Valsblaðið - 01.05.1984, Page 16

Valsblaðið - 01.05.1984, Page 16
14 VALSBLAÐIÐ Frá Badmintondeild: Starfsárið 1982-'83 Starf Badmintondeildar hefur ekki verið mikið undanfarið. Tímamál í Valsheimili hafa sett nokkurt strik í reikninginn. Deildinni voru úthlutaðir tímar fyrir kl. 5 í Valsheimili. Voru þeir notaðir í unglingastarf. Erfiðlega gekk að fá þjálfara. Þó tókst að fá þjálfara til jóla en eftir það hlupu ýms- ir stjórnarmenn í starfið. Við misstum svo alla þessa tíma i haust er Hamra- hlíðarskólinn tók Valsheimilið á leigu. Hins vegar fengum við tíma í Selja- skóla, 1/4 af salnum á móti T.B.R. Deildin hefur nú yfir að ráða 10 tímum í Valsheimili, 1 í Laugardalshöll og hluta af salnum í Seljaskóla 3 tíma. í dag er það svo að flestir þessara tíma eru leigðir út til trimmara. Eiginlegt keppnislið er ekki til innan Badmintondeildar. Þó á deildin yfir- leitt keppendur í flestum opnum mót- um bæði í unglingaflokkum og full- orðinsflokkum. Hefur Haukur P. Finnsson staðið sig ágætlega, yfirleitt spilað úrslitaleik í sínum flokki. Hann er núverandi Reykjavikurmeistari ung- linga. Þá hefur Hrólfur Jónsson náð úrslitaleik í meistaraflokki og nokkr- um sinnum undanúrslitum. Lið deildarinnar féll í aðra deild í liðakeppni B.S.Í. Sveit Vals skipuðu að þessu sinni: Hrólfur Jónsson, Helgi Benediktsson, Haukur P. Finnsson, Sigurður Haraldsson, Bryndís Hilmarsdóttir, Jórunn Skúladóttir og Guðrún Sæmundsdóttir. Deildin sá um að halda Reykjavikur- mót unglinga fyrir hönd Í.B.R. í september síðastliðnum. Deildin hefur haldið aðalfund og gengið frá reikningum. Sömu aðilar sitja áfram i stjórn, en fyrirhugað er að taka starfsemi deildarinnar til nánari athugunar með aðalstjórn félagsins innan tíðar. Formaður badmintondeildar Hrólfur Jónsson Ársskýrsla skíðadeildar starfsárið 1982-1983 Framkvæmdir við skálann Eins og undanfarin ár var haldið áfram við að fullgera skíðaskála deild- arinnar. Mest var unnið við ýmiskonar frágang. Endanlega var gengið frá raf- lögnum. Hita og lýsingu var komið fyrir í skíðageymslu og hún að mestu ieyti kláruð. Gengið var frá palli fyrir fram- an húsið. Auk þess var eins og áður segir unnið við ýmsan frágang. Byrjað var á að steypa meðfram ræsi við skál- ann, en því verki er ekki lokið. Skíðalyftur Eins og getið er um í ársskýrslu fyrra árs var fyrirhugað að taka í notkun barnalyftu á s.l. ári. Þetta tókst ekki, enda var þetta kostnaðarsamara en reiknað hafði verið með. Barnalyftan er nú komin í notkun. Kostnaður er ca. kr. 75.000. Haldið var áfram að vinna að undirbúningi byggingu stórrar var- anlegrar skíðalyftu fyrir deildina. Var í upphafi fyrirhugað að byggja lyftu í Húsmúlanum, áætluð lengd ca. 1200 m. Var í því skyni aflað tilboða frá lyftuframleiðendum erlendis. Þrjú til- boð bárust. Kostnaðaráætlun vegna byggingu lyftunnar á verðlagi í októ- ber 1983 nemur tæpum 6 milljónum króna. Merkasti áfanginn í lyftumálum deildarinnar verður þó að teljast sá að samþykki fékkst hjá íþróttaráði Reykavíkur og íþróttanefnd Ríkisins fyrir fullum styrkjum. Ber að færa sér- stakar þakkir til Þórðar Þorkelssonar fyrrv. formanns félagsins fyrir mikla og ötula vinnu við að koma þessum málum í höfn. Lyftustæði það sem áður er minnst á er í Húsmúlanum. Þar hefur þó þegar á reynir ekki verið eins snjóþungt og reiknað hafði verið með. Má segja að varla hafi komið þar snjór í vetur. Mun að líkindum vera horfið frá því að byggja lyftu þ ar, en snúa sér heldur að því að byggja lyftu í svokallaðri Valsbrekku. Það virðist nokkuð undarlegt að vera búin að fá fjárveit- ingar til byggingu skíðalyftu en hafa enga skíðabrekku. Við vinnum samt ötullega að því að finna brekku. Að líkindum mun verða keypt ein- föld lyfta næsta haust og hin notuð til bráðabirgða í Valsbrekkunni. Kostn- aðarverð ca. 1 milljón króna. Mun hún síðan væntanlega víkja fyrir varanlegri lyftu 1985-1986. Félagsmálin Það verður að segja hverja sögu eins og hún er, að ekki hefur tekist að sinna félagsmálum deildarinnar sem skyldi. Skýringar er sjálfsagt að leita í því að stjórnarmenn hafa verið yfirhlaðnir vinnu við framkvæmdir og fjármála- vafstur. Aðstandendum skíðadeildar- innar er þelta vel Ijóst og hafa verið uppi hugmyndir um að koma á fót sér- stakri nelnd, sem tæki að sér að sinna félagslega þættinum. Valskonur Okkur er ljúft að minnast á Vals- konur, sem færðu skíðadeildinni veg- lega peningagjöf á sameiginlegum stjórnarfundi allra deilda í skíðaskál- anum á s.l. ári. Peningaupphæð þess- ari var sérstaklega varið til ýmissa verkefna. Færir skíðadeildin Valskon- um sérstakar þakkir fyrir hlýhug og höfðingjalund. Fjármál Eins og ársreikningur félagsins s.l. ár ber með sér er skíðadeildin eina deild félagsins sem á inni hjá aðal- stjórn. Fjármál hafa gengið þokka- lega, engin teljandi vanskil. Útleiga á skálanum Skálinn var leigður út svo til allar helgar s.l. vetur og einnig margar helg- ar s.l. sumar. Einnig komu hópar í miðri viku til gistingar. Þetta er þó andstætt því sem getið er í skýrslu s.l. árs. í vetur hefur skálinn ekki verið leigður út um helgar en stefnt var að því í upphafi að hafa hann opinn. En eins og sagt er í þættinum um félags- mál hefur það ekki tekist sem skyldi. Lokaorð Það er ósk aðstandenda skíðadeild- arinnar að í framtíðinni megi þróast öflugt félagslíf í kringum þá aðstöðu sem verið er að byggja upp á Kolviðar- hólssvæðinu á vegum Vals, jafnt fyrir unga sem aldna. Þetta mun verða eitt stærsta verkefnið í framtíðinni. Heil- brigð útivera og skemmtilegt skálalíf fyrir alla Valsmenn! F.h. stjórnar skíðadeildar Sigurður Guðmundsson Viðbót við skýrslur Ársskýrslur badminton- og skíða- deildar eru komnar nokkuð til ára sinna, en eru teknar úr skýrslugerð síðasta aðalfundar Vals. Formenn þessara tveggja deilda höfðu litlu við þær að bæta er samband var haft við þá. Hrólfur Jónsson formaður bad- nhntondeildar kvað þó framundan átak til að efla starfið í deildinni, en það yrði þó fyrst með tilkomu nýja íþróttahússins sem brýnt yrði að end- urskipuleggja og efla starfið. Starf skíðadeildar felst að mestu í umsjón með skíðaskála Vals og má finna sérstakan kal'la hér í blaðinu um það þrekvirki sem Sigurður Guð- mundsson form. deildarinnar hefur unnið að endurbótum á skálanum. H.H.

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.