Valsblaðið - 01.05.1984, Blaðsíða 24
22
VALSBLAÐIÐ
Haldið hcim á leið.
trjánum eða tekið upp. Auk þess var haldin
heljarinnar grillveisla og drukiið öl, og iþjór og
bruggaður brasilískur þjóðardrykkur með. Þá
skoðuðum við diskótek í Itapíra.
Okkur var ráðlagt að fara ekki í almennings-
sundlaug bæjarins svo að í staðinn fengum við
afnot af tveim einkaklúbbs-sundlaugum, alveg
einstaklega fallegum stöðum og snyrtilegum.
Þangað var farið tvisvar með rútum og var það
vel þegið af erlendu liðunum þvi hreinlætisað-
staða i skólanum var ekki upp á marga fiska.
Þá má geta þess að þjálfarar og fararstjórar
liðanna spiluðu gestaleik við starfsmenn sjúkra-
húss fyrir vangefna I Ítapíra. Fyrir leikinn og i
hálfleik var heljar mikið fjör, þar sem vistmenn
og starfsfólk stigu trylltan sambadans við undir-
spil alls kyns bumbuslagara og skeljatromma.
Það sýndi sig i þessum leik að lengi lifir í göml-
um glæðum. Sævar og Bragi slógu í gegn og
þóttumst við heppin að missa ekki þessar
„siungu stjörnur" I atvinnumennskuna.
Þann 9. apríl var svo haldið með rútum til Río
de Janeiro og tók ferðin 8 tima með stoppi á
nokkrum stöðum. í Río héldum við hópinn að
mestu leyti,því ekki þótt óhætt að vera einn á
ferli. Þar vorum við í þrjá daga og skoðuðum
m.a. Sykurtoppinn og Kristsstyttuna, fórum á
ströndina og á. veitingastað þar sem jiver mátti
borða eins og hann gat í sig látið. Boðið var upp
á 9 eða 10 kjötrétti með ekki færri teg. af
meðlæti og svo eftirrétti. Einnig fórum við á
næturklúbb öll saman og var það geysilega
gaman, ekki sist vegna þess að ónefndur liðs-
maður Vals sló í gegn er hann var kallaður upp á
svið til að dansa við eina af hinum yndislegu
brasilisku blómarósum.
Frábær endir á frábærri ferð.
Haldiö var heim á leið með flugi SAS að
kvöldi 12. april.
Að lokum langar okkur að þakka strákunum
sérstaklega prúðmannlega framkomu í hvívetna,
því betri landkynningu er ekki hægt að fá.
Ráðamönnum Vals og þá sérstaklega Jónasi
Guðmundssyni þökkum við veittan stuðning og
óeigingjarnt starf, en á Jónasar hefði þessi ferð
aldrei verið farin.
Einnig viljum við þakka foreldrum drengj-
anna fyrir vel unnin störf við fjáröflun svo og
fyrirtækjum sem lögðu okkur lið.
F.h. fararstjórnar,
Ásta Sigurðardóttir
Sævar Tryggvason, þjálfari.
Skíðaskáli Vals —
Ónýtt
aðstaða
Bágborin aðstaða til funda og annars
samkomuhalds hefur einkennt allt
félagsstarf innan Vals á siðustu árum.
Félagsheimilið var ekki rnönnum
bjóðandi sakir slæms ásigkomulags og
nienn hafa notað það sem afsökun fyrir
þeirri deyfð sem rikt hefur i almennu
félagsstarfi. Aðstaða hafi ekki veriö fyrir
hendi.
Víst eru ófá sannleikskorn i þessu, en á
sama tima hefur hinn stórglæsilegi skiða-
skáli Vals verið til reiðu, en allt of lítið
notaður. Það vita kannski ekki allir Vals-
menn hversu huggulegur skálinn okkar
er orðinn eftir þrekvirki það sent for-
maður skiðadeildar Sigurður Guð-
mundsson hefur unnið við endurreisn
skálans. Þótt Sigurður geri atdrei hand-
tak framar fyrir Knattspyrnufélagið Val
stendur félagið samt í ævarandi þakkar-
skuld við hann fyrir framtak sitt og tórn-
fýsi, én það er önnur saga.
Aðalatriðið er að steinsnar frá Reykja-
vik, nánar tiltekið í Sleggjubeinsdal (við
Kolviðarhól, unt 15 min. akstur frá
höfuðborginni) er glæsilegt húsnæði sent
hentar vel til hvers kyns samkomuhalds,
funda, helgarfcrða o.fl. og það er ótækt
að láta aðstööuna ónýtta. Vissulega er
skálinn notaður öðru hvoru, t.d. heldur
aöalstjórn þar fund árlega nteð fulltrúum
deildastjórna og i sumar hittust þar
lslandsmeistarar Vals 1956 og aðrir
kapparásamt mökuni og héldu veizlu.
í byrjun desember hittust svo Vals-
konur i skálanum til árlegs desember-
fundar og þóttu nokkuð jólaglöggar er
heim kom.
Nýtingin á Valsskálanum er þó lítil og
mun minni en svona skemmtilegl
húsnæði á skilið, að ekki sé talað um þá
sem lagt hafa mikið á sig til að konta
skálanum í núverandi horf.
Höröur HHmarsson