Alþýðublað Hafnarfjarðar - 24.12.1984, Page 3
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
3
Gunnþór Ingason þjóðkirkjuprestur:
J ólahugvekj a
Svo áhrifarík eru jólin,
að þeirra gœtir um a/la
heimsbyggðina. —Um
skeið eru þau frettin og at-
burðurinn, sem allt snýst
um og sitthvað verður þá
og með öðrum hœtti en
áður. Áhuginn beinist þá
að því að gleðjast og ekki
síður að gleðja. Það er líkt
og myrkrið hörfi þá undan
birtu og brosi, fögnuði og
friði, svo jafnvel skot-
hvellir og ófriðardrunur
þagna um stund. —Og
þeim er gaumur gefinn
sem líða og þjást, friðvana
þjáðu og sveltandi fólki.
Við gefum hvert öðru
gjafir á jólum og teljum
þann sið byggast á því að
hinir vísu menn, sem fylgt
höfðu stjörnunni skœru
gáfu jötubarninu dýrmcet-
ar gjafir, gull, reykelsi og
mirru. En gœtum að, þeir
gáfu honum gjafir sem
—fœddur var, —ekki hver
öðrum. Viljum við fara að
dœmi þeirra, liggur bein-
ast við að œtla, að við cett-
um að gefa þeim gjafir
sem hann vill helst bindast
og ber fyrir brjósti, öllum
þeim sem þarfnast,
miskunnar, elsku og líkn-
ar.
Jafnframt því sem við
höfum heyrt og séð fjöl-
margar glysmiklar auglýs-
ingar í fjölmiðlum nú síð-
ustu dagana fyrir jólin,
sem hvetja okkur til kaupa
á munaðarvarningi, höf-
um við séð brugðið á skjá-
inn annars konar myndum
og öllu skelfilegri. Við
höfum þá haft fyrir aug-
um hungursneyð og skort,
séð vanncerð börn, tcerð
og bólgin starandi móti
okkur lífvana augum. Það
er Kristur hinn krossfesti
sem lítur þar til okkar, því
hann hefur gefist mann-
legu lífi, er samslunginn
því og bundinn til að varpa
af því hverju oki, frelsa
það og endurreisa í kcer-
leikskrafti sínum.
Þó fjarlægðir séu mikl-
ar á milli okkar og þeirra,
sem hann nú minnir okkur
á, getum við fyrir milli-
göngu Hjálparstofnunar
kirkjunnar og annarra
aðila, lagt fram einhvern
skerf til að létta þeirra
byrðar, nálgast Jesú og
fjárhúsið hans, fœrt hon-
um okkar dýrmœtu gjafir.
Engin gleði er varanlegri
Alþýðublað
Hafnarfjarðar
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði.
Ritstjóri og ábm.: Jóna Ósk Guðjónsdóttir, s.
54132.
Setning: Alprent hf., Ármúla 38.
Prentun: Steinmark.
en sú, sem vaknar af því að
gleðja og gefa. Jesús er
nefndur frelsari af því að
líf hans miðar að því að
lina þrautir, líkna og
blessa, glœða mannlegt líj
eilífð og elsku. Hann gaj
sjálfan sig segir kristin trú,
fórnaði lífi sínu, svo við
mœttum lifa í endurnýj-
ungu lífsins, sem erbundið
guði og gleði hans.
Hann vill að við sem
heyrum honum til séum
heiminum salt og Ijós.
Ljósið lýsir og saltið
verndar. Við sem njótum
lífsgœða megum ekki sýna
ábyrgðar og kœruleysi,
spilla lífi okkar sökum
eigingirni og sjálfsdekurs,
svo við töpum skynjun á
þeim tilgangi lífs sem
Jesús Kristur vísar á. Við
eigum að reynast lífinu vel
sem samferðarmenn hans
og fylgjendur. Á jólum er
okkur sagt frá því að hann
sé okkur gefinn, svo við
megum lífa í von og
trausti, trúa á lífið og
göfugan tilgang þess.
„I myrkrum Ijómar /ífs-
ins sól.
Ó Guðisélof fyrir gleðileg
jól.“
ÓSKUM HAFNFIRÐINGUM
GLEÐILEGRA JÓLA OG
FARSÆLS KOMANDI ÁRS.
ÞÖKKUM ÁNÆGJULEG
VIÐSKIPTI Á ÁRINU
SEM ER AÐ LÍÐA.
5PARI5JD0UR
HAFNARFJARÐAR
Hagur heimamanna
Stórkostlegt úrval af skartgripum
DEMANTAHÚSIÐ
REYKJAVÍKURVEGI 62