchester M16 ORA, Englandi. Arsenal - Arsenal Stadium, Highbury, GB-London N5 1BU, Englandi. Aston Villa- Villa Park, Trinity Road, GB-Birmingham B6 6HE, Englandi. VfB Stuttgart, Mercedes- strasse 109, W-7000 Stuttgart 50, Þýskalandi. FC Bayern Munchen - Sábener Str. 51, W-8000 Múnchen 90, Þýskalandi. Real Madrid C.F. -Av. Concha Espina 1, E-28036 Madrid, Spáni. F.C. Barcelona - Arístides Maillol s/n, E-08028 Barcelona, Spáni. Juventus F.B.C. - Piazza Cri- mea 7,1-10131 Torino, italíu. ALÞJODLEG SVARMERKI Sæll, Æskupóstur! Viltu birta eitthvað með Charlie Sheen, Sean Astin og Andrew Shue. Eru til aðdáendaklúbbar 2 0 Æ S K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.