Valsblaðið - 01.05.1984, Síða 39
VALSBLAÐIÐ
37
Guðni Bergsson: Efnilegasti
knattspyrnumaöurinn
Að kvöldi sunnudagsins 16. sept.
s.l., eftir að Valsliðið hafði tryggt sér
silfurverðlaun íslandsmótsins í knatt-
spyrnu og þar með sæti í Evrópu-
keppni félagsliða 1985-’86, var haldið
veglegt hóf í veitingahúsinu Broadway.
Var þar um að ræða hátíð sem ný-
stofnuð samtök leikmanna 1. deildar
gengust fyrir. Valur átti nokkra full-
trúa sem mjög komu við sögu hátíðar-
innar. Grímur Sæmundsen fyrirliði
Valsliðsins var einn aðalforsprakkinn í
undirbúningnum og setti hátíðina,
Hermann Gunnarsson var kynnir
kvöldsins og fórst það einkar vel úr
hendi, Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra var einn af gestum samkom-
unnar og hélt góða ræðu, og síðast en
alls ekki sízt var Guðni Bergsson val-
inn efnilegasti leikmaður 1. deildar af
andstæðingum Vals. Mikill heiður
fyrir Guðna sem hann á fyllilega skil-
inn og verður fróðlegt að fylgjast með
þessum efnilega leikmanni i framtíð-
inni.
Leikmenn völdu einnig Leikmann
ársins og þar varð yfirburðasigurvegari
landsliðsmarkvörðurinn Bjarni Sig-
urðsson, ÍA.
Valsblaðið óskar þeim Bjarna og
Guðna til hamingju með verðskuldaða
viðurkenningu.
HH
Þrír góðir; Heiðursgesturinn, sá efnilcgasti og sá bezti: Allan Simonsen, Guðni Bcrgsson og
Bjarni Sigurðsson í lokahófi |. deildar í Broadway.
Valsmenn fagna kjöri Guðna Bergssonar, efnilegasta leikmanns 1. deildar.
1 „O ■U m m f 1K 1
1 - - i. -■ ■ i•* tVSPShL ' v ^ 1, ~I MJLmv <. ■ /' 1 ^ r f