Æskan - 01.05.1994, Síða 45
dansa, annað hvort á skemmtistöðum eða
í heimateitum. „Ég er dansfíkill," segir
hann. Þessu er ólíkt farið með Zack de la
Rocha söngvara Rage Against The
Machine. Hann segir: „Við í RATM erum lít-
ið gefnir fyrir dansstaði og heimateiti. Á-
stæðan er sú að við höfum aldrei drukkið
áfengi eða reykt. Sígarettureykur fer í aug-
un á manni og ertir öndunarfærin og ölvað
fólk er leiðinlegt. Fólk, sem hefur ekki vald
á hugsun sinni eða gerðum, er þreytandi.
En það er alltaf gaman að heimsækja litla
hljómleikastaði og sjá ungar og ferskar
hljómsveitir."
• Þó að Zack sæki ekki dansstaði þá
var hann einn aðal„break“dansarinn í
gagnfræðaskólanum sinum („break“dans
og „break“músík voru eins konar fyrirrenn-
arar hipp-hoppsins). „En svo heyrði ég í
Sex Pistols 1983 og bang! Þetta kraft-
mikla hráa pönkrokk gerbreytti mús-
íksmekk mínum. Ég leitaði uppi þær pönk-
hljómsveitir sem boðuðu jákvæðan lífsstíl,
Minor Threat, State of Alert og þær allar,
þá var eins og ég fyndi sjálft himnaríki,“
segir Zack. (Jákvæður lífsstíll = straight
edge = nafngift notuð yfir bandarískar tán-
ingapönksveitir sem boða lífsstíl án vímu-
efna, tóbaks og kjötáts. Zack stofnaði
sjáifur slíka hljómsveit, Inside Out, sem
þróaðist yfir í RATM.
• Platan „Bodyguard" - Lífvörðurinn -
er næst söluhæst allra platna. Hún hefur
selst í tæplega 40 milljónum eintaka (sölu-
hæsta platan, „Thriller" með Michael
Jackson hefur selst í 45 milljónum eintaka).
Lífvörðurinn er safnplata sem á eru m.a.
lög sungin af Whitney Houston. Mesta
hrifningu vakti túlkun hennar á gömlum
sveitaslagara eftir Dolly Parton, „I Will
Always Love You.“
• Lagið vinsæla, „What’s Up“ með 4
Non Blondes byggir á meginlaglínum sívin-
sæls lags, „Don’t Worry, Be Happy,“ eftir
Bobby McFerrin.
• Dóttir Whitneyjar Houston og
Bobbys Browns heitir Bobbi Kristina.
• Þegar Kirk Hammet, sólógítarleikari
Metallica, nam klassískan gítarleik um
1980 hlustaði hann aðallega á pönkrokk!
Gítarleikur Jimis Hendrix hefur líka alltaf
verið í miklu dálæti hjá honum.
• Liðsmenn RATM koma frá vel stæðum
heimilum. Gítarsnillingurinn Tom Morello
hefur sagt að nýtilkomin auðæfi þeirra félaga
muni þess vegna ekki breyta miklu um hagi
þeirra. Það sé helst að nú gefist þeim aukið
svigrúm til að leggja góðum málefnum lið. Á
dögunum staðfestu þeir þetta þegar þeir
gáfu Indíánanum Leonard Peltier tæpar sex
milljónir íslenskra króna. Hann situr í lífstíðar-
fangeisi grunaður um morð á tveimur alríkis-
lögreglumönnum. Sannanir gegn honum
voru engar og margir hafa vakið athygli á
ýmsu sem bendir til sakleysis hans. Söngv-
ari RATM, Zack, er Indíáni I aðra ættina.
• Virkasti aðdáendaklúbbur 2 Unlimited
er 2U Fanclub, PO Box 66, 1000AB
Amsterdam.
