Æskan - 01.05.1994, Page 26
JASON OG GULLNA REIFIÐ
Jason var konungssonur. En frændi hans, Pelías, hafði sölsab undir sig
konungdóm í ríki fööur hans. Kentárinn Chiron ól Jason upp. Hann var
aö hálfu hestur og hálfu maður en bæbi vitur og góðgjarn. Þegar Jason
var fullvaxinn krafðist hann ríkisins eins og hann átti rétt á. Pelías lofabi
að hann fengi hásætið - en með einu skilyrði. Hann átti að fara til fjar-
lægs lands, Colchis, og sækja þangað gullið töfra-reifi. Þess gætti dreki
sem aldrei svaf.
Jason lét þetta ekki skelfa sig og undirbjó þegar ferð sína. Hann lét
smíða geysistórt skip, sem nefnt var Argó, og mannaöi það mestu hetj-
um Grikklands. Þeir héldu víba til að leita ab hinu fjarlæga landi, sem á-
vallt var hulið þoku, og lentu í ótal ævintýrum á leið sinni.
Á strönd nokkurri hittu þeir Phineus, aldinn og blindan konung.
Hann var kúgaöur af verum sem höfðu líkama sem fuglar en höfuð
kvenna. Phineus kvaðst skyldi vísa þeim veg til landsins sem þeir leit-
ubu ef þeir losuðu sig við hinar illu verur. Þeir gerðu það og hann lýsti
fyrir þeim leibinni milli skerja sem brotib höfðu í spón öll skip er siglt
hafði verið áleiðis til landsins. Jason og skipshöfn hans komust loks til
Colchis en þar ríkti voldugur konungur, Aeetes að nafni. Konungurinn
vildi ekki láta reifið af hendi. En hin fagra dóttir hans, seiökonan
Medea, varð ástfangin af Jason. Hún sagði honum að hægt væri að
komast fram hjá drekanum en vildi þó ekki lýsa leiöinni. Með hæfni
sinni og heppni tókst Jason að ná reifinu. Hann sneri til lands síns á-
samt mönnum sínum. Medea fylgdi honum. Pelías lét konungdóminn
af hendi og Jason og Medea tóku við ríkinu.
Hjálpabu Jason og hinum hraustu félögum hans til ab komast ab
reifinu - fram hjá eldspúandi drekanum.
Þetta er ekki verðlaunaþraut. En þú ættir ab lita síðuna til gamans.