Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1994, Blaðsíða 55

Æskan - 01.05.1994, Blaðsíða 55
RÁÐGÁTAN Finnur leynilögreglumaður og Fundvís aðstoðarmaður hans höfðu verið á tölvunámskeiði í Björgvin. Þeir voru að kynna sér hvernig best væri að búa til skrár yfir afbrotamenn, sönnunargögn og tegundir afbrota. Þeir voru dauðþreyttir eftir þetta, í augum, fingrum og hnakkanum! Lestin átti ekki að fara fyrr en eftir nokkrar klukkustundir svo að þeir gengu um götur í bænum og litu T búðarglugga. Þó að þeir virtust kæruleysislegir fylgdust þeir grannt með öllu að venju. En ekkert athugavert gerðist þar sem þeir fóru um þennan dag. „Ég ætti kannski að láta klippa mig áður en ég fer heim,” sagði Finnur og strauk hendi snöggt yfir hárlýjurnar. „Þú segir nokkuð!" sagði Fundvís. „Ég gæti vel hugsað mér að láta snyrta mig.” Þeir voru fljótir að finna hár- skerastofu. Þar voru tveir hár- skerar. Annar var vandlega klipptur en hinn klaufalega. Fundvís varö fyrri til og settist því hjá þeim sem hafði verið klipptur af vandvirkni. Finnur varð að fara til hins hárskerans. Hvor þeirra félaga var klipptur snyrtilega? Svar á bls. 62. ÆSKAN Á SÍÐUM NORSKA VIKUBLAÐSINS f Norska vikublaðinu eru tvær síður af efni fyrir krakka. Verðlauna- rithöfundurinn Björn Rönningen sér um þær. Hann hefur samið margar bækur sem hafa verið gefnar út í Noregi og fleiri löndum, t.a.m. á ís- landi (Hjá Æskunni komu út bækur hans, Frú Pigalopp og jólapósturinn og Furðulegur ferðalangur). Hann hefur líka samið framhaldsþætti fyr- ir sjónvarp. Þáttur Björns nefnist Per og Kari - eða Pétur og Karen. í 18. tölu- blaði Norska vikublaðsins 1994 sagði hann frá Æskunni og birti for- síðumynd 1. tbl. 1994. Hann gat þess einnig að þeir sem eignuðust pennavin á íslandi fengju fljótt til- finningu fyrir því hve sterk söguleg bönd tengja löndin. Póstfang Æsk- unnar var feitletrað og við fáum því enn fleiri bréf frá norskum krökkum en áður! Við vonum að þið svarið óskum þeirra um pennavini. Flestir skrifa þeir á ensku en skilja að sjálf- sögðu einnig dönsku. EINELTI í þætti Björns segja tvær stúlkur frá einelti. María, sem er ellefu ára, þekkir það vel: „Til þess að koma í veg fyrir ein- elti verða allir að þora að segja frá því. Þegar við ræddum um það í bekknum mínum sögðust allir hafa vitað að ég var lögð í einelti. En enginn snerist gegn því nema besta vinkona mín. Ég mun aldrei nokkurn tíma leggja neinn í einelti. Ég ætla líka að að reyna að hjálpa öllum sem verða fyrir því. Ég veit nógu vel hvernig manni líður þá. Þess vegna vil ég ekki að aðrir þurfi að láta sér svíða það.“ ÖLL MEÐ SAMA UPPHAFSSTAF! í 3. tbl. kynntum við sögu- keppnina, Öll með sama upp- hafsstaf. Slík keppni var í Æsk- unni fyrir fjörutíu árum svo að okkur lék forvitni á að vita hvort áskrifendur væru jafnsnjallir nú og þá. Frestur var gefinn til 10. júní. Fyrir þann tíma fengum við sögur - en afskaplega fáar. Við lengjum því frestinn til 5. september. Öll orðin í sögunni eiga að byrja, á sama staf. Ekki eru sett skilyrði um lengd hennar - en ör- stuttar sögur eiga ekki jafnmikla möguleika og þær sem lengri eru. GÓÐ VERÐLAUN! Aðalverðlaunin eru Ritsafn H.ö. Andersens í þremur bind- um, Oliver Twist eftir Charles Dickens og þrjár aðrar útgáfu- bækur Æskunnar að eigin vali. Tvenn aukaverðlaun eru þrjár útgáfubækur okkar. Allir þátttakendur fá viður- kenningarskjal. Á bls. 20 í 3. tbl. Æskunnar 1994 var birt ein af verðlauna- sögunum frá 1954, Sveitasæla eftir Maríu Guðmundsdóttur frá Bólstað í Vestur-Húnavatnssýslu. Þið getið litið á hana til að sannfærast um að þetta er unnt! Munið líka að foreldrar og systkini mega leggja sögumanni lið. Æ S K A N S S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.