Afturelding - 01.12.1987, Síða 10
komnar tæplega 7000 konur frá
meira en 60 löndum. Þetta var
virkilega yndislegt mót, við
fundum sterklega fyrir nærveru
Heilags anda.
Við urðum allar vitni að stór-
kostlegri lækningu. Mótið byrj-
aði þannig að í upphafi komu
fulltrúar hverrar þjóðar í þjóð-
búningi og með fána þjóðar
sinnar. Þetta var mjög hátíðleg
athöfn og snerti við fólkinu.
Jane Hansen forseti samtakanna
setti mótið og var rétt byrjuð á
ræðunni, þegar truflun varð á
samkomuna vegna þess að kona
nokkur hafði fengið hjartaáfall.
Það var komið með sjúkrabíl til
að sækja konuna og hún lá þarna
milli heims og helju. Þarna var
maður sem hafði beðið opnun-
arbæn, og Jane bað hann að
koma að biðja. Hann sagði að líf
og dauöi væri á tungunnar valdi,
og nú skyldum við skapa líf með
orðum okkar. Hann bað okkur
að rétta út hendurnar til þessar-
ar konu og biðja fyrir henni. All-
ir réttu hendur sínar að henni og
svo var beðið. Þá gerðist það að
konan reis upp af sjúkrabörun-
um ogstóð upp. Læknarnir vildu
samt ekki sleppa henni og fóru
með hana til að rannsaka hana.
En hún kom seinna og gaf vitnis-
burð á mótinu.
Læknarnir sögðu að hún hefði
verið nærri dáin og samkvæmt
þeirra útskýringum var þetta
kraftaverk. Hún hefði ekki get-
að læknast svona nema fá með-
ferð, og ef til vill hefði það ekki
nægt heldur. Þessi kona er
heilbrigð í dag. Eftir þetta
braust út mikil lofgjörð og þakk-
argjörð til Drottins. Fólk fylltist
eftirvæntingu fyrir bragðið.
Gjafir andans voru virkar og
varð að grípa til þess ráðs sem
Páll gefur í I. Korintubréfi að
ekki fleiri en þrír skuli tala tung-
um. Fólk kom upp og var athug-
að hvað það hefði fram að færa.
Spádómarnir áttu það sameigin-
legt að boða nýja tíma og segja
að Guð væri að hrista upp í
kirkju sinni. Guð er að undirbúa
fólk sitt fyrir komandi vakningu
og Guð á eftir að kalla konur í
ríkari mæli en áður til þjónustu.
A kvöldin voru góðir prédik-
arar svo sem Jamie Bucking-
ham, James Robinson, Anne
Gimenez. Þau heyrðu ekki ræðu
hvert annars, en samt kom
margt svipað fram hjá þeim, um
að Guð sé að hræra kirkju sína
til lífs og helga lýð sinn til sigurs.
Það er líf og það er helgun.
Anne sagði að nú væri að koma
mikið náðartímabil yfir kirkjuna
á sama tíma og erfiðleikar yrðu í
efnahagslífinu. Samkvæmt gyð-
inglegu tímatali verður þetta
„Fagnaðarár," þ.e.a.s. ár þegar
ísraelsmenn gáfu upp allar sak-
ir, fangar fengu lausn og skuld-
unautar uppgefnar skuldir. Hún
taldi að þetta yrði mikið náðar-
ár.
Á þessu móti var beðið fyrir
mörgum og stundum var komið
með þekkingarorð. Eg minnist
einnar konu sem sagðist finna að
einhver viðstaddra ætti í vand-
ræðum með vörtur. Svo hló hún,
því henni fannst hálfbjánalegt
að koma með þetta. En svo gaf
ein sig fram sem átti í raun og
veru við alvarlegt vandamál að
stríða og hafði þurft að fara til
læknis í aðgerð. Henni var sagt
að ef hún mundi snerta sjúka
staðinn og beina sjónum sínum
til Drottins, mundi hún læknast.
Þessi kona fékk að reyna það
Það sem snerti mig mest á
þessu móti var að hitta svo marg-
ar konur frá svo mörgum þjóð-
um. Maður er oft svolítið ein-
angraður í hugsun uppi á Isl-
andi. Þarna voru m.a.
þcldökkar konur frá Al'ríku og
það var sama hvaðan þær komu,
sami andinn var alls staðar. Það
var yndislegt að vera saman.
Skipulag „Aglow“
sumtakanna
Starfið í aðalstöðvum
„Aglow“ er fjármagnað með út-
gáfustarfsemi, en „Aglow“ sam-
tökin á hverjum stað eru sjálf-
stæð. Einu sinni á ári er haldinn
stefnumarkandi fundur, og hann
sækja fulltrúar úr öllum heims-
álfum.
„Aglow“ samtökin hafa áunn-
ið sér mikla virðingu. Virtir
trúboðar í Ameríku eins og Jam-
ie Buckingham hafa gefið
„Aglow" mjög gott orð og
„Aglow" hefur fengið viður-
kenningu fyrir útgáfustarfsemi.
Roger Larsson, sem var nýlega í
heimsókn hér á landi, er ráðgjafi
fyrir „Aglow" í Svíþjóð. Hann
sagði að mikil gróska væri í
„Aglow" hreyfingunni í Svíþjóð
og að Guö notaði „Aglow" mjög
mikið í vakningunni þar.
í stjórn „Aglow" á íslandi eru
auk mín Beverly Gíslason vara-
formaður, Guðfinna Helgadótt-
ir gjaldkeri og ritarar eru Janet
Cosshall og Björg Davíðsdóttir.
Stjórnin er kosin til tveggja ára.
Auk þess höfum við þrjá ráð-
gjafa, sem kosnir eru til eins árs í
senn. Þeir eru Hafliði Kristins-
son forstöðumaður í Fíladelfíu,
Björn Ingi Stefánsson forstöðu-
maður í Veginum og séra Hall-
dór Gröndal sóknarprestur í
Grensásprestakalli. Ég vil taka
það fram að við erum mjög
þakklátar fyrir þeirra framlag og
þjónustu við „Aglow".
Viðtal: Guðrún Markúsdóttir