Afturelding - 01.01.1984, Page 19

Afturelding - 01.01.1984, Page 19
Ásmundur Eiríksson ásamt ei^inkonu sinni, Þórhiidi Jóhannesdóttur. ræðustól sinn átti hann mjög trúa og góða stuðningsmenn. Hann kenndi rétt út frá Nýja testamentinu og var til hinstu stundar trúr þeim boðskap. Ofsa og öfgum sneiddi hann hjá og leiddi söfnuðinn og blað sitt fram hjá öfgastefnum. Um leið og hann var maður Orðsins, þá var hann ekki síður maður fram- kvæmdanna. Frá grunni lagði hann hornstein starfsins hér í Fíladelfíu í Reykjavík, studdur af konu sinni Signe, Páli Einarssyni og Jónínu konu hans, Ólöfu Einarsdóttur og Þórhildi og Ásmundi Eiríkssyni. Vorið 1954 hóf Ericson að byggja Fíladelfíu í Keflavík. Hafði hann fengið góðar lóðir (tvær húsalóðir) við Hafnargötu 84. Þetta var þá í út- jaðri kaupstaðarins. Síðan hefir byggðin orðið sambyggð Njarðvík- urkaupstað og gegnir Fíladelfía Keflavík þjónustu Hvítasunnu- manna við þessa stóru byggð. Eric- son gat verið með og vígt húsið. En ekki mikið lengur. Eins og fyrr er skrifað, þá andaðist hann 17. janúar árið 1959, aðeinn 59 ára gamail. Það var stórt skarð fyrir skildi, við brottför Ericsons af þessum heimi. Hann virkaði alltaf sem mað- ur er hafði jafnvægi og skapaði kjölfestu. Nú við þessi tímamót Aftureld- ingar, getum við er að blaðinu stöndum glaðst yfir að „blaðið með boðskap", á erindi til þjóðarinnar og er stutt af mörgum velunnurum er leggja því lið. Stefnt er að markinu er Ericsson setti og frá markmiðinu hefir ekki verið hvikað. Ásmundur Eiríksson Ásmundur Eiríksson, annar rit- stjóri Aftureldingar, fæddist að Reykjarhóli í Fljótum, 2. nóvember árið 1899. En þar bjuggu foreldrar hans, Eiríkur Ásmundsson og Guð- rún Magnúsdóttir. Eftir afturhvarf sitt, sem hann lýsir vel í bókum sín- um „Skyggnst um af skapabrún", þá lét hann skírast ídýfingarskírn í október árið 1926. Skírandi hans var Arthur Gook trúboði á Akureyri. Ás- mundur var einn af stofnendum Fíladelfíusafnaðarins í Reykjavík 15. maí árið 1936. Var hann þar meðlim- ur nr. 7. Ásmundur varð Hólasveinn og sótti svo framhaldsnám í búvísind- um í Danmörku. Ásmundur var mik- ill hugmaðurog elja hansog dugn- aður mikill. Hann lýsir í fyrrgreindri bók sinni hákarlatúr fyrir Norður- landi á aflaskipinu „Maríönnu“, einhver fegursta sjóferðasaga skráð á íslenskt mál. Hugur hans stefndi til búskapar, en þá kom skástrik í reikninginn. Hann fékk berkla í bakið og var lagður inn á Kristneshæli. Sjúkling- ur var hann svo meira og minna um mörg ár. „Gullið þarf að ganga í log- ann, Guðelsk sál í reynslu eld“, er ljóðlína úr einum sálma Ásmundar. Þetta varð nú reynsla hans ár eftir ár. I þessum þjáningum og erfiðleik- um var einkum tvennt, sem hélt Ás- mundi uppi. Barnsleg trú á forsjón Guðs og framúrskarandi eiginkona, Þórhildur Jóhannesdóttir frá Kross- dal í Kelduhverfi. Skapgerð Ás- mundar var mjög fastmótuð og stefnuföst, arfur úr foreldrahúsum. Árið 1932 situr Ásmundur Biblíu- skóla í Stokkhólmi undir forsæti hins kunna kennimanns Lewi Pethrus. Þar hafði hann tíma til að bera saman kenningarnar við Heil- aga Ritningu. í ýmsu hafði Ásmund- ur verið uppfræddur á annan hátt, í öðrum jarðvegi. Markmið Ásmund- ar var að hafa það er sannara reynd- ist. Eftir heimkomuna frá Svíþjóð, þá er hann staddur í Betel Vest- mannaeyjum og á bænasamkomu. Þá skeður það. Hann fyllist Heilög- um Anda og fer að tala tungum og mikla Guð. Upp frá þeirri reynslu þá var stefnan mörkuð og strikið tekið. Hann varð Hvítasunnumaður. Tveim árum síðar, er hann með um að stofna þetta blað. Nafngift þess er hans. Var hann viðriðinn blaðið meira og minna um 40 ára skeið, sem aðstoðarritstjóri og síðar sem aðalritstjóri. Samvinna þeirra Ericsons og Ásmundar var með ágætum. Eftir að sá er þetta ritar gerðist ritstjóri var samvinnan við Ásmund alla tíð góð. Auk forstöðu- I mannsstarfa í Betel, Eyjum, um 5

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.