Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1938, Side 69
63
ur og búalið bezt, skilja það, af því að þeir
hleyptu slíkum átroðningi á tún sitt, og -það í
miðjum júní.
Ekki kom gestrisnin síður í ljós í öllu, er að að-
búnaði og viðurværi þátttakenda laut. Frú Stef-
anía Gissurardóttir, kona sr. Sigurðiar, veitti allri
matreiðslu forystu og eldaði og hitaði mat og
kaffi í eldhúsi ,sínu, Og í bæinn var skipað öll-
um þeim, sem á nokkurn hátt voru veikbyggð-
ir eða gamlir. Var þar s,vo þéttskipað, að fáir
mundu hafa getað fundið út hvílustað handa
svo mörgum í ekki stærri húsakynnum, þótt
háum verðlaunum hefði verið heitið, fyrir snjall-
asta lausni.
Og þá var ekki síður erilsamt er þátttakend-
ur þurftu að fá plcgg sín þurrkuð, eða heitan
sopa til að hressa upp þreyttan líkama. Oft
var kliður og maigra manna mál í bæjargöng-
um og herbergjum í Iíraungerði þá daga, ,svo
vart mátti einstaka rödd greina. Pó fengu allir
sitt, og á ég bágt með að skilja, hverniig hús-
frey.'an fékk greint hvert skipti hvaðan ósk kom.
Og hér vil cg geta þess, þeim til skýringar
er svo kunna að hugsa, að hún hafi veitt það eitt,
er henni var skyldugt, að það eitt virtist skii-
yrði frá hennar hendi fyrir því, að mótið feng-
ist haldið í Iiraungerði, að ekki yrði verið að
neyða hana til að taka við þóknun. En þakkir