Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands - 01.01.1915, Blaðsíða 3
I. Störf Verkfræðingafjelags Islands 1914 0. fl.
1. Fnndarhöld.
13. fundur Verkfræðingafjelagsins var lialdinn á
Hótel Reykjavík 20. janúar 1914. Á fundinn var
boðið döiixum fjelagsmanna. N. P. Kirk flutti erindi
um Marokkó og voru jafnfraint sýndar skuggamyndir
þaðan og frá ýmsum öðrum stöðum. Síðan var gengið
til matborðs og að því loknu skemtu menn sjer við
dans o. fl.
14. fundur, sem var aðalfundur, var haldinn á
Hótel Reykjavík föstudaginn 27. febrúar 1914. Var
K. Zirnsen kosinn fundarstjóri.
1. Formaður gaf skj'rslu utn starf fjelagsins á
liðnu ári.
2. Fjpliirðir lagði fram reikning fjelagsins. Höfðu
tekjur fjeiagsins verið kr. 278,04, gjöldin kr. 78,27;
i sjóði til næsta árs, að viðbællum fyrra árs tekju-
afgangi, kr. 292,16. Reikningurinn var samþvktur.
3. Formaður til næstu tveggja ára var kjörinn
Th. Krabbe. Þá var dreginn úr stjórninni með
hlulkesti Rögnv. Ólafsson, en endurkosinn til
þriggja ára. Því næst var í stað Th. Krabbe kjör-
inn í sljórnina til tveggja ára K. Zimsen.
4. Endurskoðendur, Sig. Thoroddsen og Geir
G. Zoega, voru endurkosnir.
Á fundinum voru 9 fjelagsmenn.
15. fundurinn var lialdinn á Hótel Reykjavík
þriðjudaginn 10. mars 1914. Formaður stýrði fund-
inurn. Eftir að nokkur fjelagsmál voru rædd, flutti
Jón Þorláksson erindi um »nokkur atriði járn-
brautarmálsins«; erindið er prentað hjer aftar, einnig
í enskri þýðingu.
16. fundurinn var haldinn á Hótel Reykjavík
þriðjudaginn 28. apríl 1914. Formaður stýrði fundin-
um. Fundurinn samþykti ællun fjelagsstjórnarinnar
að gefa xít ársrit með skýrslum um gjörðir fjelagsins.
Því næst talaði N. P. Kirk um hafnargerð
Reykjavíkur, og hófust síðan langar umræður um
fyrirkomulag innri hafnarvirkjanna. Auk frummæl-
anda tóku aðallega þátt í umi-æðunum: Jón Þor-
láksson, Th. Krabbe og K. Zimsen. Erindi frum-
mælanda er prentað hjer aftar, einnig niðurstaða af
umræðunum. Hvorutveggja er einnig prentað i þýslui
þýðingu.
Á fundinum voru 9 fjelagsmenn og Guðmundur
verkfræðingur Hlíðdal.
I sambandi við fundinn hafði N. P. Kirk
boðið fjelagsmönnum að skoða hafnarvirkin, sem eru
í smíðum í Reykjavík. Fór þetta fram miðvikudaginn
20. maí. Komu 9 fjelagsmenn saman við Rattaríið
og skoðuðu liafnargarðinn, sem byrjað er að byggja,
fóru þaðan með eimlest að smiðjunni og dvöldu þar
nokkra stund. Síðan var gengið suður í Oskjuhlíð
og var þar sj'nd grjótborun með loftborum og spreng-
ingar. Þar næst flutti eimlestin fjelagsmenn vestur á
Grandagarð og er þeir höfðu skoðað hann var haldið
til Hótel Reykjavíkur.
17. fundurinn var haldinn á Hótel Reykjavík
þriðjudaginn 2. júní 1914. Formaður stýrði fund-
inum. Kaptajn P. F. Jensen frá Kaupmannaliöfn
lijelt fyrirlestur um »GeneraIstabens Opmaaling af
Island«; fyrirlesturinn er prentaður hjer aftar, einnig
útdráttur á frönsku.
Auk 11 fjelagsmanna voru á fundinum Premier-
löjtnant Sturmer, Kaupmannahöfn, Ingeniör True,
Noregi, og Fabrikant Andresen, Aabenraa.
18. fundurinn var haldinn á Hótel Reykjavík
fimludaginn 29. október 1914. Formaður stýrði fund-
inum og tilkynti að Guðmundur J. Hfíðdal verk-
fræðingur væri tekinn i fjelagið.
Ásgeir Torfason ílutti erindi um »íslenskt
eldsneyti (sauðatað, mó og surtarbrand)«. Á eftir
urðu nokkrar umræður um mó og kol, aðallega
Dufansdalskolin, og tóku til máls auk málshefjanda
K. Zimsen, M. E. Jessen, Jón Þorláksson og
Th. Krabbe. Að lokum bar Jón Þorláksson fram
svohljóðandi tillögu, sem var samþykt í einu hljóði
og seinna birt í öllum Reykjavíkurblöðum:
»Verkfræðingafjelag íslands álítur, eftir fram-
komnum upplvsingum um kolin frá Dufansdal, að
svo framarlega sem ráðist er í frekari rannsókn á