Æskan

Volume

Æskan - 01.05.1994, Page 20

Æskan - 01.05.1994, Page 20
BIÓDAGAR Nýjasta kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Bíódagar, var frum- sýnd fyrir skömmu. Það er gaman- söm fjölskyldumynd og fjallar um viðburðaríkt sumar í lífi Tómasar sem er tíu ára. Myndin gerist 1964. Þá kynnist drengurinn mörgu sem hann hefur aldrei komist í tæri við fyrr, svo sem draugum, rússneskum njósnur- um, tröllum, álfum, „hinni skríðandi hönd“, kvikmyndaleikaranum Roy Rogers og sjónvarpi... Á þessum tíma voru krakkar úti í leikjum á hverju kvöldi. Allir voru með og það var mikið fjör! í handritinu er stuðst við minning- ar leikstjórans, Friðriks Þórs, frá æskuárum. Það er ritað af honum á- samt Einari Má Guðmundssyni rit- höfundi. Hann varð víðfrægur þegar mynd hans, Börn náttúrunnar, var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda kvikmyndin - og hlaut auk þess margs konar verðlaun og viðurkenningar. Nú þegar hefur verið samið um sýningu á Bíódögum í mörgum lönd- um. Meðal þeirra sem fara með aðal- hlutverkin eru fjórir strákar. Þrír þeir yngri voru valdir úr hópi 300 drengja sem sóttu um að koma fram! Við tókum þá fjóra tali skömmu fyrir frumsýningu myndarinnar... „ROSALEGA SKEMMTILEG MYND“ Örvar Jens Arnarsson leikur aðal- hlutverkið, Tómas. Hann er ellefu ára og á heima í Hafnarfirði, leikur knatt- spyrnu með Haukum. Þegar ég hitti hann kvöld eitt í júní var hann að koma frá því að keppa. Leikurinn hafði raunar tapast en Örvar Jens var ekki óánægður með sinn hlut, hafði skorað eitt mark og „lagt upp“ annað. „Hann var besti maðurinn!" sagði Teitur félagi hans. Ég spurði fyrst hvernig hann hefði dottið í lukkupottinn í fyrra ... „Það var mamma sem kom þessu af stað. Hún spurði hvort ég vildi ekki reyna að fá hlutverk í myndinni. Það var auglýst í blöðum eftir strák- um sem vildu ieika. Ég fór í próf, svo annað og enn fleiri. Síðan æxlaðist þetta svona. Ég man að ég var að horfa á sjónvarpið þegar síminn hringdi og mér var sagt að Frikki vildi að ég léki Tómas.“ - Hafðir þú leikið áður? „Dálítið í skólanum.“ - Hvernig fannst þér að leika í kvikmynd? „Það var stórskrýtið að tala í fyrsta sinn fyrir framan kvikmynda- vél. Ég hélt að margar myndavélar væru notaðar í einu en það var ekki þannig. Langoftast var bara myndað með einni vél en atriðið endurtekið til að taka það frá nokkrum sjónar- hornum." - Þurftir þú að læra langan texta? „Já, ég þurfti að læra rosalega mikið. Við vorum fyrst hálfan mánuð að æfa fyrir sumarið. Þegar byrjað var að taka myndina fór Mæja, Mar- ía Sigurðardóttir aðstoðarleikstjóri, yfir textann með okkur. Hún og Frikki leiðbeindu mér mest.“ -Tók langan tíma að mynda hvert atriði? „Stundum vorum við lengi og stundum stutt. Það fór eftir því hve löng atriðin voru. Sum voru líka tekin mörgum sinnum." - Hve lengi var verið að taka myndina? „Allt sumarið í fyrra.“ - Hvernig heldur þú að þér lítist á að sjá þig á stóru tjaldi? „Ég veit það ekki en þetta er rosalega skemmtileg mynd, mjög 2 0 Æ S K A N

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.