Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.04.1993, Qupperneq 44

Æskan - 01.04.1993, Qupperneq 44
% » Ki á0Bék 'Kr UNGLINGABÆKUR Kæri þáttur! Fimmtán áro strákur skrifaði í þættinum í 2. tölublaði. Hann sagði að íslenskar unglingabækur væru svo einfaldar að vandamál- in væru aðallega í sambandi við hitt kynið og vinina en lítið af per- sónulegum vandamálum. Ég er algjörlega á móti þessu. Mér finnst íslenskar unglingabæk- ur mjög skemmtilegar og í næst- um öllum þeirra er að finna það sem ég kalla „persónuleg vandamál". Ég er sammála því að flestar bækurnar eru um eitthvað sem tengist hinu kyninu en það er einmitt það sem flestir unglingar hugsa mest um. Á unglingsárum er líka oft mikið um vandamál í sambandi við vinina. Ég skil ekki alveg hvað þessi strákur á við þegar hann segir að þetta séu ekki persónuleg vandamál því að í mínum augum er þetta eins persónu- legt og það getur orðið. Eru til- finningar ekki eitt það per- sónulegasta sem manneskjan á? 1979. SAMMÁLA TVEIM MEÐ VINSEMD í HUGA Kæra Æska! Ég var að lesa 2. tbl. Æskunnar 1993. Ég er alveg sammála stelp- unum tveim sem kalla sig Tvær með vinsemd í huga. Það reykja og drekka allt of margir unglingar. Ég er í bekk með strák sem byrjaði að reykja þegar hann var tíu ára. Hann var sjálfsagt að herma eftir bróður sínum sem er tveimur árum eldri en við. Hann reykir og drekkur. Ég vona að einhverjir hætti þessu. Það er bara barnaskapur að halda að það sé „töff" að klæða sig illa, reykja og drekka. Vonandi fara þeir sem eru að þessu að sjá þetta í réttu ljósi. Ein sem vill gera eitthvað í þessu. ÓSAMMÁLA TVEIM MEÐ VINSEMD í HUGA Kæra Æska! Ég las bréf frá tveimur stelpum á sama aldri og ég - í þættinum Mér finnst - ég tel - ég vil. Ég tel að þær hafi dálítið rangt fyrir sér. Fyrst má nefna þetta með fötin. Ég veit að margar stelpur ganga núna í gammosíubuxum, sokka- buxum eða einhverju slíku en flestar eru í Kraft- eða Max-kulda- göllum á veturna, kuldaúlpum eða vaxjökkum og það ætti nú að vera nóg. Fólk má klæða sig eftir tískunni. Svo er þetta með kynlífið. Margir krakkar eru farnir að stunda það, jafnvel 13-14 ára. Ég er ekki að meina alla krakka. En ég skil ekki að verið sé að spilla sér með hinu kyninu. Þetta er fornaldar-hugs- unarháttur. Það má fá einhverja sælu út úr lífinu. Það er alls ekki til að sýnast svalur. Þær tala líka um að vinsælir krakkar og aðrir sem vilja verða vinsælir séu að saka einhverja um að hafa svikið sig þó að þeir hafi ekki gert það. Það er eitthvert mesta bull sem ég hef heyrt. Það gerir enginn sem ég þekki og ekki meira um það. Loks um reykingar og áfengi. Flestir krakkar sem ég veit um og drekka og reykja gera það ekki til að sýnast „töff" heldur til að mótmæla fullorðnum og til að vera á móti áróðri. Það er líka mörgum sama þótt þeir séu að eyðileggja líkamann. Fyrir suma er engin framtíð. Kannski halda þessir krakkar líka að áróðurinn sé bull. Já, það er eitt sem mig langar að tala um. Það er farið vitlaust að þegar áróður er rekinn. Það á að fræða meira um líkamlegan skaða sem reykingar og áfengi valda ekki láta eins og það sé bannað. Það veldur öfugum áhrif- um. Ein sem veit mikiö um þetta. 4 8 Æ S K A N

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.