Afturelding - 01.01.1984, Qupperneq 31

Afturelding - 01.01.1984, Qupperneq 31
Minnst látinna f Jónína Pálsdóttir f. 28.05.1901 d. 06.02.1984 Jónína Pálsdóttir fæddist að Kerl- ingadal í Mýrdal og var dóttir hjón- anna Páls Bárðarsonar og Oddnýjar Andrésdóttur. 3. janúar árið 1925 giftist hún eft- irlifandi manni sínum, Páli Júlíusi Einarssyni, vélstjóra. Varaði hjóna- band þeirra í rösk 54 ár. Eignuðust þau sjö börn, af þeim hópi misstu þau þrjá drengi, en eftir lifa Andrés, Margrét, Hanna og Súsanna. Jónína andaðist að hjúkrunar- deild Hrafnistu í Reykjavík, 6. febr- úar síðastliðinn. Skorti hana þá tæpa íjóra mánuði í fullnuð 83 ár lífsgöngu sinnar hér í heimi. Nú við dánardægur Jónínu voru afkomend- ur þeirra hjóna 53. Söfnuðrinn kveður góða, trúfasta systur. Sæti hennar er autt, en minningin björt og fögur. Við erum fátækari en himinninn ríkari. Með innilegu þakklæti í Jesú nafni. Leiðrétting: í síðasta tölublaði var rangt farið með nöfn tveggja einstaklinga í grein um Kotmúla í Fljótshlíð. Rétt f Ingigerður Guðjónsdóttir f. 01.05.1897 d. 19.02.1984 Ingigerður Guðjónsdóttir fæddist að Guðnastöðum í Austur-Landeyj- um, dóttir þeirra hjóna Guðjóns Jóngeirssonar og Guðbjargar Guðnadóttur. Var hún elst níu systkina. 14. maí árið 1918 giftist hún Guðna Markússyni, Kirkjulækjar- koti í Fljótshlíð. Bjuggu þau þar all- an sinn búskap. Eignuðust þau níu börn. Missti hún eiginmann sinn 4. mars árið 1973. Ingigerður andaðist eftir þung og erfið veikindi af völdum heilablóð- falls 19. febrúar síðastliðinn á Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík. Það er skarð fyrir skildi við brottför hennar. Við dánardægur hennar voru afkomendur 121. Eftir 34 ára samfylgd kveður söínuður Hvítasunnumanna Ingi- gerði Guðjónsdóttur og þakkar henni góð og þung lóð á vogar- skálum Drottins. Minning hennar verði blessuð í Nafni Jesú Krists. er: Guðbjörg Jónasdóttir og Magn- ea Sigurðardóttir og eru hlutaðeig- andi beðnir velvirðingar. t Sigurveig Aðalsteinsdóttir f. 24.08.1908 d. 19.02.1984 Sigurveig Aðalsteinsdóttir fædd- ist í Vopnafirði og ólst hún þar upp við öll algeng störf. Hún var af góðu fólki komin og fékk orð trúarinnar í sig sem barn. Meira en 40 ár starfaði hún að líknarmálum á elliheimilinu Grund í Reykjavík. Hún kom sér þar ákaf- lega vel, vegna mikils hlýleika og kærleika er henni var í brjóst bor- inn. Árið 1971 gekk hún í Fíladelfíu- söfnuðinn í Reykjavík og stóð þar órofa síðan. Hún elskaði söfnuð sinn og var virk í starfi hans, til hinstu stundar. Sigurveig átti við vanheilsu að búa hin síðari ár, en hún var alltaf bjartsýn og trú hennar bar hana uppi í þjáningum og nauðum. Hún andaðist á Grund í Reykja- vík, 19. febrúar síðastliðinn og var síðan jarðsungin á Vopnafirði. Með Sigurveigu er gengin heil- steypt kristin kona er ekki mátti vamm sitt vita í neinu. Við vinir hennar geymum bjartar minningar um góða konu sem gengin er á Drottins fund. AFTURELDING 51. árgangurl. tbl. 1984 Útgefandi: Blaða- og bókaútgáfan, Hátúni 2. 105 Reykjavík. Simi 91-20735/25155. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Einar J. Gíslason. Blaðamaður: Matthías Ægisson. Setnlng og prentun: Prentstofa G. Benediktssonar. Uppsagnir miðast við áramót. Vinsamlegast tilkynnið breytingar á áskriftum og heimilisföngum til skrifstofunnar. Árgjaldiðer350krónur. Ég óska eftir að gerast áskrifandi að AFTURELDINGU Nafn --------------------------------------- Heimili -------——--------------------------- Póstnr. ---------------Póststöö ------------ Hönnun forslöuleturs: Guðjón Hafliðason Forsíöumynd: Jón Ögmundur Þormóðsson. Myndin er tekin i Bessastaðakirkju af listaverki Guðmundar Einarssonar frá Miðdal, og sýnir Guöbrand biskup halda á Guöbrandsbibliu.

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.