Afturelding - 01.12.1987, Blaðsíða 39
0
villutrúar. Munið livað menn-
irnir í Beroju gerðu á tímum
Páls: Peir tóku með ákafa á móti
boðskap spámannanna, síðan
rannsökuðu þeir Ritningarnar
til þess að athuga hvort spá-
mennirnir færu með rétt mál.
Rannsakaðu Ritningarnar dag-
lega til þess að athuga hvort boð-
skapur prédikaranna sé réttur,
þá mun þér farnast vel.
Trúmennska. „Og í hverju því
verki, er hann tók sér fyrir hend-
ur viðvíkjandi þjónustunni við
musteri Guðs, og lögmálinu og
boðinu um að leita Guðs síns,
breytti hann af heilum hug og
varð auðnumaður." (II. Kron-
íkubók 31:21). Hiskía konungur
leitaði Guðs af öllu hjarta og
honum farnaðist vel. Jesús sagði
að hver sem bjargaði lífi s.ínu
myndi týna því, en hver sem
týndi lífi sínu hans vegna myndi
bjarga því. Hvort sem þú ert
með eigin atvinnurekstur eða
starfar hjá öðrunt, er trú-
mennskan algjört skilyrði. Ef þú
segir að þú hafir reynt að helga
þig af öllum mætti, en ekki tek-
ist, þá ert þú á rangri lcið.
Gleðjumst í Drottni. Lestu
þetta sterka fyrirheit í Sálnnm-
um 1:3: „Hann er sem tré, gróð-
ursett hjá rennandi lækjum, er
ber ávöxt sinn á réttum tíma, og
blöð þess visna ekki. Allt er
hann gjörir lánast honum.“ Eitt
af skilyrðunum sem uppfylla
þarf til að erfa þetta fyrirheit er
nefnt í 2. versinu. „(Hann) hefir
yndi af lögmáli Drottins." Ef þú
i gleðst í Drottni, mun harin veita
þér það sem hjarta þitt þráir.
Ein leið til að gleðjast í
Drottni er að gleðjast yfir starfi
þínu — ekkert japl, jaml eða
fuður. Ef þú nöldrar og möglar,
þá þarft þú alveg örugglega að
þramma 40 hringi aukalega i
eyðimörkinni.
Þú getur líka glaðst í Drottni
með lofgjörð. Guð býr í lofgjörð
fólks síns, og ég trúi jrví að Bibl-
ían sýni víða að djöfullinn sé í
mögli Guðs fólks.
Notum hœfileika okkar. Þú
munt ekki hagnast eðlilega, ef
þú notar ekki hæfileika þína. Ef
þú hefur hæfileika til að mála og
teikna, málaðu þá og teiknaðu.
Ekki fela talentu þína undir
mælikeri. Guð vill að þú gerir þá
hluti sem hann hefur gefið þér
hæfileika til. Hæfileikar þínir
eru ókeypis gjöf frá Guði; þú átt
að gefa þá Guði og öðrum
ókeypis aftur.
Verum syndlaus. „Sá sem dyl-
ur yfirsjónir sínar, verður ekki
lángefinn, en sásemjátar þærog
lætur af þeim, mun miskunn
hljóta. (Orðskviðirnir 28:13).
Guð mun láta þér farnast vel,
ef þú játar syndir þínar fyrir hon-
um og öðrum. Sýndu undirgefni
og guðsótta með því að afhjúpa
syndir þínar. Ef þú dylur syndir
þínar, gefur þú djöflinum tæki-
færi til að stela frá þér aftur.
Verum hrein frammi fyrir Guði
og hann mun láta okkur farnast
vel.
Tíund og fórnargjafir. „Færið
alla tíundina í forðabúrið til þess
að fæðsla sé til í húsi mínu, og
reynið mig einu sinni á þennan
hátt — segir Drottinn allsherjar
— hvort ég lýk ekki upp fyrir
yður flóðgáttum himinsins og út-
helli yfir yður yfirgnæfanlegri
blessun." (Malakí 3:10). Ein-
hver ásakaði mig einu sinni fyrir
að dirfast að segja að ef fólk gæfi
ekki tíund hvíldi á því bölvun.
Ég ákvað þetta ekki, Biblían
segir það. Eg hef aldrei getað
skilið hvernig maður ætlar að
komast til himins án þess að hafa
greitt tíund. Hvernig getur
nokkur stolið frá Guði og jafn-
framt komist til himins?
Gefum fátækum. Guð vill að
fólk hans hafi samúð með fátæk-
um, hvort sem það er maðurinn í
götunni seni var að missa vinn-
una, eða svöngu börnin í Kal-
kútta. Að gefa fátækum er eins
og að lána Guði — hann mun
endurgjalda þér.
Biblían vísar okkur leiðina til
velfarnaðar. Hún leiðbeinir
okkur einnig varðandi meðferð
þeirra fjármuna sem við eigum
nú þegar.
Yfirleitt ættum við ekki að fá
lánaða peninga. Vissulega eru til
skynsamlegar lántökur, eins og
afbprganir af bíl eða kæliskáp,
svo að þú þurfir ekki að hlaupa
út í búð á hverjum degi. Eða
afborganir af húsnæði, svo að þú
þurfir ekki að borga leigu alla
ævi. Síðan eru aðrar skuldir sem
ég trúi að séu óréttmætar, s.s.
vegna mvndbandstækja eða af-
ruglara.
Maður er raunverulega skuld-
ugur, þegar hann greiðir ekki
reikninga sína. Ég legg til við
þig: Notaðu ekki greiðslukort,
nema þú getir greitt reikninginn
mánaðarlega; leggðu til hliðar
vissa upphæð af hverri útborgun
til sparnaðar; Kauptu hæfilegar
vátryggingar; láttu kristinn lög-
fræðing fara yfir alla mikilvæga
samninga og heiðvirðan verslun-
armann yfirfara alla viðskipta-
samninga; biddu Guð urn visku
til að gera fjárhagsáætlun; gerðu
áætlanir fram í tímann, gættu
orðstírs þíns, lifðu ekki um efni
fram, veldu veraldlegar eigur
þínar af hógværð og farðu vel
með þær.
Orðatiltækið „þú getur aldrei
gefið Guði meira en Guð gefur
þér" er ekki rétt. Maður verður
að gefa samkvæmt leiðsögn
Orðsins og Heilags anda. Og
Framhald á bls. 46