Æskan - 01.05.1994, Page 16
- Hvað gerir þú helst í tómstund-
um?
„Ég fer oft að veiða silung og lax
með pabba, afa og Ingvari föður-
bróður mínum.“
- Hafið þið veitt víða?
„Já, við höfum prófað á nokkuð
mörgum stöðum en mest verið í
Soginu. Afi hefur veitt mikið þar.“
- Áttu fleiri áhugamál?
„Já, ég hef farið á tvö gítarnám-
skeið í Nýja gítarskólanum og lært á
rafmagnsgítar. Ég held ég fari aftur
næsta vetur. Við spilum stundum
saman heima. Pabbi leikur á
kassagítar, flautu og klarínett og
Ingvar líka á gítar.“
- í hvaða skóla ertu?
„Vesturbæjarskóla."
- Hvað þykir þér skemmtilegast
að læra?
„Smíðar, leikfimi og stærðfræði."
- Þú ert nýkominn úr sumarbúð-
um. Hvaðan?
„Frá Úlfljótsvatni. Ég fór þangað
líka í fyrra.“
- Býstu við að ferðast eitthvað í
sumar, annað en til að veiða?
„Já, við fjölskyldan höfum farið í
eitt langt ferðalag um hálendið á
hverju sumri, oftast með einhverjum
öðrum sem líka eru á jeppa. Það er
gott að hafa samflot þegar farið er
um þær slóðir."
- Hefur þú farið um útlönd?
„Já, dálítið. Ég átti heima í Dan-
mörku í fimm ár, eins til sex ára. For-
eldrar mínir voru að læra þar. Þegar
ég var sjö ára fórum við þangað til
að hitta vini okkar. Seinna fórum við
til Noregs og Danmerkur. Frændfólk
mitt á heima á eyju rétt hjá Molde í
Noregi."
Ég þakka krökkunum fyrir spjallið.
Kannski eiga þeir eftir að láta að sér
kveða á hlaupabrautinni í framtíð-
inni. Að minnsta kosti eru þeir í
flokki efnilegra ungra iþróttamanna
sem „koma í ljós“ víða um land í
þessu þarfa framtaki Landsbankans.
VERDLAUNAHAFAR
I ASKRIFENDAGETRAUN ÆSKUNNAR
Nokkrir þeirra sem heppnir voru í áskrifendagetrauninni tóku við verðlaunum sínum í Reykjavík í vor. Guðrún
Elísabet Ómarsdóttir hreppti leikjatölvu af gerðinni „Sega Mega Drive“ - ásamt tveimur stýripinnum og tveimur
leikjum. Inga Huld Alfreðsdóttir og Eyrún Linnet fengu æfingagalla af tegundinni „Russell Athletic". Guðrún Erla
Sigurðardóttir, Þorkell Pétursson og Gunnar Hilmarsson fengu boli af sömu gerð.
Guðný Danivalsdóttir starfsmaður Japis afhendir leikjatölvuna í versluninni að
Brautarholti 2 i Reykjavik. Systurnar Jóhanna, Guðrún Elisabet og Kristin
Ómarsdætur taka við.
ZZTskeifunni 19iReykjavik
nnrkell ofl Eyrun.
16 Æ S K A N