Almanak um/fyrir árið 1900-1905 - 01.01.1904, Page 85
]>ess háttar kenning hún kemur sér veí
um kaunin hún samvizku vefur,
þó þeir rýi sinn bróöur, já rífi í hel,
þaö er réttur sem náttúran gefur.
Aö laugast í gulli og liggja því á
þeirra lífsins er takmarkiö setta,
þótt hrifsi þeir munnbitan hungruöum frá
þeir hugsa ekki mikið um þetta.
Sem börn fyrir guöi þeir beygja sín kné
og biöja hann jafnvel með köflum
aö heimsœkja sig þó aö húsfyllir sé
í hjartanu’ af auðfýknar djöflum.
'l'il kyrkjunnar ganga þeir klökkir aö sjá
því kristileg merkin ei dylja,
og krjúpa viö guösborö meö klút fyrir brá
og kjökrandi bænirnar þylja.
En séu þaö prestar í stólnum þeir stá
og stynja sein jóösjúkust kvinna
og biðja sinn drottinn aö búa sér hjá
og blessa þaö starf sem þeir vinna.
Þeir vara við ágirnd ogandvarpa liátt:
,,mínir elskuöu sannkristnu brœöul',
œ girnumst ei auölegö en gætum þess þrátt
að guð voru hlutskifti ræður. “
Sú ógurleg hræsni, mín undrast þaö sál
að ei skuli þar sem þeir standa
liins lifanda guðs reiði logandi bál
þeim ljúgandi hræsnurúm granda.