Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.05.1994, Qupperneq 38

Æskan - 01.05.1994, Qupperneq 38
FRAMHALDSSAGA LESENDA: OF VENJULEGT - EÐA... /12. kafla var enn lagt verkefni fyrir Hlíf - og Kára sem kominn var aft- ur til sögunnar. Þau áttu að fara í höll galdrakarls, brjóta staf hans og rífa hatt hans svo að þriðja heimsstyrjöldin skylli ekki á í mannheimum. Þau lögðu af stað en Hlíf datt og rann niður bratta fjallshlíð... 13. kafli. Ég rann á fleygiferð og fann að höfuðið á mér rakst í eitthvað grjót- hart. Svo varð allt svart. Loksins þegar ég opnaði augun og leit í kringum mig var ég á allt öðrum stað í allt öðru umhverfi. Ég sá gráan, vængjaðan hest standa hjá mér og sá að það var Gullfaxi. Kári stóð við hlið hans og sagði mér að Gullfaxi hefði bjargað mér frá því að falla niður í óhugnanlegan foss sem var neðst í fjallshlíðinni. Sjálfur hafði hann gengið áfram og var orð- inn rammvilltur þegar Gullfaxi kom fljúgandi til hans með mig á bakinu. Ég spurði hvernig hann vissi að Gullfaxi hefði bjargað mér. Þá var sagt djúpri en vinalegri rödd fyrir aftan mig: „Ég sagði honum það. Ég er gæddur þeim töfrum að geta flogið og talað í sex klukku- stundir á dag. Þess vegna skul- um við flýta okkur af stað til galdra- karlsins áður en töfrar mínir dvína!“ Þetta voru orð Gullfaxa. Ég varð hissa en flýtti mér á bak honum á- samt Kára. Við höfóum flogið drykklanga stund þegar við komum að höll karlsins. „Galdrakarlinn heitir Rófus. Þið skuluð ávarpa hann með nafni. Eftir tvær stundir verð ég kominn aftur í mannheima og vonast til að hitta ykkur þar!“ Gullfaxi kvaddi okkur með þess- um orðum og hvarf síðan. Við Kári æddum inn í höllina. Þar inni var ekki eins og í ævintýrum, ótal herbergi og ýmislegt fleira. Nei, þarna var einungis eitt herbergi, risastórt. I miðju þess var hásæti og í því sat Rófus. Við hlið þess stóð risastór spegill. Annað var ekki inni í höllinni. „Hvað viljið þið og hver eruð þið?“ spurði Rófus drynjandi röddu. „Herra Rófus! Ég er Hlíf og þetta er Kári. Við viljum frið á jörðu og í þessum heimi jafnt sem annars staðar. Þess vegna erum við komin hingað til þess að losa þig við töfrastafinn og hattinn þinn. Þetta vorum við beðin um að gera innan tólf daga en við viljum Ijúka þessu af núna strax. Það hentar betur!“ „Ha, ha, ha, ha, ha!“ glumdi í Rófusi. „Þú ert ansi seig, telpa góð! Þið tvö eruð ekki þau fyrstu sem reyna að hindra að styrjöld geisi á jörðinni. Fyrri og seinni heimsstyrj- öldin skullu á þegar börn eins og þið reyndu að brjóta staf minn og rífa hatt minn á þann hátt sem ég býð ykkur - og mistókst það. Boðið er á þá leið að þið eigið að leysa fjórar þrautir. Inni í þessum spegli munið þið finna marga hluti. Þið megið taka ykkur tvo hluti hvort af handahófi. Alls ekki velja þá! Þeg- ar innar kemur taka við fjórar þrautir sem enginn hefur hingað til getað leyst. Ef þið getið það innan sex stunda eruð þið frjáls og friður mun ríkja í heiminum. Þetta er það eina sem hægt er að gera til aó stafurinn brotni og hatturinn rifni. Ella breytist þið í styttur eins og þið sjáið þegar þið gangið inn í spegilinn. Ég get raunar gefið ykkur átta stunda frest af því að ég veit að þið getið þetta hvort eð er ekki. Þá getið þið kvalist lengur!" sagði Rófus og hló dátt. En við stukkum gegnum spegil- inn. Fyrir innan sáum við nokkrar styttur af krökkum. Það var eins og þeir væru skelfdir á svip. Við geng- um lengra og sáum þá marga hluti. Við snerum okkur í hringi með lokuð augu, beygðum okkur niður og tók- um tvo fyrstu hlutina sem við snert- um. „Hárbursti og eitt kíló af kótel- ettum! Hvaða gagn verður okk- ur af því?“ hrópaði Kári. Ég dró vasaljós og gamla lyklakippu með mörgum lyklum. Þetta voru furðulegir hlutir! Við gengum samt af stað og höfóum gengið lengi þegar við sáum að fram undan var skrýtinn hellir. Við fetuðum okkur inn en skyndilega varð þar kolniðamyrkur Lilja Yr Halldórsdóttir sendi þessa tillögu. Hún var valin eftir miklar vanga- veltur því að enn bárust ágætir sögukafl- ar. Við sögðum í 4. tbl. að líða mætti að lokum sögunnar. Lilja Ýr lauk henni - en við urðum að láta hluta síðasta kaflans bíða til 6. tölublaðs. Þess vegna ósk- um við ekki eftir tillögum að fram- haldi. Ef til vill verður framhaldssaga les- enda aftur á síðum Æskunnar. Við sjáum til. í haust verður efnt til smásagna- keppni. Kannski geta þeir sem samið hafa kafla notað hugmyndir sínar í nýjar sögur... Kærar þakkir fyrir allar tillögurnar! 3 8 Æ S K A N
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.