Valsblaðið - 01.05.1984, Qupperneq 12
10
VALSBLAÐIÐ
Fyrirlirti 1. flokks og bakvaröasveitarinnar, Bergur ,,smugan“ Gufinason.
ar „Bakvarðasveitin“ ákvað að gera
mikið átak til að rétta við fjárhag
deildarinnar sem vægast sagt var orð-
inn mjög bágborinn. Ekki þarf að orð-
lengja að þetta átak svo og dugnaður
,,sveitarinnar“ við að taka þátt í fjáröfl-
unum deildarinnar hafa leitt til þess,
að hagnaður varð á rekstri deildarinn-
ar um 350 þúsund króna skv. bráða-
birgðauppgjöri sem nú liggur fyrir.
Öllum skuldum hefur verið komið í
skil þeim sem enn eru ekki greiddar, en
þar er stærsta skuldin við aðalstjórn
Vals.
Þá er rétt að geta þess, að nú í haust
þ.e. á reikningsárinu 1984/1985 hefur
enn frekar verið gert í að greiða niður
skuldir, svo að segja má að skuldin við
aðalstjórn (þ.e. vegna húsaleigu í
Valsheimili), er nánast eina alvarlega
skuldin.
Ljóst er að meðlimum „Bakvarða-
sveitarinnar“ verður seint fullþakkað
sú ósérhlífni við þetta verk sem óhætt
er að fullyrða að er einstakt afrek sem
vonandi þarf aldrei að endurtaka.
Væntir stjórnin þess að þessir menn
haldi áfram að hittast og rifja upp
gamla daga í „boltanum" og efla
þannig tengslin við félagið.
4. Lokaorð
Stjórn handknattleiksdeildar vill
þakka öllum þeim fjölmörgu sem stutt
hafa okkur í starfi og leik. Má þar
nefna fjölda fyrirtækja og einstaklinga
sem stutt hafa okkur með því að aug-
lýsa í leikskrá o.fl., dómara okkar sem
létt hafa okkur störfin við framkvæmd
turneringa o.fl.
Að lokum vill stjórnin þakka öllu
handknattleiksfólki, aðalstjórn Vals,
öðrum deildarstjórnum og húsvörðum
mjög gott samstarf.
Öllum Valsmönnum óskum við góðs
gengis í leik og starfi með von um góð-
an árangur.
Jón Pétur „Penu“ Jónsson sýndi í Kvrópuleikjunum gegn Ystad að reynslan vegur þungt í stórleikjum.
Jón var markahæstur í báðum leikjunum og bezti maður Valsliðsins.
ÁFRAM VALUR
Stjórn handknattleiksdeildar Vals
Þorbjörn Jensson fyrirliði Vals og landsliðsins að
undanförnu.
Öllum þessum þjálfurum ásamt
aðstoðarfólki þeirra og fylgdarmönn-
um flokka sem ekki hafa verið nafn-
greindir hér vill stjórn deildarinnar
færa bestu þakkir fyrir fórnfús störf
fyrir litla fjárhagslega umbun.
2. Félagslíf
Fyrir þann sem eitthvað þekkir til,
þá þurfti ekki mikið til að koma, svo
hægt væri að halda því fram, að fé-
lagslífið hefði tekið miklum framför-
um á síðasta ári. Svo vill nefnilega til
að haldnar voru uppskeruhátíðir í
flestum flokkum. Einnig héldu flokk-
arnir hver fyrir sig skemmtifundi yfir
veturinn. Allar þessar skemmtanir tók-
ust mjög vel og voru öllum til sóma og
vonandi detta þær ekki upp fyrir, held-
ur verða fastur liður í starfsemi deild-
arinnar í framtiðinni.
3. Fjármál
Það fór eflaust ekki framhjá neinum
í félaginu og þó víðar væri leitað, þeg-