Afturelding - 01.01.1984, Side 27
RLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR
Biblían gefín út á 1800 tungu-
málum
Samkvæmt nýjustu heimildum hefur
Biblían í heild eða hlutar hennar verið
gefin út á nærri 1800 tungumálum. Fyrir
tíu árum síðan stóð þessi tala í 1457
tungumálum. En enn er mikið starf
óunnið. Biblían í heild hefuraðeins verið
þýdd á 279 tungumál og enn er langt í
land með heildarþýðingu allra hinna út-
gáfanna.
En stefnan er skýr og unnið er að því að
sem allra flestir fái Biblíuna þýdda yfir á
sitt móðurmál. Nú sem stendur vinna
Sameinuðu Biblíufélögin að þýðingu
Biblíunnar yfir á 574 tungumál. Ekki ein
einasta bók Bibliunnar hefur áður verið
þýdd á 375 þessara tungumála. Afríka fær
þýddar269 Biblíur eða Biblíuhluta og þar
af eru 206 frumútgáfur. Asía fær 269
þýðingar og þar af eru frumútgáfuf 141
talsins.
LG184
Vakningar tími í þrjátíu ár
í desember 1983 hófu Assemblies of
God sínar fyrstu útvarpssendingar. C.M.
Ward, trúboði, tók hljóðnemann í sínar
hendur og boðaði fagnaðarerindið í veik-
um sendi.
Þrjátíu árum síðar sendir Rivival time
(Vakningar tími) út efni yfir 561 stöð.
C.M. Ward gegndi starfi útvarpstrúboða
allt til ársins 1979 og var hann virtur af
milljónum hlustcnda fyrir kynningu sína
á fagnaðarerindinu. Nú hefur Dan Betzer
tekið við hlutverki hans. 1980 hófut út-
sendingar nýs þáttar, sem ber nafnið:
Every day with Jesus (Dag hvem með
Jesú).
KS284
Opinberir staðir í ísrael
reyklausir frá 1. febrúar!
1. febrúar síðastliðinn tóku gildi í ísrael
ný og ströng lög um reykingar. Nú ntá
enginn lengur reykja eða halda á logandi
sigarettu, vindlingi eða pípu á opinberum
stöðum. Þeir sem óhlýðnast þessum nýju
reglum þurfa að greiða því sem nemur
1.700 krónum íslenskum í sekt.
Opinberu staðirnir eru sérstaklega til-
greindir: bíóhús, leikhús, hljómleikasalir,
dansstaðir, fundastaðir, sjúkrahús og
tannlæknastofur. Ennfremur apótek,
bókasöfn, skólar, lyftur, strætisvagnar fyr-
ir átta manns eða fleiri, leigubílar og
mini-strætisvagnar fyrir minnst sjö
manns. í öllum lyftum hefur verið komið
fyrir upplýstum skiltum með áletruninni:
„Reykingar bannaðar!" og vanræksla
varðar sektum að upphæð kr. 3.400
íslenskum.
KS184
8.000 manns frelsast í
Suður-Afríku
8.000 manns tóku, ekki alls fyrir löngu,
á móti Jesú sem frelsara sínum í vakning-
arsamkomum scm haldnar voru í Kwa-
Terna, S-Afríku. Ræðumaður var Liz
Nutt, frá Assemblies of God i Bandaríkj-
unum. Samkomurnar stóðu yfir í tvær
vikurog í þeim læknuðust margiraf hin-
um ýmsu sjúkdómum.
KS284
Ný Biblíuþýðing á
„Afrikans“ orðin metsölubók
Jóhannesarborg (NÖP/LWI) Ný þýð-
ing Biblíunnar yfir á Afrikans, sem kom
í bókabúðir í Suður-Afríku 2. desember
síðastliðinn, hefur þegar markað sér bás
sem metsölubók. Fyrsta upplagið, sem
gefið var út í 250.000 eintökum er nánast
uppselt. G.E. van der Merwe, forstöðu-
maðurog yfirframkvæmdastjóri S-Afríku
hluta alþjóðlegu Biblíusamtakanna UBS,
telur að eftirspum cftir þessari útgáfu eigi
sérenga hliðstæðu í sögu Biblíusölu.
KS184
259 skírðir í einni og sömu
samkomunni
Þegar þess var minnst í nóvemberá síð-
asta ári, í The Church of God söfnuðin-
um í Manila, Filippseyjum, að þrjú ár
voru liðin frá stofnun hans, voru 259
manns skírðir í einni samkomu. Rúmlega
2.500 manns tóku þátt í samkomunni og
200 manns tóku á móti Jesú sem frelsara
sínum. Hvítasunnuvakningin er mjög
sterk á Filippseyjum, sem er eina kristna
landið í Asíu.
KS284
Heimsmót hvítasunnumanna
1985
Heimsmót hvítasunnumanna er haldið
þriðja hvert ár og 1985 fellur í hlut Sviss-
lendinga að sjá um framkvæmd þess.
Verður það haldið dagana 2.-7. júlí í
Ziirich, en það var einmitt í þeirri borg
sem fyrsta heimsmótið var haldið. Yfir-
skrift mótsins verður: „Jesús Kristur —
von heimsins." Fólk bíður hvarvetna í
eftirvæntingu eftir að fá að heyra þekkta
prédikara, víðsvegar að úr heiminum,
tala út frá þeirri yfirskrift.
KS184
14th PENTECOSTAL
W0RLD
CONFERENCE
SWITZERLAND
ZURICH • JULY 2-7
1985
ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR