Valsblaðið - 01.07.1958, Síða 17
VALSBLAÐIÐ
17
æfingatöflu Vals fyrir eina tíð,
en þar stóð: Æfingar fjórða
flokks fara ekki fram í rigningu!
Ur8u að fara aö hátta.
Föstudaginn áður en Austur-
ríkismenn áttu að leika við Breta,
var efnt til dansleiks, þar sem
þeir bjuggu, og þar sem þeir
voru mjög vinsælir, var þeim
boðið að koma og dansa svo-
lítið.
Formaður úrtökunefndarinnar
þakkaði gott boð, en nú yrðu
þeir að fara að hátta, þeir væru
að búa sig undir leikinn á sunnu-
daginn.
500 kg. af uxakjöti og ...
Til þess að Argentínumenn
yrðu sem minnst varir við breyt-
inguna að búa og borða hér á
norðurhjara veraldar, meðan
H. M. stendur yfir, Fengu þeir
heimild til þess að senda til Sví-
þjóðar dálitla matarrjátlu. Send-
ingin hljóðaði upp á: 500 kg af
uxakjöti, 300 kíló af rifjasteik
og 250 kjúklingar auk margs ann-
ars smávegis!
23 ár milli elsta og yngsta
manns!
Bæði elzti og yngsti keppand-
inn í H.M.-keppninni eru frá Suð-
ur-Ameríku. Sá yngsti var 17 ára
og heitir Pele, og var kallaður
Svarti-Pétur, enda blökkumaður,
en sá elzti var frá Argentínu og
heitir Amadeo Labruna og er 40
ára. Næstir koma Gunnar Gren
frá Svíþjóð 38 og Fritz Walter
frá Vestur-Þýzkalandi líka 38 ára.
Báðir heimskunnir knattspyrnu-
menn.
Verður a8 skóa til aö geta l/ifað.
Skotski leikmaðurinn Bobby
Collins, sem stóð sig vel í liði
sínu, sagði, að hann hefði aðeins
1000 pund í laun á ári. Þetta eru
svo lítil laun, að ég verð að ger-
ast skóari jafnframt því, að leika
knattspyrnu. Hann hefur leikið í
10 ár sem atvinnumaður í knatt-
spyrnu, í Cheltic, er innherji.
Hann er aðeins 165 cm. á hæð og
er lægsti keppandi í Ii. M.
Víkmgsvöllur vígður
Sunnudaginn 15. júní s. 1. var
vígður og tekinn í notkun nýr
knattspyrnuvöllur hér í bænum.
Völlur þessi er í eigu Víkings og
staðsettur við félagsheimili hans
í Bústaðahverfi, en þar hefur
Víkingur komið sér fyrir, svo sem
kunnugt er og reist þar mikið og
myndarlegt félagsheimili. Alls
munu þær framkvæmdir, sem
þegar hafa verið gerðar á félags-
svæði Víkings, vera um 2 millj-
ónir króna að mati, en þegar fé-
lagið hófst handa átti það aðeins
um 80 þúsundir króna í hand-
bæru fé, en var því ríkara af
bjartsýnismönnum, sem trúðu á
sigur góðs málstaðar og töldu
ekki eftir sér að leggja fram
vinnu og starf, sem síðar skyldi
koma æsku Reykjavíkur að liði.
Draumur — bjartsýnismannanna
hefur rætzt. Félagsheimilið er ris-
ið af grunni, glæsilegt og vítt til
veggja, og fyrsti knattspyrnuvöll-
urinn hefur verið vígður. Upp-
skeran lætur heldur ekki bíða eft-
ir sér, ungir drengir úr hinu fjöl-
menna bæjarhverfi, sem þessi
íþróttamannvirki eru staðsett í,
streyma nú hundruðum saman
inn í Víking og fá notið þar góðs
félagslífs, hollra íþróttaiðkana
við hin beztu skilyrði, sem enn
eiga þó eftir að aukast og eflast.
Skiljanlega hefur Víkingur
þurft á styrk að halda til fram-
kvæmdanna, enda hefur hann not-
ið hans bæði frá opinberum aðil-
um og öðrum að ógleymdri þeirri
aðstoð, sem skilningsríkar fjöl-
skyldur í hverfinu, hafa sýnt fé-
lagsstarfinu í heild, í trausti þess,
að það komi æskulýðnum þar um
slóðir til góða, í æ ríkari mæli, ár
frá ári. En s. 1. ár greiddu um
300 fjölskyldur mánaðarlega kr.
10 í félagssjóð Víkings, og er hér
öðrum hverfum borgarinnar
vissulega gefið fagurt fordæmi.
Vígsla vallarins fór fram með
hátíðlegum hætti og að viðstöddu
fjölmenni, bæði úr Víkingshverf-
inu og lengra að. Formaður Vík-
ings flutti vígsluræðuna, þar
hann lýsti undirbúningi öllum og
þakkaði margþætta aðstoð félag-
inu til handa. Að því búnu fóru
fram tveir kappleikir á hinum
nýja velli og keppti þar 3. og 4.
fl. Víkings við jafnaldra úr Val
og K. R. En áður en leikurinn
hófst, skipuðu liðin sér á miðjan
völlinn, en tveir litlir Víkingsfé-
lagar strengdu borða yfir hann
þveran, sem formaðurinn svo
klippti á, um leið og hann til-
kynnti, að völlurinn væri tekin í
notkun, með þeim óskum, að hann
mætti verða Víking og knatt-
spyrnuíþróttinni í heild til aukins
gengis og blessunar.
Þá hófst fyrri leikurinn, sem
var við Val og beið Víkingur
ósigur með 3 mörkum gegn engu,
einnig tapaði hann síðari leikn-
um við KR með einu marki gegn
engu. En Víkingar skyldu minn-
ast þess, að fall er faraheill, og
með þessari bættu aðstöðu eiga
þeir, er stundir líða fram, að
geta undirbúið sig vel til þess að
rétta hlut sinn.
Að leikjunum loknum var svo
boð inni í félagsheimilinu, marg-
ar ræður fluttar og mikið sung-
ið, sem sagt heilbrigður gleðskap-
ur, þar sem glaðst var yfir því,
að merkum íþróttalegum og fé-
lagslegum árangri hefur verið
náð.