Afturelding - 01.01.1984, Side 12

Afturelding - 01.01.1984, Side 12
/ álfu okkar gerast nú stór- stígar breytingar í Jjölmiðlun og ýmiss konar menningar- samskiptum. Ríkiseinokun rafeindafjölmiðlanna útvarps og sjónvarps er á fallanda fceti, enda beinlínis tímaskekkja á öld gervihnatta og kapal- kerfa. Með tilkomu öflugri gervihnatta, sem staðsettir eru á einskismannslandi himin- geimsins, verður kleift að dreifa dagskrám um stórt landsvœði, með tiltölulega litl- um kostnaði. Margir aðilar cetla að taka bátt í þessum leik og þeirra á meðal eru kristnir menn í Evrópu, sem nota útvarp og sjónvarp til boðunar fagnað- arerindisins. Fyrir skömmu var staddur hérlendis Len Johannson, Kanadamaður af scensku bergi brotinn, og kynnti hann trúboðafundi Hvítasunnumanna starf kanadíska sjónvarpsfélagsins „Crossroads Christian Com- munication Inc. (CCCI)" og þátt þess í vaxandi sjónvarps- starfi kristinna manna í Evrópu. I eftirfarandi viðtali segir Len Johannson frá kristilegu sjónvarpi vestanhafs og aust- an. Eitt skref í einu Viðtal við Len Johannson Upphafið Upphafsmaður þessa sjónvarps- starfs (CCCI) er David Mainse. Hann var forstöðumaður lítils hvítasunnu- safnaðar í Norður-Ontario. Honum fannst hann ekki ná til fólksins og fór því til sjónvarpsstöðvar staðarins og spurði: — Get ég fengið fimmtán mínútna þátt í dagskrá ykkar? Þeir svöruðu: — Já, fimmtán mínútur skaltu fá, en þú mátt ekki prédika. Strax í fyrstu útsendingu bauð hann fólki að hringja til þáttarins. Honum urðu á þau mistök að aug- lýsa símanúmer sjónvarpsstöðvar- innar, í stað þess að gefa upp núm- erið í.kirkjunni. Ef til vill var þetta Guðs vilji, því símaborðið hafði ekki undan hringingunum, starfsmenn- imir sögðu að það hefði ljómað eins og jólatré! Forráðamenn stöðvarinn- ar urðu yfir sig hrifnir og sögðu að

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.