Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1993, Síða 38

Æskan - 01.04.1993, Síða 38
Fyrsta islenska „súpergrúppan", Trúbrot, árið 1969. Talið frá vinstri: Kari Sighvatsson (siðar hljómborðsleikari Náttúru, Þokkabótar, Þursaflokksins og Mannakorna), Shady Owens (síðar söngkona með Náttúru og hljómsveit söngvarans Stings, Police), Gunnar Þórðarson (siðar gitarleikari Sléttuúlf- anna), Rúnar Júliusson (síðar bassaleikari og söngvari G.C.D) og Gunnar Jökull (síðar trymbill Mána frá Selfossi). ^ Q(Í7 færðu bandaríski I £20 / gítarsnillingurinn Jimi Hendrix (búsettur í Englandi), enska djass-rokksveitin „Soft Machine" og fleiri áherslupunkt- inn frá laglínu og söng yfir til flók- ins hljóðfæraleiks. Með Jimi Hendrix varð til ný tegund poppstjörnu. Jimi var það sem kallaðist gítarhetja. Þunga- rokksblús hans byggðist á löng- um gítareinleik umfram annað. Jimi var fyrsta stórstjarnan á tímum rokksins sem gerði út á hljóðfæraleik fremur en söng. Þó að Jimi væri frumkvöðull á þessu sviði þá var þetta þróunin í enska takt-blúsnum. Áherslan var að fær- ast yfir á hljóðfæraleik snjallra hljóðfæraleikara. Munurinn var sá að hljóðfæraleikarar ensku hljóm- sveitanna skilgreindu sig sem und- irleikara. Jimi skilgreindi sig sem framvörð. Hann var einleikarinn. Hinir í tríói hans, Jimi Hendrix Ex- perience, voru undirleikarar hans, enskur trymbill og enskur bassa- leikari. Snjallir hljóðfæraleikarar urðu brátt eftirsóttari en góðir söngv- arar. „Súpergrúppur" tóku að spretta upp en svo kölluðust hljómsveitir sem í voru bestu hljóð- færaleikarar hvers lands eða svæðis. Áður urðu hljómsveitir til í kunn- ingjahópi, innan skóla eða bæjar- hluta o.s.frv. Skilyrðið var aðeins að söngvarinn væri frambærilegur. Hljóðfæraleikurinn skipti ekki jafn- miklu máli. En í kjölfar ofurvin- sælda Jimis Hendrix og fleiri fingrafimra hljóðfæraleikara sner- ist þetta við. Hérlendis varð hljómsveitin Trú- brot til undir þessum formerkjum. Færustu hljóðfæraleikararnir úr keflvísku hljómsveitinni Hljómum og reykvísku hljómsveitinni Flowers sameinuðust ÍTrúbroti. Afbrigði af þessari þróun birt- ust einnig í hljómsveitunum Nátt- úru og endurreistum Óðmönnum. Á plötutvennu Óðmanna, sam- nefndri hljómsveitinni, var ein af fjórum plötuhliðum lögð undir teygðan og togaðan spuna þar sem gítareinleikur og trommuein- leikur skiptust á án eiginlegrar lag- línu. Slík spunaverk án söngs voru mjög algeng á hippaárunum en hurfu með hippamenningunni. UMSJÓN: JENS KR. GUÐMUNDSSON 25. HLUTI FRAMHALD mnmdinpopp „Ó, reiðhjól, best þú rennur utan stans, jafn rennilegt að aftan sem að framan. Þú varst stolt hins þýska verkamanns, sem þreyttum höndum skrúfaði þig saman ...“ Eitthvað á þessa leið hljóðar upphaf vinsæls dægurlagatexta frá áttunda áratugnum eftir Þórar- in Eldjárn. Flytjandi var hljómsveit- in Þokkabót. (( henni voru m.a. Ingólfur Steinsson, bróðir Heimis útvarpsstjóra, Gylfi Gunnarsson, faðir Ingunnar Gylfadóttur sem söng tvö lög í Söngvakeppni sjón- varpsins 1993, Magnús Einarsson og Leifur Hauksson dagskrárgerð- armenn Rásar 2 og Sighvatssyn- irnir, Sigurjón kvikmyndaframleið- andi í Bandaríkjum Norður-Amer- íku - hann framleiddi t.a.m. kvik- myndina um Madonnu og mynd- bönd með U2 o.fl. - og Karl Jó- hann sem lést í bílslysi fyrir tveim- ur árum). Þetta er eitt af mörgum dæmum þar sem reiðhjól er til umfjöllunar í dægurlagatextum. Annað dæmi um slíkt er sönglag Ómars Ragn- arssonar um Óla sem fór að hjóla upp holt og hóla að læknisráði. Lag Ómars naut vinsælda á sjö- unda áratugnum. í alþjóðapoppinu hefur enska rokkhljómsveitin Queen náð best- um árangri með sönglagi um reið- hjól. Lagið hejtir “Bicycle Race“ (Hjólreiðakeppni). Það komst í 11. sæti breska vinsældalistans 1978. Reiðhjól koma reyndar víðar inn í rokksöguna en í söngtextum. Þannig voru hjólreiðar Karls J. Sig- hvatssonar eitt af táknum hippa- menningarinnar um 1970. Karl var þá frægasti orgelleikari rokksins. Frábær orgelleikur hans setti sterk- an svip á músík helstu rokkhljóm- sveita landsins, m.a. Flowers, Trú- brots og Náttúru. Það varð mörgum til eftirbreytni að sjá síðhært poppgoðið hjóla um götur höfuðborgarinnar á góð- viðrisdögum. Þetta féll einkar vel að blæ hippaáranna. Hjólreiðar poppstjarna eru reyndar ekki bundnar hippaárun- um. Þegar bandaríski (Djóðlaga- rokkarinn Bob Dylan hélt hljóm- leika hérlendis fyrir nokkrum árum vakti margt í fari hans undrun. Eitt af því var að hann kom til hljóm- leikanna á reiðhjóli! Hljómsveitin Queen samdi vinsælt hljólreiðalag, „Bicycle Race". Þessi mynd er aftur á móti úr myndbandi við lagið „Slightly Mad“. Trommu- leikari “Queen situr á reiðhjólinu. Freddie Mercury stendur þar hjá. 4 2 ÆSKAN

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.