Afturelding - 01.12.1987, Qupperneq 45
því felst viss áhætta, en sú áhætta
er nauðsynleg. Það er ekki alltaf
hægt að hamra á bókstafnum
eins og hann kemur hrár fyrir,
heldur verður að skoða hann í
ljósi Biblíunnar allrar og að-
stæðna á hverjum tíma.
Lausanne-hreyfingin er merk
hreyfing, sem samtengir kristna
bræður og systur um allan heim
og hvetur til samstarfs og vináttu
á meðal fólks frá ólíkum menn-
ingarsvæðum.
Umræöuhópur, f.v.: Tony Lee frá Singapore, John ltond frá Ástralíu, Nicholas Masuk-
ume frá Zimhabwe, Anne Marie Schuc frá VÞýskalandi, David Singh frá Indlandi og
Örn Bárður Jónsson.
berjast, þjást og líða fyrir fagn-
aðarerindið. Það er ódýrt að
trúa á íslandi, en dýrt í mörgum
löndum þriðja heimsins.
Sá maður, sem mér fannst
setja mestan svip á ráðstefnuna
var séra John R.W. Stott frá
Englandi. Hann hefur verið
mjög virkur í Lausanne-hreyf-
ingunni og mótað stefnu hennar
og guðfræði á mörgum sviðum
að ég tel. Hann flutti erindi sem
ég sótti og var mjög fróðlegt.
Fjallaði hann þar um vanda
prédikunarinnar þ.e.a.s. vand-
ann að koma boðskapnum til
skila til nútímans. Talaði hann
um að þeim sem vildu vera trúir
Orðinu hætti til að skjóta yfir
markið, en hins vegar væri það
vandi þeirra, sem frjálslyndir
teljast, að þeir virðast oft hitta í
mark, en ekki er alltaf á hreinu
hvaðan boðskapurinn kemur!
Þetta er vandi hverrar kynslóð-
ar. Hugmyndafræði Stotts og
aðferðir við túlkun Biblíunnar
komu mér ekki á óvart enda við-
urkenndar aðferðir guðfræðinn-
ar. Hann sýndi hinum „texta-
trúu“ áheyrendum fram á að það
verður að túlka boðskapinn. 1
Singapore ’87 var uppörvandi
og hvetjandi ráðstefna sem
sýndi mér enn skýrar en áður
hve heimurinn er lítill. Já, heim-
ur minnkandi fer. Svo er tækn-
inni fyrir að þakka, tækni sem
gerir okkur vonandi auðveldara
að ná til allra manna nreð boð-
skapinn um Frelsarann.
Séra John R.W. Stott og séra Örn Bárður Jónsson á Singapore ’87.