Afturelding - 01.08.1976, Side 9
LJOS I MYRKRINU
VALDIMÍR
Frásögulegu sjónarmiði, varð Rússland kristin
þjóð árið 998, þegar Valdimír prins hinn mikli og
einvaldi í Kíev, snérist til kristinnar trúar.
Samkvæmt gamalli þjóðsögn, um afturhvarf
Valdimírs, segir að hann hafi sannfærzt um þörf
sína í því að hverfa frá heiðindómi, en vissi ekki
hvaða form guðsdýrkunar hann skyldi aðhyllast.
Radziwill annállinn, skreytt handrit frá 15 öld,
sem ritað var af kristnum munkum er ein þeirra
fornu heimilda sem sýnir glöggt þau áhrif, sem
hinir fyrstu kristniboðar höfðu á rússnesku
þjóðina.
Valdimír prins gerði út sendinefnd, til að
fylgjast með guðsþjónustusiðum annarra Evrópu-
þjóða. Rússarnirkomu til borgarinnar Konstantí-
nópel, og gengu á fund keisarans, til að skýra
honum frá erindi sínu. í hinum fyrrnefnda
forna annál, segir svo um þennan atburð:
, ,Keisarinn innti þá eftir því, hver tilgangurinn
væri með komu þeirra. Þeir sögðu sem var, og
greindu honum frá öllu sem gerzt hafði. Þegar
keisarinnheyrðiþettavarð hann glaður við, og lét
senda svolátandi orðsending tii patrxarkisins:
, ,Rússarnir eru komnir til að kynna sér trú okkar.
Tilreið nú kirkju og klerka, svo að þeir geti séð
dýrð, okkar Guðs”. Og þeir héldu hátíðarguðs-
þjónustu, þarsem kirkjukórsöng. Þeir áttu engin
orð, til að lýsa aðdáun sinni og undrun, og
rómuðu guðsþjónustuna mjög
Það var þessi litríka lofgerðarguðsþjónusta,
með ívafi og fegurð fornra austurrómverskra
söngva, sem hreif hugi rússnesku sendinefndar-
innar. Eldmóðurinn og hrifningin í frásögn
sendimannanna, kom því til leiðar, að Valdimír
æskti þess enn frekar að land hans yrði kristið, og
leiddi að lokum til þess að hann lét það boð út
ganga, að allirþegnar hans skyldu taka kristna trú
og láta skírast. Allt þetta gerðist fyrir meira en tíu
öldum.
Það er kaldhæðnislegt, að maður með sama
vafni — Valdimír, var frumkvöðull að því að
Rússland tíu öldum síðar, tók guðleysi á
stefnuskrá sína. Okkur er fullkomlega ljóst í dag,
að ekkert valdsboð er þess megnugt, að fjarlægja
Anda Guðs og áhrif hans frá hjörtum fólksins.
Hvorki Valdimír prins tíundu aldarinnar, eða
Valdimír Lenín tuttugustu aldarinnar, eru færir
um að kristna eða afkristna Rússland. Því að Guð
hefur öll völd í sinni hendi, og saga mannkynsins
er óhjákvæmilega samtvinnuð guðlegri opin-
berun hans.
Jafnframt því, að Valdimír prins bauð kristni-
boðunum til Rússlands, og Valdimír Lenín gerði
þá útlæga þaðan, hefur tæknivæðing tuttugustu
aldarinnar flutt fagnaðarboðskap Jesú Krists til
þessarar þjóðar, þúsundir mílna á öldum
ljósvakans.
Og hver er svo árangurinn af þessum útvarps-
sendingum? Við skulum leyfa kommúnistaleið-
togunum að svara þeirri spurningu. í rýlegri
fréttatilkynningu frá Associated fréttastofunni,
láta kommúnistar í ljós enn á ný, ótta sinn og
andúð í garð árangursríkra útvarpssendinga á
fagnaðarerindinu, sem koma til Rússlands frá
öðrum löndum. Hér fylgir hluti af þessari
fréttatilkynningu:
,,Sovétríkin eru áhyggjufull út af því, að
kristilegt efni frá vestrænum útvarpsstöðvum,
hefur talsverð áhrif á sovézka borgara.”
Kommúnistar eru áhyggjufullir. Því að þrátt
fyrir grimmilegar ofsóknir og andkristilegan
áróðurí meira en 50 ár, hafa milljónir af rússum