Æskan - 01.05.1994, Síða 52
Umsjón: Hafþór Kristjánsson 15 ára.
Sjávargötu 5, 225 Bessastaðahreppi.
PRINSINN AF PERSIU
Flest allir sem eiga PC tölvu
kannast við leikinn, Prinsinn af Pers-
íu (Prince of Percia), sem kom út á
Nintendo fyrir rúmu ári. Hér skal
honum lýst lauslega fyrir þá Nin-
tendo-eigendur sem ekki hafa reynt
hann eða séð.
Leikurinn fjallar um prins sem þarf
að bjarga prinsessu frá illum manni.
Hann þarf að leysa margar þrautir á
nokkrum borðum.
Grafíkin er ekki eins góð og í PC,
Atari og Amiga en samt sem áður
vel gerð. Hljóðið er nokkuð gott og
tónlistin, sem leikin er í byrjun, tekst
nokkuð vel. Leikurinn er mjög
skemmtilegur og spennandi í þess-
ari tölvu eins og hinum.
EinfciMnnz
I Grafík: 68% 1
Hljóð: 82%
1 Skemmtun: 80% I
Fullkomleiki: 70%
I Meðaltal: 75% I
PRÓFRAUNALEIKIRNIR
(„Quest for Glory“)
ELDSLÓÐIN
(„ Trail by Fire“ - PC.)
Leikurinn er beint framhald af
Prófraunaleiknum, Þú vilt sem sé
verða hetja! („So You Want to Be
a Hero“).
Hægt er að nota sömu hetjuna
og í fyrra ævintýrinu eða velja
nýja. Bardagamaður, galdramaður
og þjófur eru í boði!
Hetjan fer frá bænum Leikja-
borg (Spielburg) á fljúgandi teppi
með Shameen, Sheema og teppa-
sölumanninum Abdulla Doo til
töfraborgarinnar Shapeir. Þegar
þangað kemur fréttir hún af
annarri borg í grennd. Hún heitir
Rasein og er í álögum. Ævintýrið
snýst um að komast að leyndar-
málinu um álögin sem hvíla á
borginni og reyna að létta þeim af
henni áður en þau verða svo öflug
að þau leggjast á allan heiminn.
Grafíkin er mjög góð miðað við
að einungis eru notaðir 16 litir.
Hljóðið er mjög gott í „Sound
Blaster1' en ekki nógu gott í
„Speaker".
Til þess að geta spilað leikinn
verður að hafa MsDos, 16 lita
VGA/EGA - Tandy/CGA, 512 kb í
minni.
Leikurinn var gefinn út 1990.
EEinfcunn:
PC
S B Sp.
Grafík 89% 89%
Hljóð 80% 25%
Skemmtun 90% 80%
Fullkomleiki 85% 75%
Meðaltal 86% 67%
5 2 Æ S K A N