Afturelding - 01.01.1984, Blaðsíða 30

Afturelding - 01.01.1984, Blaðsíða 30
Ef við trúum ekki, að Guð heyri bænir okkar, þá gerum við hann að veru, sem er ófullkomnari en sköp- unarverk hans. Manni finnst létt að gefa öðrum þau ráð, sem maður þarfnast mest sjálfur. Margir menn gleyma Guði allan daginn, en þegar kvöldið kemur biðja þeir Guð að gleyma sér ekki. Afturelding 3. tbl. 1939, bls. 36 Óbrigdult medal. Amerískur biskup mætti á göngu sinni lækni, sem bauð honum að aka með sér í bíl sínum í staðinn fyrir að ganga. Læknirinn var mikill vantrúarmaður. Eftir dálitla stund snerust samræðurnar að trúmál- um. „Ég er alveg undrandi yfir því,“ sagði læknirinn, „að svo skynsam- ur maður og þú ert, skulir geta trúað slíkum gömlum skröksög- um.“ Biskupinn svaraði ekki strax, en eftir stundarkorn sagði hann: „Læknir, við skyldum álykta sem svo, að fyrir nokkrum árum hefði einhver mælt með læknisaðferð við lungnabólgu og gefið yður leið- beiningar í því efni. Síðan hefðir þú keypt þessi meðul og notað þau eftir fyrirsögninni og fengið lækn- ingu. Segjum svo, að þú hefðir not- að þessa aðferð í læknisstörfum þínum alltaf síðan og fundið hana óbrigðula, ef farið var samkvæmt leiðbeiningunum, hvað mundir þú segja um þann mann sem ekki vildi trúa orðum þínum og ekki heldur vildi reyna þessa aðferð?“ „Ég mundi álíta hann vera mesta heimskingja," svaraði læknirinn. Þá sagði biskupinn: „í 25 ár hefi ég nú reynt náðarkraft Guðs til frelsis. Hann breytti mér algerlega, þegar ég tók trú á Krist. í öll þessi ár hefi ég prédikað þetta frelsi fyrir öðrum, og þegar menn hafa veitt því viðtöku, þá hefir það aldrei brugðist. Ég hefi séð drambsama menn verða auðmjúka, drykkju- menn verða reglusama, blótsama menn hafa hætt við blótsyrðin, óráðvandir menn hafa orðið ráð- vandir. Ríkir og fátækir, lærðir og ólærðir, gamlir og ungir hafa á lík- an hátt fengið „lækningu“ við sjúk- dómum syndarinnar. „Já, þú hefir sannfært mig bisk- up,“ sagði læknirinn, „það er ég sem hefi verið heimskur." En þetta er ekki endirinn. Þessi vantrúaði læknir snerist algerlega til Krists og fór að starfa fyrir hann. Hann gerðist forstöðumaður fyrir mjög blessunarríku sunnudags- skólastarfi. Aftuelding 3. tbl. 1939, bls. 36 Það var einu sinni rammur frí- hyggjumaður sem átti heima í verksmiðjuþorpi nokkru erlendis. Hann vildi alls ekki heyra orð Guðs eða hafa nokkuð með Guð að gera. Svo bar það til að vakninga- prédikari kom til þorpsins og fór að boða fagnaðarerindið um Jesúm Krist, að margar sálir komu til við- urkenningar á sannleikanum. Frí- hyggjumaðurinn heyrði margt um þennan skrítna mann talað og ræð- ur hans, og gerðist því harla forvit- inn. Hann ákvað því með sjálfum sér, að hann skildi fara á samkomu til þess að sjá ræðumanninn, en ekki vildi hann heyra eitt einasta orð; því hafði hann heitið konunni sinni með handabandi. Þegar hann kom í samkomuhús- ið nam hann staðar á ganginum og beið eftir að sjá ræðumanninn, og þá ætlaði hann að flýta sér út. En er samkoman byrjaði komst hann ekki út fyrir fólksfjöldanum, sem fyllti alla ganga. Nú voru góð ráð dýr. Hann tók þá til þess ráðs, að stinga fingrunum upp í eyrun á sér, til þess að hann heyrði ekki neitt. En guð hefir marga vegi og mörg ráð. Þegar ræðan stóð sem hæst kom fluga og settist á nefið á hon- um, svo hann klæjaði óþægilega. Hann fór að blása: Fu, fu, fu og flugan fór. En eftir litla stund kem- ur hún aftur og settist aftur á nefið á honum hann fór aftur að blása af öllum mætti: Fu, fu, fu, fu, en ekk- ert dugði. Flugan situr kyrr á sín- um stað á nefinu. Þá brá fríhyggju- maðurinn sem snöggvast hendinni upp að nefinu. En um leið hrópaði ræðumaðurinn: „Blóð Jesú, Guðs sonar, hreinsar oss af allri synd.“ Það var nóg. Verk Guðs var byrj- að í hjarta þessa manns, og eftir skamma hríð tók hann trú á þann Guð, sem hann áður hafði fyrirlitið og hatað. Úr sænsku blaði. J.S.J. Bergstad. Afturelding 1. tbl. 1941, bls. 11. Fríhyggjumaðurinn og flugan.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.