Valsblaðið - 01.05.1984, Síða 42
40
VALSBLAÐIÐ
Af knattspyrnuþjálfurum
Vals
Þjálfaramál 1. deildarliðs Vals í
knattspyrnu hafa ekki verið viðun-
andi síðan dr. Youri Ilitchev var við
stjórnvölinn um miðjan síðasta áratug.
Vissulega hafa ýmsir ágætismenn verið
ráðnir þjálfarar Valsliðsins og sumir
staðið sig ágætlega, en skoðanir hafa
verið skiptar um þá og nauðsynleg ein-
ing hefur ekki skapast í kringum þá né
almenn ánægja þannig að þjálfara-
skipti hafa verið tíð of tíð. Ungverski
Belginn (eða belgíski Ungverjinn)
Guyala Nemes var þjálfari 1978 og ‘79.
Undir hans stjórn vann Valur það
afrek (1978) að tapa aðeins einu stigi í 1.
deildinni. Arið eftir gekk ekki eins vel,
og vonbrigðin voru mikil með það að
vinna engan titil (nema Reykjavíkur-
meistaratitilinn og nokkur innan-
hússmót) með einhvern sterkasta
mannskap sem leikið hefur innan fé-
lagsins. Nemes var ágætis þjálfari með
mjög skemmtilegar æfingar, en hann
vantaði nauðsynlega grimmd og styrk
þegar á bjátaði. Við honum tók þjóð-
verjinn Volker Hofferbert, tvífari
bandaríska söngvarans John Denver.
Hann leiddi Val til sigurs í íslandsmót-
inu 1980 með elsta miðherjapar í
Evrópu, markamaskínurnar Hemma
Gunn. og Matta Hallgríms., en þótt
ekki nógu góður. Þá var það Jiri
Pesek, viðkunnanlegur maður frá
Tékkóslóvakíu, en hann olli von-
brigðum og verður ekki minnst sem
eins af bestu þjálfurum Vals.
1982 kom Claus Peter alskeggjaður
kennari frá Vestur-Þýskalandi og stór-
vinur V. Hofferberts. Mönnum líkaði
vel við þennan dagfarsprúða kennara
og hann var endurráðinn 1983. Þá
gekk Val mjög illa með þokkalegan
mannskap og á endanum var ákveðið
að Claus hætti með liðið. Leikmenn
höfðu mikil áhrif á framvindu mála
þetta sumar, og að þeirra ósk var Sig-
urður Dagsson ráðinn þjálfari út tíma-
bilið. Siggi Dags. kom með góðan
anda og skemmtilegar æfingar, sem
var nóg til að ná upp stemmningunni í
hópnum og Valur bjargaði sér frá falli
á ógleymanlegan hátt með glæsilegum
endaspretti. Þá vógu þungt mörk Inga
Bjarnar og frábær frammistaða
Guðna Bergs. Ætlunin var að Siggi
Dags. fylgdi sínu góða starfi eftir og
yrði áfram með liðið, en hann baðst