Afturelding - 01.04.1961, Side 9

Afturelding - 01.04.1961, Side 9
AFTURELDING Lífið heldur áfram Líkaminn er lííeðlislegri — efnis- legri hlutinn af manninum. Jarð- íeskur bústaður fyrir starfsemi anda og sálar. Hann hjálpar ókkur til að ná sambandi við efnislega hluti, jarðnesku frumefnin í tilverunni. Það er aðeins maðurinn sem er skapaður svo snildarlega. Engar aðrar verur í sköpunarverki Guðs, liafa fengið leyndardómsfullt og fallegt sköpunarform. Það er að vísu liægt að finna greind á vissu stigi, einnig í hinu lægra sköpunar- verki. Sum dýr til dæmis geta sýnt klókindi og möguleika að skilja, og gera ]>að sem þeim hefur verið kennt, og að vissu leyti getum við kallað það sálarstarfsemi. Þó er stórkostlegur munur á því og þessum eiginleikum sem við feng- um, þegar Guð skapaði okkur eftir sinni mynd. Með þelta fyrir augum hrópar Davíð konungur upp: „Hvað er þá maðurinn þess að þú minnist hans og mannsins barn, að þú viljir þess? Og þó lézt þú hann lítið á vanta við Guð, með sæmd og heiðri krýndir þú hann“ Sálm 8, 5—6. En hvað er þá að deyja? Svo lengi sem það er samband á niilli anda, sálar og líkama, getum við sagt að maðurinn lifi. Andinn og sál mannsins ráða yfir líkama hans og gera hann lifandi. Á því augnabliki sem andinn skilur við h'kamann deyr maðurinn, því að líkaminn er dauður án anda. Jak. 2,26. Andinn heldur líffrumum lík- arnans lifandi. Dauðinn er óeðlileg- ur aðskilnaður á milli þeirra mis- niunandi frumefna, sem mynda Hkamann. Dáinn frá syndinni „þýðir skilnað frá syndinni og dáinn frá lögmál- inu“ þýðir hið sama. Líkamlegi dauðinn aðskilur anda og sál frá líkamanum. Andlegur dauði skilur andann frá Guði. Eilífur dauði er aðskilnaður i annað sinn, á milli Guðs og þess upprisulíkama, sem andi og sál hins óguðlega hefur tekið sér ból- festu í. Þess vegna er hann í orði Guðs kallaður hinn annar dauði. Á nokkrum stöðum er dauðinn sagður vera svefn. Þetta má þó ekki misskilja. Það er hvorki andinn eða sálin sem sofna í dauðanum, því að þau halda áfram að lifa með- vitandi tilveru- Það er líkamiim sem sefur í dufti jarðarinnar, þangað til upprisudagurinn kemur. Dan. 12,2. Þegar líkaminn verður vakinn og sameinast anda og sál í undursam- legri umbreytingu. Dauðinn er Hka nefndur burtför. 2. Kor. 5,8. Ekki endalok. Það er andinn, sem fer í burtu frá jarðneskum bústað sínum. „Moldin hverfur aftur til jarðarinn- ar og andinn til Guðs sem gaf hann.“ Pétur postuli segir að dauðinn sé hið sama og að Ijaldbúðinni verði svift. 2. Pét. 1, 13—15. og Páll postuli talar um að bverfa burt úr líkamanum, báðir postularnir voru sannfærðir um að þeir mundu verða persónulega til, eftir að þeir væru skildir við líkamann. Páll postuli taldi sig ekki vera líkamann, heldur andann sem fer burt úr líkamanum, og Pétur liafði nákvæmlega sömu skoðun. Sifijne EricKSon. Að deyja er að koma heim til Drottins, til okkar rétta heimilis sem við þráum. Ó, að við værum þar! Heimili án aðskilnaðar, sorga tára og þjáninga! Dauðinn er ávinningur, ekki tap. Fil. 1:21. Það sem bíður er mikið betra en það sem við lifum í og lifum við. Að deyja, er að vera borinn af englum í skaut Abrahams. Lúk. 16,22. Við verðum ekki skilin eftir alein við fljót dauðans, en í stað- inn fáum við að mæta herskörum af himneskum verum sem hafa feng- ið boð um að færa andann inn í sitt undursamlega heimili! Að deyja er að halda áfram að lifa. Lú.k. 20,28. Þegar Jesús talar um Abraham, fsak og Jakob, talar hann um þá sem lifandi, því að hon- um lifa allir. Já, svona undurfagurt útsýni opn- ast í orði Guðs fyrir trúaða, sem á pílagrímsför sinni eru að nálgast landamærin milli þessa lieims og hins komandi. — En Biblían vitnar líka greinilega um, að svona verður það ekki fyrir hina óguðlegu. Nú er um að gera að velja strax og velja rétta leið. Signe Ericsson. 25

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.