Æskan - 01.04.1993, Blaðsíða 42
HEÐAN
OG
ÞAÐAN
Honum fannst líklegt að afla
mætti þeim vinsælda og
skömmu síðar kom hann því í
kring að gerður var við þá
plötusamningur. Reyndar
munu þeir hafa þurft að æfa
sig í ein tvö ár áður en hljóm-
plata var gerð. Það var smá-
skífa og á henni var lagið
Stökktu. Síðar var gerð plata
með því lagi og fleirum,
„Totally crossed out“. Þær
LITLIR HETTUSTRAKAR!
Við höfum áður sagt frá
drengjunum í rabb-sveit-
inni Kris Kross, þeim Chris
Smith og Chris Kelly (7. og 9.
tbl. 1992) Við bætum litlu einu
við að beiðni aðdáenda:
Þeir félagar hittu eitt sinn í
stórmarkaði 19 ára pilt að
nafni Jermaine Dupri og rabb-
sveit sem hann hafði á sínum
snærum. Þeir báðu einn rabb-
arann um eiginhandaráritun
og spjölluðu litla stund við
hópinn. Jermaine spurði hvort
þeir kynnu rabb-söng og þeir
svöruðu því játandi - boru-
brattir eins og þeir jafnan eru.
komust báðar í efsta sæti
bandaríska vinsældalistans.
Sú seinni var fyrsta stóra byrj-
endaplatan sem komst svo
hátt á skömmum tíma - á tutt-
ugu ára tímabili.
Strákarnir segjast vera afar
svalir! Þeir snúa sífellt út úr í
viðtölum og svara út í hött. Þó
setja þeirsér nokkur mörk:
„Við bölvum ekki í rabbinu -
þó að það eigi að vera
harðsoðið og lýsa raunveru-
leikanum. Sumir krakkar á ald-
ur við okkur bölva en við vilj-
um það ekki. Við erum já-
kvæðir rabbarar."
Foreldrar þeirra eru oft með
Chris Kelly (t. v.) og Chris Smith = Kris Kross Mynú: Pressens Bild/Niclas
Hammarström
þeim á söngferðalögum. En
þeir fá ekki að vera með á
myndum. Strákarnir segja að
þeir sýnist þá ekki lengur sval-
ir! Þeim finnst hins vegar svalt
að viðurkenna að þeir séu eins
og hverjir aðrir strákar þó að
þeir hafi orðið vinsælir. Lagið
„Li’l boys in da hood“ (=
„Little boys in the hood“) er
um þá sjálfa. Heitið má skilja á
tvo vegu: Litlu strákarnir í
hverfinu (..skemmtana-iðnað-
inum (hood = neighbourhood
= nágrenni)) - og - Litlu strák-
arnir með hetturnar.
Þeim finnst stærðfræði
skemmtilegasta námsgreinin.
í gamni segjast þeir verða að
geta reiknað út hvernig eigi að
skipta peningunum sem þeir
vinna sér inn!
Þeir komu fram til „upphit-
unar“ þegar Mikjáll Jackson
fór í hljómleikaferð um Evrópu
í fyrra og hafa verið með hon-
um á myndbandi. Nú er eftir
að vita hvort vinsældirnar end-
ast!
(Heimild: Tímaritin EOS og
Kamratposten)
HETJA
HVERSDAGS-
LEIKANS
113. tölublaði sænska blaðs-
ins Kamratposten 1992 (út-
gáfudagur 13. september) var
sagt frá 13 ára dreng, Karli
Saler. Hann hefur verið skor-
inn upp mörgum sinnum til að
fjarlægja krabbameins-æxli.
Þegar hann var sex ára
vaknaði hann eina nóttina við
sáran sting. Læknarnir héldu
fyrst að hann væri með
lungnabólgu. En við skoðun
fundu þeir æxli við annað
lungað.
„Mér var sagt að ég væri
með krabbamein og myndi ef
til vill deyja af því. En ég ákvað
að ég vildi ekki deyja. Ég skyldi
bíta á jaxlinn og berjast."
Það hefur hann sannarlega
gert. Undanfarin sjö ár hefur
hann nokkrum sinnum verið
skorinn upp til að fjarlægja
nýjar meinsemdir. Hann hefur
líka orðið að taka inn sterk lyf
og farið í geislameðferð. Hann
hefur stundað námið af kappi
milli aðgerða en varð að fara
aftur í þriðja bekk af því að
hann missti svo mikið úr
kennslu fyrri veturinn í bekkn-
um.
Karl Saler. - Ljósmynd Bosse
Johansson.
í fyrra gat hann ekki sótt
skóla um langa hríð. En hann
kom þegar skólanum var slit-
ið. Þá höfðu bekkjarfélagar
hans safnað peningum og
keypt handa honum leikja-
tölvu.
„Bróðir minn verður stund-
um öfundsjúkur þegar ég fæ
gjafir. En ég segi honum að
hann eigi að gleðjast yfir að
vera heilbrigður."
Karl hefur misst allt hárið
tvisvar sinnum vegna geislun-
ar. Þá hefur hann notað húfu.
„í fyrra skiptið, sem það
gerðist, var ég í þriðja bekk.
Þá komu nokkrir sjöttu-bekk-
ingar, stríddu mér og tóku
húfuna. Daginn eftir komu allir
bekkjarfélagar mínir með húf-
ur.“
Eftir nokkra mánuði verður
hann að fara aftur á sjúkrahús-
ið til að láta athuga hvort ný
æxli hafa myndast.
„En ég er ekki alltaf að
hugsa um að ég hafi verið
með krabbamein. Nú er ég
heilbrigður."
4 6 Æ S K A N