Valsblaðið - 01.05.1984, Síða 29
VALSBLAÐIÐ
27
6. flokks mót
í Vestmannaeyjum
sumarið 1984
komið til Eyja áður og það er aldeilis
stórkostleg innsiglingin þar. Þarna
mættum við smáþátum á leið á miðin,
við sáum hella og allt fuglalífið. Þarna
voru eyjapeyjar á gúmmíhraðbátum
að leika sér.
Þegar að bryggju kom þá beið þar
móttökunefnd ásamt fjölda fólks og
margar rútur til að flytja mannskapinn
á gististaði.
Valsmenn fóru í rútu með hinum
eina og sanna Páli Helgasyni, stjórn-
anda allra rútuferða í Vestmannaeyj-
um, til okkar gististaðar sem var
Barnaskóli Vestmannaeyja og fengum
við þar ,,svítu“ á þriðju hæð, engin
lyfta en útsýni til Helgafells.
Farangri var komið fyrir og síðan
var myndataka úti í garði, allur hópur-
inn myndaður (kom í blöðum). Síðan
var farið með hópinn til að fá sér nær-
ingu og láta þá jafna sig á sjóferðinni.
Leikur var fraumundan strax morgun-
inn eftir.
Mótið var vel skipulagt, með smá-
hléi í miðju, þar sem haldið var innan-
hússmot. Byrjað var kl. 9.00 alla
morgna og kl. 18.30 voru síðustu leik-
ir. Þétt skipalagt, en allt stóðst. keppt
á minivöllum sjömanna lið, 2x15 mín.,
leikhlé 2/i mín.
6. fl. ú(i í Eyjum. Erá vinstri: Hjálmar, Halldór Arnar, Sverrir. Alll l'ramlidarnienn í m.fl. Vals.
Knattspyrnufélagið Týr sendi okkur
boð til 6. flokks um keppni í þessum
aldursflokki. Mót eitt mikið skildi
haldið á vegum Týs og Tommaham-
borgara í Vestmannaeyjum þann 27.
júní til 1. júlí 1984. Gert var ráð fyrir
400 þátttakendum frá 19 félögum,
bæði A og B lið. Boðið var upp á fría
svefnaðstöðu og eina máltíð á dag.
Liðin urðu að koma sér sjálf til Eyja.
Við Valsmenn tókum þessu glæsi-
lega boði fegins hendi og fórum með A
og B lið ásamt þjálfara og tveimur
fararstjórum (barnapíum), alls 22
manns. Þessi ferð reyndist okkur öll-
um algert ævintýri, og nú mörgum
mánuðum seinna eru drengirnir enn að
tala um þessa ferð, og margt sem í
henni gerðist rennur þeim örugglega
ekki úr minni.
Farið var með rútu að morgni dags
til Þorlákshafnar og þar var öllum far-
angri, vel merktum hent inn í gám, en
liðin stilltu sér upp í röð og fóru hvert í
sínu lagi um borð í Herjólf, þar sem
hver hópur reyndi að koma sér vel fyr-
ir. Síðan var siglt af stað í ágætu veðri,
sólskin en smá undiralda. Mátti sjá
margt glaðlegt andlitið fölna á leiðinni
og þó svo að boðið væri upp á mynd-
bönd með Tomma og Jenna og fl. þá
6. flokkur Vals í Vestmannaeyjum.
þurftu ansi margir að fara út á þilfar
og fórna sjávarguðinum nokkru af því
sem borðað hafði verið fyrr um
morguninn. Þegar komið var undir
eyjarnar þá flykktust allir út á þilfarið,
því það voru ekki margir sem höfðu