Æskan

Volume

Æskan - 01.05.1994, Page 8

Æskan - 01.05.1994, Page 8
DYREST OKKAR u UNGVIÐI PÝRANNA Við segjum nú frá ungum nokkurra dýrategunda. Frá- sögnin styðst við grein í sænska tímaritinu Kamrat- posten. Flestar dýrategundir á norðlægum slóðum ala unga sína á vorin. Það er engin tilviljun. Þessu er öllu stjórnað af náttúrunni. Sá tími hentar best því að þá vaknar allt af dvala með hækkandi sól. Ungarnir vaxa og dafna á hlýjasta tíma ársins og eru orðnir stórir og státnir á haustin, til- búnir til að takast á við kólnandi tíð þegar erfitt verður að afla fæðu. Á sléttum Afríku eru dagarnir alltaf álíka langir. Sebrahestar og önnur dýr þar um slóðir eiga unga sína þegar von er fæðu eftir tímabil þegar lítið er að fá. Þess vegna svelta starfsmenn dýragarða tegundir þaðan til þess að stjórna því hvenær þær fæða afkvæmi sín. Þegar vorar má sjá marga fallega unga í dýragörðum á Norðurlöndum. Þá er líka mest aðsókn að þeim. Það er ekkert skrýtið. Krakkar vilja gjarna fylgjast með öðrum „krökkum" - og toga foreldra sína með. (Greinin í Kamratposten er skrifuð af Karin Enge. Ljósmyndir: Ina Agency, Christer Fredriksson og Stefan Lundgren- Naturbild). DÁDÝR Afkvæmi dádýra kallast kálfar. Ef þau heyra hljóð, sem þau ekki Kvendýrið, sem nefnist hind, felur þá þekkja, taka þau þegar á rás. Mæð- í háu grasi meðan þeir eru mjög litlir. urnar kenna ungunum hvað ber að Síðar fá þeir að fylgja henni eftir. varast og hræðast. Dádýrskálfar, Hindin gætir unga síns vel og kemur sem hafa misst móður sína og eru strax á vettvang ef einhver nálgast aldir upp af fólki, óttast ekkert! Eng- hann. inn hefur „sagt“ þeim frá hættunum Dádýr eru stygg og sífellt á verði. Með rananum getur fíllinn borið hluti, troðið fæðu í munninn, sprautað vatni, gefið frá sér hljóð ... Lítill fíll verður að læra að nota ranann eins og börn fingur sína. í rananum eru engin bein, einungis vöðvar. 8 Æ S K A N

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.