Valsblaðið - 01.05.1984, Blaðsíða 47

Valsblaðið - 01.05.1984, Blaðsíða 47
VALSBLAÐIÐ 45 Opin ráðstefna knattspyrnudeildar Laugardaginn 3. nóvember s.l. hélt knattspyrnudeild opna ráðstefnu um málefni deildarinnar. Var hún haldin í Húsi iðnaðarins við Hallveigarstíg og stóð frá kl. 10 til 16:00, en gefið var stundarlangt matarhlé sem flestir ráðstefnugestir notuðu til sameiginlegs hádegisverðar. Tilgangur þessa fundar var m.a. að gefa áhugasömum Vals- mönnum tækifæri til að tjá sig um starfið innan deildarinnar, fá nýjar hugmyndir og fleiri til starfa. Tæplega 60 Valsmenn mættu á ráðstefnuna og flestir tóku þátt m.þ.a. leggja eitthvað til málanna, enda menn hvattir til þess af röggsömum fundarstjóra, Pétri Sveinbjarnarsyni formanni Vals. Þótti ráðstefnan takast mjög vel í alla staði og er óskandi að þeim hugmyndum sein fram komu og framkvæmanlegar eru verði komið i framkvæmd á næst- unni. Það framtak að halda svona ráð- stefnu eða fund er þarft og nauðsyn- legt til eflingar félagsstarfinu, en hugur verður að fylgja máli og aðgerð orðum til að gagn sé að. Hörður Hilmarsson Um Valsblaðið Valsblað það sem nú sér dagsins Ijós á sér nokkurn aðdraganda. Fyrirhugað var að það kæmi út um mitt ár 1984, en vegna ýmissa ástæðna var útgáf- unni frestað. Síðan kom verkfall bókargerðarmanna og prentara, og eftir að því lauk tafði jólahátíðin með öllu sínu tilstandi. Allt um það, blaðið er komið út eins og sjá má, vonandi Valsmönnum öllum og öðrum íþrótta- unnendum til nokkurrar ánægju. Útkoma Valsblaðsins var hér í eina tíð mikið tilhlökkunarefni, og blaðið Val til mikils sóma. Skal á engan hall- að þótt tveimur mönnum sé öðrum fremur þakkað glæsilegt útlit þess. Frí- mann heitinn Helgason var lengst af ritstjóri blaðsins, sá um efnisöflun o.þ.h., meðan Friðjón heitinn Guð- björnsson safnaði auglýsingum til að tryggja fjárhagsgrundvöll útgáfunnar. Þeim sé þökk. Nú er brýnna en nokkru sinni fyrr að Valsblaðið komi út reglulega, því það er helsta sameiningartákn félags- manna í okkar stóra, deildarskipta félagi. Minningu áðurnefndra heiðurs- manna og annarra ónefndra stórhuga er bezt haldið á lofti með því að styrkja innviði Vals og samkennd allra Vals- manna. Einn liður í þeirri viðleitni er reglu- leg útgáfa Valsblaðsins, t.d. fyrir jólin ár hvert eins og áður var. H.H. BORGAR SIG AÐ VERZLAI Vegna þess að Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis gætir eingöngu hagsmuna viðskiptavina sinna. Aldrei of langt í næstu KRON-búð. KAUPFELAG REYKJAVIKUR 0G NAGRENNIS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.