• Erlendis er stundum snúið út úr nafni
2 Unlimited og dúettinn kallaður „2 Unta-
lented” (Tvö hæfileikalaus). Um þetta segir
Anita: Fólk heldur að við séum strengja-
brúður snjallra plötuframleiðenda, að við
séum aðeins andlit fyrir músík sem aðrir
hanni og framleiði. Staðreyndin er sú að
við semjum um helminginn af músíkinni
okkar.”
• Faðir Lindu Maríu Perry, söngkonu 4
Non Blondes, heitir því sérstæða nafni Xa-
vier. Hann markaði framtíð Lindu þegar
hún var fjögurra ára. Þá gaf hann henni gít-
ar sem hún hefur ekki skilið við sig síðan.
• Cliff Lee Burton, bassaleikari Metall-
ica, lést í bílslysi í Svíþjóð 1986. Hann hafði
margra ára nám í píanóleik að baki. Eftir-
lætis-hljómlistarmaður hans var klassíska
tónskáldið Bach.
• Julian Lennon, sonur Bítilsins Johns
Lennons, tók i vor saman við áströlsku
söngkonuna og leikkonuna úr Grönnum,
Kylie Minogue. Þau flúðu undan ágangi
breskra Ijósmyndara til Norðurlanda. Þau
höfðu nokkurra daga dvöl á íslandi, nánar
tiltekið á Hótel Selfossi. Þar var starfsfólk
bundið þagnarheiti um dvöl þessa fræga
pars sem lét lítið á sér bera. Reyndar fékk
Júlían fiðring þegar hann heyrði að hús-
hljómsveitin, Karma, hóf að leika lag föður
hans, „Daytripper”. Hann stökk upp á svið
og hugðist greinilega taka lagið með Karma.
Liðsmenn hljómsveitarinnar vissu ekki hver
maðurinn var. Þeir héldu að þessi maður
með sólgleraugu og derhúfu væri illa ölvað-
ur útlendingur og hentu honum snarlega
niður af sviðinu. Júlían hvarf á brott í skyndi.
• Eftirlætishljómsveitir liðsmanna 4 Non
Blondes eru Aerosmith og Bítlarnir.
• Liðsmenn Metallica stóðu í þeirri trú
að Bítlarnir hefóu aðeins gert lauflétta slag-
ara á borð við Ob-La-Di, Ob-La-Da og
„When l’m Sixty Four“. Eitt sinn heyrðu
þeir fyrir tilviljun þunga og seiðandi blús-
ballöðu í útvarpinu. Þeir lögðu við hlustir
og reyndu að átta sig á því hverjir flyttu
þetta magnaða lag. Undrun þeirra var mikil
þegar útvarpsþulurinn tilkynnti að þetta
hefði verið „She’s So Heavy" með Bítlun-
um. Þeir keyptu plötuna með laginu í hvelli
og heyrðu þar mörg önnur góð Bítlalög.
„Að hugsa sér hvað fordómar geta leikið
mann grátt,” segir Lars Ulrich. „Allar eftir-
lætishljómsveitir okkar, allt frá Kiss til Iron
Maiden sþiluðu þara einn músíkstíl. Það
hvarflaði aldrei að okkur að til hefði verið
hljómsveit eins og Bítlarnir sem spilaði
sykurpopp til jafns við þungan blús, fram-
úrstefnuverk, sýrupopp, indverskt sítar-
popp, kassagítarvísnasöng, djass, kántrí
og meira að segja pönkblús!”
Gítarleikari Metallica, Kirk
Hammets, nákvæmlega helmingi
yngri en hann er nú.
Rage Against The Machine-kvartettinn á frísklegt
djass-rokklag á nýrriplötu, „The Craw,“ sem á er
músík úr samnefndri kvikmynd karatemeistarans
Brandons Lees (sonar Bruce Lees). RATM-drengirnir
flytja líka (i samvinnu við Faith No More) Kiss-lagið
„Calling Doctor Love“ á sérstakriplötu sem kemur á
markað núna i sumar til heiðurs Kiss.
Æ S K A N 4 5