Afturelding - 01.01.1984, Side 22
Sam DaníelGlad:
Biblían —
innblásið orð Guðs
Biblían er mjög sérstæð bók. Sá
boðskapur er hún flytur okkur er
ekki frá mönnum koniinn og hún
gerir þá kröfu að vera Guðs orð. En
það er til fólk sem dregur þetta í efa.
Það heldur því fram, að Páll postuli
segi hluti sem stríði í gegn því er Jes-
ús prédikaði og að Gamla Testa-
mcntið sýni okkur aðra Guðsynd en
það Nýja og svo þar fram eftir götun-
um. Við skulum nú ekki fjalla um
slíka hluti, heldur sjá hvað Biblían
segirsjálf.
Biblían er bók sem fjallar um
manninn, skapaðan í Guðs mynd,
fall hans og veg Guðs til frelsis fyrir
hann. Og sá Guð sem Biblían opin-
berar okkur er Hinn sami bæði í
Gamla og Nýja testamentinu. Hins
vegar vex sú inynd er við fáum af
Guði með hverri bók sem í Biblíunni
er. Við getum því safnað saman öll-
um þeim stöðum sem fjalla um Guð
og sjáum þá hversu stórkostlegur
hann er. Biblían reynir aldrei að
sanna tilveru Guðs heldur gengur út
frá því sem vísu að Guð sé til.
Biblían er okkur af Guði gefin.
Hún er opinberun Guðs til okkar.
Þ.e.a.s. hún cr tilkomin vegna Guðs,
en Guð notaði menn til að skrá það
sem þar er skrifað. Um fjörutíu ein-
staklingar hafa skrifað Biblíuna á um
1600 ára tímabili. Lítum aðeins nán-
ar á tilkomu Biblíunnar og innblást-
ur.
Hún er skrifuð af fólki, ekki neinu
yfirnáttúrlegu fólki, heldur venju-
legu fólki sem Guð hefur útvalið til
þess. Guð getur sent fullkominn
boðskap gegnum ófullkomna mann-
eskju. Þannig getur Guðs orð einnig
dregið einhvern keim af þeim erbáru
það fram. Því hver einstaklingur
notar þann orðaforða og það orðalag
sem honum er tamast.
Biblían er rituð jafnt af lærðum
sem leikum. Þar eru lærðir menn
eins og Móse, Daníel, Páll og Lúkas.
Og svo fjárhirðirinn Amos og sjó-
maðurinn Pétur, svo nokkur dæmi
séu tekin. Boðskapurinn sem höf-
undarnir bera fram, ber alltaf ein-
hvern keim af persónuleika þeirra og
svo af því límabili er þeir lifðu á. En
þetta rýrir ekki gildi boðskaparins
sem orð Guðs á neinn hátt.
Guð notar okkur eins og við erum.
Þegar Guð tekur mann í sína þjón-
ustu þá notar hann þann mann með
þær gáfur og þá hæfileika er viðkom-
andi hefur. Það sýnir okkur líka mátt
og mikilleik Guðs. Við sjáum mörg
dæmi einmitt um þetta. T.d. hvernig
Davíð vann á Golíat. Sál reyndi að fá
hann til að klæðast herklæðum sín-
um. Davíð klæddist þeim. En hann
fann sig ekki í slíkum klæðum, hafði
aldrei klæðst slíku, hvað þá barist í
slíkum klæðum. Hann notaði það
vopn er honum var tamast og Guð
gaf ísraelsmönnum sigur.1 Það sama
sjáum við einnig er Sagmar Anats-
son felldi Filisteana með staf sínum.2
Og Samson notaði asnakjálka.3
Andi Guðs kom sem sagt ylir
menn sem höfðu ólíkan bakgrunn
eða fortíð og gaf þeim þann boðskap
er þeir skyldu skrá. Hann notaði
þann orðaforða er þeir þekktu og
þær myndir er þeir könnuðust við.
En við sjáum t.d. persónuleika
Sam Daníel Clad lauk
námi frá Bihlíuskólan-
um IBTI, I Knglandi,
árið 1974. Hann er nú
aðstoðarforstöðumað-
ur Fíladelfíusafnaðar-
ins í Reykjavík.