Afturelding - 01.12.1987, Page 5
kirkjunni þar sem við syngjum
fallegu jólasálmana. Heldur
skulum við hlusta á boðskapinn
í orði Guðs um að „okkur sé
í'relsari fæddur"; lausnari sem
vill frelsa okkur frá einmana-
leika, kulda og vonleysi í heirn-
inum.
Gleðileg jól
Við göngum hægt heimleiðis.
Bærinn er fallega prýddur ljós-
um og jólaskrauti. Himinninn er
heiður og stjörnubjartur. í mið-
bænunr stendur stórt jólatré,
skreytt Ijósum og með stjörnu á
toppnum. Allir eru vingjarnlegir
og heilsa — gleðileg jól! Heima
bíður hangikjötið og rúsínu-
grauturinn eftir fjölskyldunni.
Nú rennur stóra stundin upp
— hápunktur kvöldsins. Hurðin
inn í stofuna er opnuð. Við
göngum inn og kringum upp-
Ijómað jólatréð. Augu barnanna
tindra. Allt er fallegt og við crum
hrærð af hugsuninni um sigur
Ijóssins. Aftur syngjum við jóla-
sálma, meðan börnin gjóa löng-
unarfullum augunum á jóla-
pakkana undir trénu. En fyrst
skulum við syngja um barnið í
jötunni og hlusta á jólaguðspjall-
ið. Síðan deilum við út gjöfun-
um. Allir fá eitthvað — og hver
og einn fær fleiri en einn pakka.
„Þetta var einmitt það sem ég
hafði óskað mér.“ Kærar þakkir!
Jólin koma
Jólin koma sem staðfesting á
kærleikanum milli manna og
sem boðskapur englakórsins.
,,Dýrð sé Guði í upphæðum, og
Iriður á jörðu með mönnum,
sem hann hefur velþóknun á.“
Dagurinn er kominn — öllu
heldur nóttin, sem var ekki lík
nokkurri annarri nótt. Hann,
sem varGuði líkur, varð manns-
barn og tók sér bústað meðal
okkar. Hvílík heimsókn! Hvílík-
ur atburður í mannkynssögunni!
Samt kom hann í kyrrð og auð-
mýkt. Fáir voru vakandi nóttina
sem hann fæddist í jötu, og
margir hafa enn þann dag í dag
ekki uppgötvað konungsson
himinsins, frelsara hcimsins.
Gjöf gjafanna
Hann er gjöf gjafanna og gjöf
Guðs á öllum tímum, til allra
kynslóða og allra kynþátta. Okk-
ur er í dag frelsari fæddur! Við
öðlumst frið í hjartað — þann
frið sem er forsenda friðar á
jörðu, ef við tökum á móti frels-
ara heimsins og lifum með hon-
um, þökkum, lofum, hlýðum og
þjónum honum.
Jólin eru verk Guðs. Þau
koma ekki vegna jólaljósa og
greniilms. Sonur Guðs varð
mannsbarn, til þess að við gæt-
um orðið börn Guðs. Það er gjöf
Guðs til okkar. Jólin koma frá
Guði. Jól, það er Jesús. Þegar
við opnum hjarta okkar og tök-
um á móti frelsun hans, þá fáum
við að reyna sanna jólahátíð.
- ÞýltGM