Afturelding - 01.01.1984, Qupperneq 21

Afturelding - 01.01.1984, Qupperneq 21
Vitnisburður „Ég endur- fæddist” Ég elska að lofa Drottin minn og Frelsara, sem hefursvo mikið gert fyrir mig, og allt mannkyn- ið í heild. Sumarið ’74 endurfæddist ég, eða með öðrum orðum, ég frels- aðist. (Jóh. 3:3). Það var dásam- legur hamingjudagur í lífi mínu. Allt lofaði Drottin. Hjarta mitt brann af ólýsanlegri gleði. Sólin skein miklu skærar en hún hafði nokkru sinni gert fyrr. Mér fannst grasið miklu grænna og lóan gaf Drottni, skapara okkar, dýrðaróð. ÓGuðþú sem elskar allt, og umvefur heiminn i vonsku sinni. Og maöurinn er blindur í munaði sínum ogsérþig ekki. En hafsins bylgjur syngja þér óð, um ástina ogfriðinn. Allt sem andardráll hefur það lofarþig. En maðurinn er blindur í munaði sínum hann sér þigekki. í Davíðssálmi 148 (lesandinn lesi hann) talar Davíð um að öll sköpunin lofi Drottin okkar og Frelsara. En Jesús hefurekki lofað okk- ur stormalausri ævi og margt hefur á daga mína drifið síðan ég meðtók Krist, oft hafa komið sterkir stormar og hörð haglél, en hann hefuraldrei brugðist. í Markús 4. 35 — 39 stendur skrifað: Að kvöldi sama dags sagði hann við þá: ‘Förum yfir uml’ Þeir skildu þá við mann- fjöldann og tóku Itann með sér, þar sem hann var, í bátnum, en l>óra Björk Benediktsdóttir. aðrirbátar voru með honum. Þá brasl á stormhrina mikil, og féllu öldurnar inn í bátinn, svo við lá, að hannfyllti. Jesús var í skutnum og svaf á kodda. Þeir vöklu hann og sögðu við hann: 'Meistari, hirðir þú ekki um að viðförumst?’ Hann vaknaði, hastaði á vindinn og sagði við vatnið: ‘Þegi þú, hafhljótt um þigl’ Þá lœgði vindinn og gerði stilli- logn. “ Þú vinur minn sem lest þessar línur. Jesús er hinn sami í dag. Hann sagði: ,,Sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda ver- aldarinnar. “ Hann elskar þig og þekkir vandamál þín. Komdu bara eins og barnið, og eins og þú ert. Mundu að það var hann sem sýknaði bersyndugu kon- unasemáttiað grýta. Jesús er hinn sami í dag og kraftur hans er eilífur fyrir Heilagan anda. Það hef ég svo oft reynt. Kær kveðja til þín, í Jesú nafni. Þóra Björk

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.