Æskan - 01.04.1993, Page 57
ofbeldi í myndunum. Skyldi Macaulay
ekki vera smeykur um að hann kenni
börnum að beita því?
„Alls ekki! Ég er viss um að allir
krakkar á mínum aldri eru nógu skýrir
(skynugir) til að vita að slíkt gerir maður
ekki. Það voru auðvitað ekki
rauverulegir tígulsteinar sem ég kastaði.
Það voru bara gúmmístykki.
Ég myndi aldrei fara þannig að -
jafnvel ekki þó að þjófar eltu mig."
í nýjustu myndinni sést Kevin læsa
sig niður reipi frá fjórðu hæð í húsi og
hlaupa fyrir strætisvagn á götu.
„Það var áhættuleikari sem lék þetta -
og ýmislegt annað. Ég fæ ekki að taka
neina áhættu þó að ég vildi það sjálfur. “
FÆR ENGA VASAPENINGA!
Hann fékk 250 milljónir fyrir að leika í
Aleinum í Nýju Jórvík. Það ætti að nægja
til að hafa alltaf einhverja vasapeninga!
„Foreldrar mínir leggja í banka alla
peninga sem ég vinn mér inn. Seinna
nota ég hluta af þeim til að borga fyrir
framhaldsnám. (- í Bandaríkjunum er
það mjög dýrt í góðum og vinsælum
skólum). Þegar ég eldist ákveð ég hvað
ég geri við það sem eftir verður.
Ef mig langartil að kaupa eitthvað bið
ég foreldra mína um peninga. En ég
kaupi ekki margt. Það er þá helst ís -
eftirlæti mitt er banana-ís - dálítið af
sælgæti og tölvuleikjum.”
Macaulay hefur þegar verið ráðinn til
að leika í nýrri kvikmynd. Hún nefnist
Góði sonurinn (The Good Son) - og er
spennumynd. Hann leikur vondan
strák!
(Stuðst var við grein í sænska blaðinu
Kamratposten. - Texti: Arne Jártelius.
Mynd: Svensk filmindustri).
Macaulay Culkin er um þessar mundir ein þekktasta og
vinsælasta barna-stjarnan í kvikmyndum. Hann er margfaldur
milljónamæringur - en finnst sjálfum að hann sé ósköp
venjulegur tólf ára strákur...
Úr myndinni Aleinn í Nýju Jórvík.
Hann varð heimsþekktur þegar hann
lék Kevin í myndinni Aleinn heima.
Síðan birtist hann í auka-aðalhIutverki í
Stúlkunni minni - og í vetur hefur hann
skemmt ótölulegum fjölda fólks - aleinn
í stórborginni Nýju Jórvík (New York).
„Það var mjög gaman að leika í þeirri
mynd. Mér finnst það eina þreytandi við
kvikmyndaleik að maður þarf alltaf að
bíða lengi milli þess að atriðin eru
mynduð. Núna reyndi ég að nota
tímann til að læra hvernig á að taka upp
hljóð og stjórna myndavélunum.
Kannski verð ég sjálfur leikstjóri einn
góðan veðurdag!"
HEFUR LEIKIÐ í ÁTTA ÁR!
Macaulay hefur þegar lært þó nokkuð
um töku kvikmynda því að hann hefur
verið leikari í átta ár. Fimm undanfarin ár
hefur hann leikið í sjö kvikmyndum.
- Er hægt að vera eins og venjulegur
tólf ára strákur þegar sífellt er staðið í
sviðsljósinu?
„Mér finnst það ekkert sérstakt. Af því
að pabbi er leikari fór ég oft í leikhús
með honum. Ég var svo heppinn að
vera valinn til að leika aðalhlutverkið í
Aleinum heima. En ég er í skóla eins og
allir aðrir þegar ég er ekki að leika. Mér
leiðist stærðfræði, hef mjög gaman að
tölvuleikjum og að fræðast um
risaeðlur!"
Hann á sex systkini...
„Systkini mín eru bestu vinir mínir.
Við rífumst auðvitað stundum en oftast
kemur okkur vel saman. Það eina sem
ég þoli illa er að þau vilja oft vera í
herberginu mínu að leika sér að því sem
ég á. Þá vildi ég helst geta sett slagbrand
fyrir dyrnar!“
- Þá ertu eflaust feginn að losna við
þau þegar þúertaðleika?
„Nei! Mér leiðist að vera lengi í burtu
frá heimilinu. Mamma og pabbi fara
raunar alltaf með mér en systkini mín
eru auðvitað í skólanum. Að vísu lék
Kieran, yngri bróðir minn, lítið hlutverk í
öðrum hluta myndarinnar Aleinn heima
en hin systkini mín sá ég allt of sjaldan."
Gagnrýnendur hafa kvartað yfir
Æ S K A N 6 1