Afturelding - 01.01.1984, Side 16
Þeir sem fylgdust með útsendingu sjónvarps frá
Eurovision Söngvakeppninni í Munchen á síðasta
ári muna eflaust eftir ungri sænskri stúlku sem lenti
þar í þriðja sæti með lag sitt „Frámlingen“. Carola
Hággkvist heitir hún og er aðeins sautján ára göm-
ul. Frá því hún kom fram í þessari keppni hefur hún
átt miklum vinsældum að fagna sem söngkona, en
þrátt fyrir þá upphefð sem slíku fylgir hefur hún
varðveitt trú sína á Jesú Krist, hið mikilvægasta í
lífi sérhvers manns. Þessi unga stúlka sem varð
fræg á einni nóttu Ijómar af gleði þegar hún segir:
Það er slökkt á myndbandinu,
tónlistin lækkuð og Carola
Hággkvist gengur inn á Hótel
Vaakuna til að halda blaða-
mannafund í tilefni af styrktar-
hljómleikum UNICEF, Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna, í
Helsingfors.
Blaðamannafundurinn tekur
fljótlega á sig mynd vakningar-
samkomu.
— Jesús er númer eitt í lífi
mínu. Ég hef lagt líf mitt í hend-
ur Guðs. Hann getur leitt mig
hvert sem hann vill og eins og
hann vill, segir Carola frammi
fyrir tuttugu blaðamönnum.
— Ég veitað Jesúseralltafhjá
mér, heldur hún áfram. Ég get
beðið til hans við símann, á
stoppistöðinni, já hvar sem er.
Nokkrum dögum fyrir Eurovi-
sion söngvakeppnina í Múnc-
hen, þar sem stjarna Carolu fór
að rísa, hætti hún í menntaskóla
til að geta hafið nám í Biblíu-
skóla um haustið.
— Ég vil læra meira um Jesú.
Því miður hef ég ekki getað
stundað nám mitt sem skyldi
sökum anna en ég hef hugsað
mér að snúa við blaðinu í vor. Ég
vona að ég hafi rýmri tíma þá.
Trú Carolu og fijálslegt við-
mót hefur hvatt marga til að lesa
Carola Hággkvist: