Æskan - 01.05.1994, Side 17
UNDIRBÚNINGUR FYRIR
ÞDLFIMIKEPPNINA
Kæri Magnús!
Hvernig getur maður undirbúið sig
fyrir þolfimikeppni Æskunnar og „Gallerí
Aerobic Sport“?
Hvernig eru keppnisreglurnar?
Gulli.
Svar:
Best er að byrja á réttu mataræði og
stunda þolfimi, hlaup, sund, körfuknatt-
leik, dans eða að sippa. Síðast en ekki
síst að teygja vel á (gera teygjuæfingar) í
10-15 mínútur, 4-5 sinnum í viku.
Keppnisreglur verða birtar síðar í
Æskunni. En þetta getur þú gert á með-
an:
Reyndu styrktaræfingar sem eru arm-
beygjur, lyftu þér upp á höndum og
hafðu líkamann í vinkil - 90°; há spörk,
hægri, vinstri (gættu þess að hafa fótinn
sem er á gólfi beinan og að hæll nemi
við gólf); hopp, sundur- saman; maga-
æfingar.
Reyndu að búa til góð spor, stökk
eða armbeygjur. Ef keppt er í hópi geta
einstaklingar skipt um stöðu á sviðinu.
Taktu eftirlætislag þitt upp á segul-
band - og miðaðu við tvær mínútur.
Reyndu að hreyfa þig í takt við tónlistina
þann tíma. Heppilegt er að ákveða
hreyfingar sem vara 30 sekúndur í senn
og æfa þær hvað eftir annað þar til þú
ert orðinn ánægður með árangurinn.
0F ÞUNGUR
Magnús!
í 4. tbl. spurði Vongóður hvernig hann
ætti að þyngja sig. En ég þarf að léttast.
Hvernig á ég að fara að? (Ég er fjórtán
ára strákur. Mjög þungur. Ég hef verið
dálítið í fótbolta).
Þungur.
Svar:
Það geta verið margar ástæður fyrir
því að maður er of þungur. Er það vegna
hreyfingarleysis eða er mataræðið ekki
rétt? Hvernig matur er á heimilinu? Er
það hollur og næringarríkur matur eða
mjög fitandi? Ef aðrir í fjölskyldunni eru
einnig of þungir eru miklar líkur á því aö
fæðuvalið sé ekki rétt.
Líkjum líkamanum við bíl. Hann þarf
bensín til að komast áfram. Það er ekki
sama hvernig bensín er sett á hann. Að
ég nú ekki tali um ef sett væri í tankinn
vatn úr einhverjum polli!
Það er hægt að kaupa nýjan bíl ef
hann bilar. En við getum ekki skipt um
líkama! Þess vegna verðum við að ann-
ast hann vel og gæta þess hvað fer ofan
í okkur.
Þegar maður er orðinn of þungur er
oft erfitt að byrja að grenna sig. Byrjaðu
t.d. svona:
Reyndu að borða hollan mat. Þá hef-
ur þú síður lyst á sælgæti og „sjoppu-
fæði“. Fáðu þér mikið af ávöxtum og
drekktu mikið af vatni. Forðastu stórar
máltíðir. Ekki borða seint á kvöldin nema
þá hrökkbrauö og vatn með. Skyr er
góður morgunmatur. Það er ekki fitandi.
Drekktu undanrennu en ekki nýmjólk.
Hættu að drekka gosdrykki. í þeim er
mikill sykur.
Byrjaðu að hreyfa þig og auktu smám
saman við. Gakktu heim úr skólanum og
vinnunni, gakktu upp stiga en slepptu
lyftu. Ef langt er til skóla eða vinnustaðar
skaltu hjóla. Láttu aldrei sækja þig held-
ur komdu þér áfram með eigin vélarafli
(orku).
Stundaðu síðan reglulega einhverja í-
þrótt sem þér finnst skemmtileg, t.d.
tennis, borðtennis eða fjallgöngu - eitt-
hvað sem þú finnur hvatningu í. Slökktu
á tölvunni, a.m.k. í sumar.
Fyrsta vikan verður erfið. Ég veit það.
En þú hefur allt að vinna. Gangi þér vel!
KEMST EKKERT ÚR
SPORUNUM ...
Sæll, Magnús!
Ég var mjög fljót að hlaupa og sæmi-
lega þolin. Nú er ég 13 ára og finnst ég
ekkert komast úr sporunum og strax
verða móð. Ég hef ekki æft hlaup, bara
verið í leikfimi og eitt ár í handbolta (í
hittifyrra). Mig langar að skokka og
kannski æfa einhverjar greinar en hef
mig ekki af stað. Ég hef þyngst dálítið en
ekki mikið. Hvað á ég að gera?
Dimma.
Svar:
Þegar maður nálgast táningsaldurinn
fer maður að þroskast og líkaminn
breytist. Mikil orka fer í að vaxa. Að
koma sér af stað getur oft verið erfiðara
en æfingin sjálf. Þess vegna er nauðsyn-
legt að hafa einhverja hvatningu eða fé-
lagsskap. Taktu vinkonu þína eða for-
eldra með þér.
í byrjun er best að ganga til að auka
þolið. Stundaðu það í nokkrar vikur. Síð-
an géngur þú rösklega og eykur smátt
og smátt hraðann, ferð að skokka eða
hlaupa.
Æfðu þig bæði á stuttum og löngum
vegalengdum. Snerpan kemur með
stuttum sprettum en úthaldið með löng-
um hlaupum.
Stundum er betra að hafa fjölbreytni í
vali á æfingum heldur en iðka alltaf það
sama: Hjóla stundum þrjá kílómetra,
synda 500 metra, hlaupa tíu hringi á velli
eða 6-8 sinnum hundrað metra spretti á
hlaupabraut.
Hringdu í vinkonuna, farðu í íþrótta-
gallann og af stað! Gangi þér vel!
Ég þakka þeim sem senda bréf
og ykkur sem lesið þáttinn. Von-
andi hittumst við í þolfimikeppn-
inni í haust!
Kær kveðja,
Magnús Scheving.
Æ S K A N 17